Bæjarins besta


Bæjarins besta - 07.02.2013, Side 13

Bæjarins besta - 07.02.2013, Side 13
FIMMTUDAGUR 7. FEBRÚAR 2013 13 Hraðfrystihúsið Gunnvör hf., leitar að starfsmanni til að sinna gæðaeftirliti og aðstoða við verkstjórn í bolfiskvinnslu fyrirtækisins. Kostur er ef viðkomandi býr yfir þekkingu á tölvum og gæðakerfum sem og enskukunnáttu. Áhersla er lögð á jákvæðni og vandvirkni í vinnubrögðum, góða samskipta- færni, sem og reglusemi, stundvísi og árverkni. Nánari upplýsingar veitir Sveinn K. Guðjónsson verksmiðjustjóri (GSM 863 3871) og óskast umsóknir sendar á skg@frosti.is fyrir 14. febrúar nk. Starfsmaður óskast í gæðaeftirlit og verkstjórn „Ég prjóna hvert stykki sjálf en er að hugsa um að gefa út lítið blað með öllum upp- skriftunum. Þetta eru fjórar peysur sem ég er með, það er opin peysa, opin með hettu, heil peysa og svo Ísa- fjarðarpeysurnar sem eru með stuttum rennilás upp frá brjósti en það er uppruna- lega Ísafjarðarpeysan. Ungl- ingarnir vilja peysu með hettu og útlendingarnir vilja bara heilar peysur, þeim finnst það vera íslenskt,“ segir Berglind og skilur vel að margir vilji frek- ar fá uppskriftina en kaupa peysuna. „Ísfirðingum og Íslending- um finnst dýrt að borga 21.900 fyrir svona peysu þótt útlendingum finnist það ekki. Íslendingar vilja frekar prjóna þetta sjálfir og ég myndi líka vilja það. Ef ég hefði ekki hannað þessar peysur, hefði ég líka viljað fá munstrið. Ég hefði ekki viljað kaupa peys- una sem ég gæti prjónað sjálf. Konur sem eru miklar prjónakonur vilja bara prjóna sjálfar. Það eru bara þeir sem geta ekki prjónað, kunna það ekki og hafa engan til að prjóna fyrir sig sem að myndu kaupa peysurnar,“ segir Berglind Sveinsdóttir sem ætlar að koma uppskrift- um sínum út á meðal almenn- ings og vonast til að sjá fleiri Ísafjarðarpeysur út um allt í framhaldinu.

x

Bæjarins besta

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Bæjarins besta
https://timarit.is/publication/1104

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.