Bæjarins besta - 07.02.2013, Page 6
6 FIMMTUDAGUR 7. FEBRÚAR 2013
Útgefandi: Gúttó ehf., kt. 680501-2620
Afgreiðsla og ritstjórn: Silfurgötu 1, Ísafirði, sími 456 4560
Ritstjóri BB og bb.is: Sigurjón J. Sigurðsson, 892 5362, bb@bb.is
Ábyrgðarmenn: Halldór Sveinbjörnsson, 894 6125, halldor@bb.is
Sigurjón J. Sigurðsson
Blaðamenn: Guðmundur B. Þorbjörnsson, gudmundur@bb.is
Hörður Andri Steingrímsson, hordur@bb.is
Auglýsingar: Halldór Sveinbjörnsson, 894 6125, halldor@bb.is
Prentvinnsla: Litróf ehf.
Upplag: 2.200 eintök
Dreifing: Íslandspóstur. Dreift án endurgjalds inn á öll heimili
á norðanverðum Vestfjörðum
Stafræn útgáfa: www.bb.is / facebook.com/pages/bbis
Önnur útgáfa: Á ferð um Vestfirði
ISSN 1670-021X
Tekið er á móti auglýsingum á póstfangið bb@bb.is.
Auglýsingar þurfa að berast fyrir kl. 17 á mánudögum
fyrir útgáfudag sem er almennt á fimmtudögum.
Ritstjórnargrein
Litla heimsborgin
Spurning vikunnar
Mun niðurstaða Icesave hafa áhrif á hvað
þú munt kjósa í alþingiskosningunum í vor?
Netspurningin er birt vikulega á bb.is og þar geta lesendur
látið skoðun sína í ljós. Niðurstöðurnar eru síðan birtar hér.
Alls svöruðu 844.
Já sögðu 209 eða 25%
Nei sögðu 581 eða 69%
Hlutlausir voru 54 eða 6%
„Við ætlum að henda upp léttu
„söngsjóvi“ eins og oftast er gert
á vorin. Það átti að vera eitthvert
ákveðið þema og í ár er verið að
taka fyrir böllin í Gúttó frá tíma-
bilinu 1947 - 1984 gróflega áætl-
að. Við ætlum að rifja upp hljóm-
sveitirnar sem voru eins og Villi
Valli, Ásgeir og félagar og BG.
Við erum búin að vera að hitta
einhverja af þessum körlum og
það eru ansi margir sem hjálpa
okkur í þessu. Svo verður sprell
milli laga eins og vant er,“ segir
Steingrímur Rúnar Guðmunds-
son formaður Litla leikklúbbsins
á Ísafirði.
Gamlir LL félagar skrifa hand-
ritið og verið er að velja lög sem
fólk þekkir frá böllunum á tíma-
bilinu. Það er verið að klára söng-
varamálin. „Okkur vantar alltaf
góða söngvara ef einhver liggur í
leynum. Verið er að klára að
mynda hljómsveit til að spila lög-
in,“ segir Steingrímur en það hef-
ur verið mjög vinsælt og vel sótt
að taka svona „söngsjóv“ á vorin
að sögn Steingríms.
Æfingar fara fram í Edinborg-
arhúsinu þar sem verkið verður
frumsýnt 23. mars næstkomandi.
Nokkur fyrirtæki styðja á bak
við Litla leikklúbbinn til að gera
svona sýningar að veruleika.
„Við vorum að fá styrk frá Orku-
búi Vestfjarða og Landsbankinn
var að styrkja okkur líka. Það eru
oftast sömu aðilarnir sem styðja
við okkur og hefur gengið mjög
vel,“ segir Steingrímur.
– hordur@bb.is
Böllin í Gúttó á fjalirnar
„Eins og við sjáum þetta núna
er vöntunin næstu tvö árin um
það bil 10-20 pláss og ætlum við
okkur að standa við það að bjóða
öllum 18 mánaða börnum og eldri
upp á leikskólapláss. Sé horft á
yngri árganga virðist þörfin svo
minnka aftur eftir tvö ár, nema
að okkur fjölgi verulega. Þar af
leiðandi erum við að leita að tíma-
bundinni lausn að minnsta kosti
eins staðan er núna,“ segir Daníel
Jakobsson bæjarstjóri Ísafjarðar-
bæjar aðspurður hvort vöntun sé
á leikskólaplássi í bænum.
Ísafjarðarbær stefnir að því að
öll börn 18 mánaða og eldri eigi
kost á leikskólaplássi en nú stefn-
ir í að allt að 10 börn á þeim aldri
muni ekki komast inn á leikskóla
næsta haust. Sá fjöldi kemur
líklega til með að aukast en vilji
er fyrir því að finna viðeigandi
lausn á málinu. Bæjarráð fer því
fram á að gerð verði úttekt á
þeim möguleika að opnuð verði
leikskóladeild fyrir fimm ára börn
í húsnæði sundlaugarinnar á Ísa-
firði eða annars staðar.
„Bæjarráð Ísafjarðarbæjar
óskar eftir því að skóla- og tóm-
stundasvið geri nú þegar úttekt á
möguleika þess að opnuð verði
leikskóladeild fyrir fimm ára börn
í Skutulsfirði, en góð reynsla er
af slíkum deildum m.a. í Mos-
fellsbæ og Reykjavík,“ segir í
bókun bæjarráðs þann 28. janúar
síðastliðinn. Daníel telur raun-
hæft að opna nýja leikskóladeild
í Skutulsfirði. „Já, ég tel að lausn-
in sé til staðar og a.m.k. tvær
staðsetningar eru álitlegar. Nú
verður málið sett í hendur bæjar-
stjórnar til að taka ákvörðun.
Þetta er spurning um fjármagn
en kostnaðurinn er um 15 millj-
ónir króna á ári,“ segir bæjar-
stjóri.
Ekki eru nema fimm börn í
vistun hjá dagforeldrum á Ísafirði
í dag að sögn bæjarstjóra en þeim
fer ört fjölgandi fram á vor þar
sem ný börn eru ekki tekin inn á
leikskóla fyrr en þá, að öllu
óbreyttu. „Við höfum reynt að
koma til móts með auknum nið-
urgreiðslum til foreldra með börn
hjá dagforeldrum en viljinn er að
sem flestir geti komið börnum
sínum inn á leikskóla og það er
það sem við ætlum okkur að
leysa,“ segir Daníel Jakobsson.
Skortur á leikskólaplássi
Reglulegar áætlunarferðir
milli Ísafjarðar og Súðavíkur
„Þetta er mikið gleðiefni og það
verður ánægjulegt að sjá hvort
þetta gangi vel. Við bindum
miklar vonir við þetta nýja fyrir-
komulag,“ segir Ómar Már Jóns-
son sveitarstjóri í Súðavík, en frá
og með 25. janúar hófust reglu-
legar áætlunarferðir á milli Súða-
víkur og Ísafjarðar. Þrjár ferðir
verða farnar á dag, alla virka
daga. Áður hefur verið reynt að
halda uppi áætlunarferðum á
milli bæjanna, en ekki gengið.
Ómar segist vona að með breyttu
fyrirkomulagi verði breyting þar
á. „Nú verður einungis ekið ef
ferð er pöntuð að lágmarki tveim-
ur tímum fyrir áætlaða brottför
og fyrir kl. 17.00 vegna ferðar
morguninn eftir,“ segir Ómar.
Ómar segir mikla ánægju ríkja
með nýtt fyrirkomulag, en Fjórð-
ungssamband Vestfirðinga hefur
milligöngu með verkefninu.
„Vegagerðin hafði áður umsjón
með þessum ferðum en ekki tókst
að byggja upp trúverðugleika og
traust á þeim ferðum. Stundum
var farin ferð sem enginn vissi af
og einnig kom það upp að einhver
vildi fara og þá var engin ferð
farin,“ segir Ómar, en verkefnið
er styrkt af stjórnvöldum.
Samið hefur verið við Friðfinn
Sigurðsson rútubílstjóra um að
taka aksturinn að sér. Ómar bind-
ur miklar vonir við að íbúar og
fyrirtæki í Súðavík og á Ísafirði
nýti sér þjónustuna. „Verðið er
ekki nema 350-400 krónur fyrir
ferðina og því nær þetta ekki
einu sinni upp í bensínkostnaðinn
á milli. Þetta eru góðar fréttir
fyrir íbúana á svæðinu.“ Farið
verður frá Ísafirði kl. 7.00, 12.00
og 16.45 á hverjum degi, og frá
Súðavík 7.35, 12.35 og 17.20.
– gudmundur@bb.is
Súðavík.
Enginn vafi leikur á að ,,hin nýja Eyri við Skutulsfjörð“ getur tekið við
umtalsverðri fólksfjölgun og nýjum fyrirtækjum, sagði í leiðara BB í sept.
2005. Þá var unnið að gerð nýs deiliskipulags hafnarsvæðisins. Fjórum
árum síðar kom fram í drögum að aðalskipulagi Ísafjarðarbæjar fyrir árin
2008 – 2020, að hagkvæmasti kosturinn væri þétting byggðar. Saga
byggðar á Eyri við Skutulsfjörð er full frásagna um framsýni og áræði
íbúanna til sóknar fyrir betri bæ. Ummæli útlendinga nútímans, um
,,heimsborgarablæ“ á þessum litla, fallega bæ á hjara veraldar, segja meira
en mög orð.
Gífurlegir landvinningar hafa átt sér stað og eyrin í dag í engu lík því
takmarkaða landrými, sem fólst í fyrri tíma Suðurtanga. Við eigum að
leggja metnað okkar í að nýta eyrina til fulls og gera það með þeim hætti
að vel fari saman nýtt og gamalt, var viðhorf BB í febr. 2009. Þessi afstaða
er óbreytt. Nú virðist uppi stemning fyrir eins konar ,,miðbæ“ í Suðurtanga,
neðan Ásgeirsgötu; blandaðri byggð íbúða og þjónustu. Ef til vill má orða
það svo að Ásgeirsgata sé á landamærum þess gamla og nýja.
Vel skal vanda sem lengi á að standa. Öðru fremur á þetta við um skipu-
lag bæjarfélaga. Skipulagsmistök eru dýrkeypt; í fæstum tilfellum leiðrétt-
anleg. Þess vegna ber að fara með gát; en, aðgát er annað en aðgerðarleysi.
Umsóknir á borð við þá sem Guðmundur Tryggvi Ásbergsson, hefur lagt
fram um lóð undir fjölbýlishús við Sindragötu, athafnamanns sem staðið
hefur fyrir endurgerð á Norska bakaríinu, og bíður eftir heimild fyrir
byggingu 20 lítilla sumarhúsa í Tungudal, mega ekki undir neinum kring-
umstæðum lenda í aðgerðarleysiskörfunni. Séu vandkvæði uppi verður
að leita lausna. Þörfin fyrir aukinn drifkraft í framkvæmdir í bæjarfélaginu
er aðkallandi. Vonandi á eins konar miðbæjarkjarni eftir að verða til í
Suðurtanganum, ,,gamli bærinn“ að breiða úr sér um alla eyrina. Kannski
verður þá ,,kaupmaður á hverju horni“?
Svæðisbundin flutningsjöfnun er eflaust búbót fyrir 3X Technology,
fyrirtæki sem greiðir nokkra tugi milljóna í aukaflutningskostnað á ári
vegna fjarlægðar frá millilandahöfn, kostnaðar sem varð til eftir að
sjóflutningar voru lagðir niður, og sem dregið hefur úr samkeppnishæfni
fyrirtækisins. Skref stjórnvalda er í rétta átt. Réttlætinu verður hins vegar
ekki fullnægt nema að taka upp fyrri háttu. 300 þúsund krónur, per gám,
Ísafjörður - Reykjavík, til þess eins að koma framleiðslunni í millilanda-
höfn, er gróf mismunun og einokun. Ef stjórnvöldum er einhver alvara í
því að viðhalda byggð í landinu verða þau að taka til hendinni. Láta verkin
tala.
s.h.