Bæjarins besta - 06.03.2014, Síða 6
6 FIMMTUDAGUR 6. MARS 2014
Strandsiglingar mikil
búbót fyrir landsbyggðina
Flutningar stóru skipafélag-
anna tveggja, Eimskipa og Sam-
skipa, í gegnum nýjar strandsigl-
ingaleiðir með tengingu við Evr-
ópuhafnir hafa gengið betur en
bjartsýnustu menn þorðu að vona.
Sparnaður fyrirtækja á lands-
byggðinni í flutningum, aðallega
í sjávarútvegi, nálgast milljarð
króna á ársgrundvelli. Guðmund-
ur M. Kristjánsson, hafnarstjóri
á Ísafirði, var formaður starfs-
hóps Ögmundar Jónassonar fyrr-
verandi innanríkisráðherra, vorið
2011 sem vann tillögur um hvern-
ig koma mætti á standsiglingum
og undirbúa útboðslýsingu fyrir
ríkisstyrktar strandsiglingar.
Ríkisstjórnin fól Ögmundi að
ganga frá útboði fyrir strandsigl-
ingar en þá kynntu Eimskip og
Samskip nýjar siglingaleiðir, sem
höfðu verið í undirbúningi um
tíma. Hugmyndir stjórnvalda og
skipafélaganna voru mjög ólíkar.
Nýju siglingaleiðir skipafélag-
anna voru ekki strandsiglingar
eins og tíðkuðust á árum áður,
heldur strandsiglingaleiðir sem
hluta af siglingakerfum frá Ís-
landi við meginland Evrópu. Í
kjölfar þessa dró Ögmundur
tillögu sína til baka enda tilgangi
hennar náð.
Guðmundur segir í viðtali við
Fréttablaðið að þessi nýja þjón-
usta skipafélaganna hafi sannað
sig rækilega. Samantekt hans á
flutningum á strandsiglingaleið-
um í gegnum hafnir á Ísafirði,
Sauðárkróki, Akureyri og Reyð-
arfirði sýndi að frá 18. mars til
áramóta fluttu félögin tvö tæp
84.000 tonn sem jafngildir því
að félögin flytji 110.000 tonn á
ársgrundvelli, eða 9.200 tonn að
meðaltali á mánuði.
Þá benti hann á hversu gríðar-
lega mikil búbót strandsigling-
arnar séu fyrir fyrirtæki á lands-
byggðinni, ekki síst sjávarútvegs-
fyrirtæki. „Maður heyrir að fram-
leiðendur hér á svæðinu eru
einróma um að þessi nýja þjón-
usta skipti þá verulega miklu
máli. Einstakir fiskframleiðendur
eru að spara sér milljónir, jafnvel
tugi milljóna, í flutningskostnað
á ári. Þetta er fljótreiknað þegar
haft er í huga að áður borguðu
menn 250.000 fyrir flutning með
bíl að útflutningshöfn í Reykjavík
og til Evrópu, en sami 25 tonna
gámur kostar sama framleiðanda
kannski 60.000 krónur þegar
hann er sóttur af strandsiglinga-
skipi,” sagði Guðmundur.
Í úttekt Fréttablaðsins er einnig
fjallað um hina hlið málsins, t.d.
það að til að koma tugum þús-
unda tonna af varningi landleið-
ina frá fyrirtækjum fyrir vestan
og á Norðurlandi þurfa flutninga-
bílar að keyra þessa afmörkuðu
leið átta til níu þúsund sinnum
fram og til baka. Í útreikningum
Gunnars Kvaran, forstöðumanns
útflutningsdeildar Samskipa, er
meðalferðin í kringum 400 kíló-
metrar. Miðað við átta þúsund
ferðir eru það 3,2 milljónir ekinna
kílómetra.
Í skýrslu fjármálaráðuneytis-
ins, Heildarstefnumótun um
skattlagningu ökutækja og elds-
neytis, er fjallað meðal annars
um vegslit flutningabíla. „Ein
ferð flutningabíls án tengivagns
með 80% hleðslu gæti valdið
svipuðum niðurbrotsáhrifum og
9.000 ferðir […] fólksbifreiðar,”
segir í skýrslunni. Lauslega
reiknað þurfi 72 milljónir fólks-
bíla til að ná því vegsliti flutn-
ingabíla sem hefur verið fært út á
sjó.
Jón Helgason, framkvæmda-
stjóri mannvirkjasviðs Vega-
gerðarinnar, sagði að of skammur
tími sé liðinn frá því að sigling-
arnar hófust til að hægt sé að
merkja mun á viðhaldskostnaði.
– harpa@bb.is
23,6% af fiskiskipaflota lands-
manna skráður á Vestfjörðum
Flest fiskiskip voru með skráða
heimahöfn á Vestfjörðum í árslok
2013, alls 401 skip, en það eru
um 23,6% fiskiskipastóls lands-
manna. Opnir bátar voru flestir á
Vestfjörðum, eða 232 talsins, og
þá voru einnig vélskip flest á
Vestfjörðum, alls 163. Næst flest
fiskiskip, 324, höfðu heimahöfn
skráða á Vesturlandi, eða 19,1%.
Fæst skip höfðu heimahöfn á
Suðurlandi, 72, en það samsvarar
4,2% af heildarfjölda fiskiskipa.
Opnir bátar voru næst flestir á
Vesturlandi, 180, en fæstir höfðu
heimahöfn á Suðurlandi, eða 17.
Vélskip voru fæst á Suðurlandi,
eða 49 skip. Flestir togarar höfðu
skráða heimahöfn á höfuðborgar-
svæðinu, alls 11, en níu togarar á
Norðurlandi eystra. Fæstir togar-
ar voru skráðir á Vesturlandi,
eða þrír.
Alls voru 1.696 fiskiskip á skrá
hjá Siglingastofnun í lok árs 2013
og hafði þeim fjölgað um sex frá
árinu áður. Fjöldi vélskipa var alls
783 og samanlögð stærð þeirra
89.478 brúttótonn. Vélskipum
fjölgaði um fimm á milli ára en
stærð flotans jókst um 203 brúttó-
tonn. Togarar voru alls 51 og
fækkaði um fimm frá árinu á
undan. Heildarstærð togaraflot-
ans var 60.161 brúttótonn og
hafði minnkað um 12.540 brúttó-
tonn frá árinu 2012. Opnir
fiskibátar voru 862 og 4.170
brúttótonn að stærð. Opnum
fiskibátum fjölgaði um sex milli
ára og heildarstærð þeirra jókst
um 60 brúttótonn.
Íslenski fiskiskipastóllinn var
rúmlega átta mánuðum eldri að
meðaltali í árslok 2013 en í árslok
2012, en meðalaldur var um 25
ár og tveir mánuðir. Meðalaldur
vélskipa var tæp 24 ár, togara-
flotans tæp 28 ár og opinna fiski-
báta rúm 26 ár.
– harpa@bb.is
Flest fiskiskip voru með skráða heimahöfn á Vestfjörðum í árslok 2013, alls 401 skip.