Bæjarins besta - 06.03.2014, Qupperneq 2
2 FIMMTUDAGUR 6. MARS 2014
Karlmaður um sjötugt hefur
verið dæmdur fyrir húsbrot í
tveimur aðskildum tilvikum, en í
þeim báðum var þolandinn sá
sami. Ákvörðun refsingar var
frestað og fellur hún niður að
liðnum tveimur árum. Sam-
kvæmt ákærunni braust maður-
inn inn í húsnæði í Bolungarvík í
apríl og desember 2012, og stal
þaðan ýmsum verkfærum. Með
athæfi sínu olli hann skemmdum
á húsnæðinu í báðum tilvikum,
en um var að ræða tvær eignir í
eigu sama aðila.
Í fyrra tilvikinu er hann ákærð-
ur fyrir þjófnað, en til vara fyrir
húsbrot, með því að hafa brotist
inn í bílskúr í eigu fyrrverandi
sambýliskonu sinnar, tekið þaðan
prufubekk, rennibekk, pressu og
ýmiss handverkfæri, og valdið
með þessari háttsemi skemmdum
á stormjárni á glugga bílskúrsins.
Í seinna tilvikinu er hann einnig
ákærður fyrir húsbrot, með því
að hafa brotist inn í húsnæði fyrr-
verandi samýliskonu sinnar, og
tekið þaðan sandblásturstæki, og
valdið með þessari háttsemi
skemmdum á glugga húsnæðis-
ins.
Maðurinn viðurkenndi að hafa
í tveimur tilvikum, í heimildar-
leysi, farið inn í húsnæði fyrrver-
andi sambýliskonu sinnar og
einnig að hafa á brott með sér
muni, en þá taldi hann sig eiga.
Fallið var frá ákæru um þjófnað.
Í öðrum ákærulið voru felld út
orðin: „...og valdið með þessari
háttsemi skemmdum á glugga
húsnæðisins.“ Játaði hann þá ský-
laust sök samkvæmt ákærunni
þannig breyttri og taldi dómur
sannað að ákærði hafi gerst sekur
um brot þau sem honum eru gefin
að sök.
Hann hefur ekki áður sætt refs-
inu. Með vísan í það og játningar
mannsins þótti dómnum rétt að
fresta ákvörðun refsingar og
fellur hún niður að liðnum tveim-
ur árum. – harpa@bb.is
Dæmdur fyrir húsbrot
Pólskur mánuður hófst í Safna-
húsinu á Ísafirði á laugardag með
kynningu og upplestri á ljóða-
verkefninu ORT og sýningunni
Ljóðaþvottur þar sem fjögur ís-
lensk skáld eru í pólskum þýð-
ingum og fimm pólsk skáld í
íslenskum þýðingum. Ljóðin
voru lesin af íslenskum og pólsk-
um unglingum og pólskir Nóbels-
höfundar kynntir.
Þá fengu gestir einnig að hlýða
á tónlistarflutning. Þess má geta
að þann 15. mars verður dagskrá
á pólsku fyrir börn og 19. mars
verður örnámskeið á pólsku. Þeir
sem vilja geta nú gluggað fjölda
pólskra bóka en bókasafnið fékk
nýja sendingu nýlega.
– harpa@bb.is
Pólskur mánuð-
ur í Safnahúsinu
Gestir fengu að að njóta
tónlistarflutnings.
Ekki bráð mengunar-
hætta á Garðsstöðum
Heilbrigðieftirlit Vestfjarða
framkvæmdi talningu í lok janúar
á fjölda bíla í „bílakirkjugarðin-
um“ á Garðsstöðum við Ísafjarð-
ardjúp og voru þeir þá 455 talsins.
Þetta kemur fram í fundargerð
heilbrigðisnefndar Vestfjarða frá
14. febrúar. Þar kemur einnig
fram að með vísan í skýrslur heil-
brigðiseftirlits sé ekki talin vera
bráð mengunarhætta af starfsem-
inni. Samstarf verði haft við
Súðavíkurhrepp um lausnir á
málinu og leitar verður til skipu-
lagsyfirvalda í sveitarfélaginu um
breytingu á skipulagi, en á meðan
skipulagi er ekki breytt verður
ekki veitt starfsleyfi.
Eins og kom fram hér á BB í
nóvember í fyrra er enn talsvert í
land með að umfang „bílakirkju-
garðsins“ komist í það horf sem
samkomulag Þorbjörns Stein-
grímssonar, eiganda bílana og
Súðavíkurhrepps mælir fyrir um,
en ítrekað hefur verið veittur
frestur til að klára málið. Rætt
var við Ómar Má Jónsson sveitar-
stjóra sem sagðist hafa átt í reglu-
legum samtölum við Þorbjörn um
þessi mál og það sé sameiginlegt
markmið þeirra að „gíra“ niður
fjölda bifreiða og gera honum
mögulegt að fá starfsleyfi fyrir
þessari starfsemi á jörðinni.
– harpa@bb.is
Garðsstaðir í
Ísafjarðardjúpi.
Eins og allir vita var bolludagurinn á mánudag, að minnsta kosti á norðanverðum Vestfjörðum.
Dagurinn er einnig þekktur sem maskadagurinn en þá klæðist unga fólkið og einhverjir fullorðnir,
búningum, og má sjá allskyns furðuverur á ferð. Starfsmenn bæjarskrifstofunnar á Ísafirði ákváðu
að nýta tækifærið og mættu þau flest í einhverskonar gervi til vinnu og eflaust hefur verið
skemmtilegt að sækja erindi sín á skrifstofuna þann daginn. Þar var meðal annars hægt að rekast á
súperman, jólasvein, lækni, M&M og Mottumars karl með flott yfirvaraskegg.
Maskar á bæjarskrifstofunni
Skemmtilegar furðuverur á bæjarskrifstofu Ísafjarðarbæjar.