Bæjarins besta


Bæjarins besta - 07.02.2013, Blaðsíða 17

Bæjarins besta - 07.02.2013, Blaðsíða 17
FIMMTUDAGUR 7. FEBRÚAR 2013 17 Þjónustuauglýsingar voru ýmsir hlutir sem fram- kvæmdir voru öðruvísi heldur en á hefðbundnum flugvelli, ég var undir leiðsögn flug- kennara þegar að ég flaug hérna fyrir vestan en mig dreymir um að geta verið hér með flugvél og að getað flogið hér um og boðið fjöl- skyldu og vinum í flugferð um Vestfirðina. Varstu smeykur við að fljúga í fyrsta skipti einn? Nei, ég var ekki mjög smeykur enda var ég vel undirbúinn fyrir það af flug- kennaranum mínum. Ég flaug mitt fyrsta sólóflug þann 18. október árið 2011 í Reykjavík en fyrsta sólóflugið er þannig að flugkennarinn hoppar úr vélinni og segir þér að taka þrjú flugtök og lendingar á flugvellinum. Mitt sólóflug tókst bara vel og held ég að þetta sé eftir- minnilegasti atburðurinn í mínu lífi enn sem komið er. Hversu langt er námið? - Hvert er framhaldið hjá þér? Lengd námsins fer svolítið eftir einstaklingunum, hversu duglegir þeir eru. Fyrsta skrefið er að fara í einkaflug- mannsnám sem að tekur allt frá hálfu ári upp í eitt og hálft ár og skiptist upp í bóklegan hluta og verklegan hluta. Bóklegi hlutinn tekur 10 vikur hjá Flugskóla Íslands og verklegi hlutinn veltur mikið á veðráttu og ákefð nem- andans í að fljúga. Með einkaflugmannspróf mátt þú fljúga með vini og vanda- menn á litlu vélunum. Atvinnuflugnámið er næsta skrefið og skiptist það sömu- leiðis upp, bóklegi hlutinn er 9 mánuðir og síðan tekur við verklegur hluti sem að hægt er að ljúka á hálfu ári ef viðkomandi einstaklingur er duglegur svo að heildartím- inn sem þú ert í skólastofunni að læra er u.þ.b. eitt ár en þegar þú hefur lokið at- vinnuflugmannsprófið ertu kominn með í kringum 200 flugtíma og ágætan reynslu- banka. Ray-Ban? Ray Ban eru flott sólgler- augu sem að ég held að allir flugmenn verði bara að eiga, það er bara nauðsyn- legt að eiga góð sólgleraugu þegar maður er að fljúga og standast Ray Ban þær kröfur flugmanna. Ég held að Ray Ban framleiðandinn standi í ævarandi þakkarskuld við Tom Cruise eftir að hann var með Ray Ban gleraugu í flug- myndinni Top Gun. Hvernig getur maður feng- ið upplýsingar um námið? Ég hvet alla þá langar að læra að fljúga eða bara að prófa að fljúga að kynna sér námið nánar til dæmis á vef- síðu Flugskóla Íslands, www. flugskoli.is.

x

Bæjarins besta

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Bæjarins besta
https://timarit.is/publication/1104

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.