Dagblaðið Vísir - DV - 03.07.2008, Blaðsíða 4
fimmtudagur 3. júlí 20084 Fréttir DV
InnlendarFréttIr
ritstjorn@dv.is
HPI Savage XL
fjarstýrður
bensín
torfærutrukkur, sá stærsti og
öflugasti til þessa.
Nethyl 2, sími 587-0600, www.tomstundahusid.is
SAVAGE XL
Nýkominn
H
ild
ur
H
lín
Jó
ns
dó
tt
ir
/ h
ild
ur
@
dv
.is
Karlar
yfirgnæfandi
Fjórir af hverjum fimm við-
mælendum í fjölmiðlum eru
karlar samkvæmt niðurstöð-
um nýrra mælinga Creditinfo á
Íslandi, rekstraraðila Fjölmiðla-
vaktarinnar. Mælingin var gerð í
janúar, mars og júní á þessu ári
og og náði til frétta í útvarpi og
sjónvarpi. Á því tímabili voru um
það bil tvö þúsund viðtöl birt við
karla en einungis rúmlega fimm
hundruð viðtöl við konur.
Enginn lést í
eldsvoðum
Ekkert manntjón varð í elds-
voðum á síðasta ári, samvæmt
nýútkominni ársskýrslu Bruna-
málastofnunar. Árið í fyrra var
fyrsta árið síðan 2003 sem eng-
inn lætur lífið í eldsvoða. Á síð-
ustu 29 árum hefur alls fimmtíu
og einn látið lífið í eldsvoðum,
eða að jafnaði 1,76 á hverju ári.
Samkvæmt tölum Bruna-
málastofnunar kemur fram að
þrír af hverjum fjórum sem láta
lífið í eldsvoðum eru karlar.
„Þetta var allt saman tekið upp á
vídeó og ljósmyndað. �ðru lambinu
var lógað eftir bitið, þeir drápu það
ekki en sködduðu lambið mikið,“
segir Sigurður Brynjólfsson, yfirlög-
regluþjónn á Húsavík, um þá ákvörð-
un að drepa tvo hunda frá bænum
Garði í Aðaldal.
Hundunum, Ben sem var í eigu
konu Skarphéðins, og öðrum hundi
sem þau höfðu tekið í fóstur, var
lógað af lögreglumönnum eftir að
hafa bitið ær og lömb. Guðmundur
Skarphéðinsson, bóndi á Garði, segir
að þegar lambið var skoðað hafi ekk-
ert sést á því. „Lögreglan kom og tók
lambið upp á veg. Þar var það skoð-
að og þar sást ekkert á því. En þeir
hringdu í þann sem þeir héldu að
væri eigandinn. Hann kom á staðinn
og sá það strax að það var ekkert að.
Það voru smá rispur á því eftir runna
en það var ekkert blóð. Ég kom síðan
stuttu síðar og sá það sama.“
Ben gerði ekki neitt
Tvær erlendar konur, sem eru í
vinnu á Garði, voru að hreinsa fé úr
túnunum. Ráku það fyrir fjallsenda
til að setja það í eigin girðingu. „Féð
var ekki frá okkur og það sækir mik-
ið suður þar sem ekki er hægt að
ríða á eftir því. En hundarnir komast
léttilega á eftir því. Héldu því í hóp
vestan megin í brekkunni. Þá var
einhver sem sá það að hundar voru
með féð og lét lögregluna vita,“ segir
Guðmundur.
Lögreglumenn kom skömmu
síðar með myndbandsupptökuvél
og myndavél. Hringdu síðan í Guð-
mund enda segir Sigurður, yfirlög-
regluþjónn á Húsavík, að vitað hafi
hver ætti hundana. „Ég var heima við
og hélt af stað. Ég sá ekki hundana
þegar ég kom að enda sátu þeir með
fénu eins og fjárhundar gera. Síðan
tók rolla með lamb sig út úr hópn-
um, hundarnir fóru á eftir og náðu
rollunni en lambið hljóp í burtu.
�nnur tíkin fór á eftir lambinu
sem hljóp út í stör. Þar settist lamb-
ið niður og hundurinn töluvert frá.
Okkar hundur sem hét Ben settist
lengra frá og gerði ekki neitt. Lög-
reglan var þarna á móti og tók mynd-
ir og myndband af atburðunum.“
Eigandinn sá hundana bíta
Sigurður, yfirlögregluþjónn á
Húsavík, segir að atburðarásin hafi
verið samkvæmt lögum og reglum.
„Eigandinn var sjálfur á staðnum
ásamt tveimur lögreglumönnum og
horfði á hundana bíta. Það eru til
bæði vídeó og ljósmyndir af því þeg-
ar hundarnir framkvæma þennan
verknað á tveimur lömbum á staðn-
um. Síðan eru bara einfaldar reglur
sem engum finnst ánægjulegar um
hvað skuli gera við hunda sem ráð-
ast á búfé eða menn.
Þetta er ekki óalgengt því hunda
er víða að finna. En það sem er óal-
gengt við þetta eru þau viðbrögð sem
þarna urðu. Yfirleitt er það þannig að
um leið og hundaeigendum er orðið
þetta ljóst, þá er það nánast í öllum
tilfellum sem eigendurnir sjálfir sjá
um að láta lóga dýrunum.
Eigandinn var svo sjálfur með-
virkur í þeirri ákvörðun sem tek-
in var. Hann óskaði sjálfur eftir því
að lögreglumenn sæju um að aflífa
hundana. En þó að hann hafi ver-
ið meðvirkur í ákvörðuninni er ég
ekki að segja að maðurinn hafi verið
ánægður yfir því að þetta var gert.“
Féð var þarna í órétti
Kona Guðmundar var ekki alls
fyrir löngu flutt með sjúkraflugi
vegna fyrirburafæðingar. Segir Guð-
mundur að hún eigi að vera heima
og því ekki mjög heppilegt að lenda í
svona atburðarás. „Ég óskaði eftir því
að þeir myndu ekki skjóta hundana
fyrirvaralaust. Ég spurði þá líka hvort
þeir myndu skjóta báða hundana
eða annan og þá hvorn. Varla voru
þeir báðir sekir og þeir yrðu þá að
sanna sekt þeirra. Svo varð ég að fara
heim með konuna því hún var ekki í
góðu lagi á vettvangi. Og þeir ákváðu
með mjög stuttum fyrirvara að skjóta
hundana.
Þetta fé
sem var þarna var
algjörlega í órétti. Þetta
var ekki land eiganda lambsins. Féð
var búið að fara fimm jarðir sunn-
ar. Það er nú vitað að það voru þrjú
greni í þessu landi fyrir mjög stutt-
um tíma. Féð er einnig í kringum
hross.
Ég fór ábyggilega 100 til 200 sinn-
um með Ben í fyrrasumar og aldrei
kom hann við kind eða lamb. Ná-
grannar mínir hefðu örugglega sagt
eitthvað hefði sést einhvern tíma á
lambi eða kind. Þetta var krakka-
hundur, ekki er langt síðan leikskóli
var hérna og Hafralækjarskóli kom
hérna líka. Þetta var algjörlega sak-
laus skepna á allan hátt. Þetta er búið
að vera mikil sorg og hreinlega öm-
urlegur tími. Aðförin að konunni var
slík að maður óttaðist um tíma um
heilsu hennar og jafnvel líf.“
Hundunum Ben og Stjörnu frá bænum Garði í Aðaldal var lógað af lögreglumönnum á
Húsavík eftir að hafa bitið lömb til ólífis. Eigandi Bens, Guðmundur Skarphéðinsson
bóndi á Garði, er ósáttur við málalyktir. Lögreglan hefur þó aðra sögu að segja og segir
Guðmund hafa beðið lögregluna að lóga dýrunum.
Í fullum rétti til
að sKjóta þá „eigandinn var sjálf-ur á staðnum ásamt lögreglumönnum og horfði á hundana bíta.“
BEnEdikt BóaS hinRikSSon
blaðamaður skrifar: benni@dv.is
Ný vatnsleiðsla verður lögð til Vestmannaeyja á næstu dögum:
Þorsta Eyjamanna loksins svalað
Lagning nýrrar vatnsleiðslu til
Vestmannaeyja hefst um helgina. Sjálf
leiðslan ásamt lagningarskipi er kom-
in til Eyja. Elliði Vignisson, bæjarstjóri í
Vestmannaeyjum, segir að líkast til taki
það allan júlímánuð að gera klárt fyrir
leiðsluna á báðum endum, jafnvel þótt
aðeins taki um tvo daga að leggja sjálfa
leiðsluna. „Við svölum þorsta okkar
bæði með blávatni og ýmsu öðru hér
í Vestmannaeyjum og verðum feg-
in þegar þessi leiðsla verður komin í
gagnið,“ segir hann.
Það er Hitaveita Suðurnesja sem
sér um lagningu leiðslunnar. Vatnið
verður fengið úr brunnum við Syðstu-
Mörk undir Eyjafjöllum. Reiknað er
með því að lögnin verði tekin í gagnið
síðsumars.
„Þetta er ákaflega mikilvægt verk-
efni, einkum í ljósi þess að hér er ver-
ið að reisa vatnsverksmiðju, þar sem
vatni verður tappað á umbúðir fyrir
stórnotendur. Leiðslan eykur öryggi
okkar hér í Eyjum og er forsendan fyr-
ir rekstri vatnsverksmiðjunnar,“ segir
Elliði. Vatnsverksmiðjan sé mikilvægt
verkefni fyrir atvinnuþróun í Vest-
mannaeyjum.
Elliði bendir á að ekki sé víst að
leiðslan verði komin í gagnið fyr-
ir verslunarmannahelgi, en þá halda
Vestmannaeyingar Þjóðhátíð í Herj-
ólfsdal. „Það er hins vegar mun meiri
eftirspurn eftir öðrum drykkjum á
Þjóðhátíð,“ segir hann.
Nýja vatnsleiðslan var flutt til Eyja
um borð í skipinu Henry P. Lading, en
það er einmitt sama skip og flutti fyrstu
vatnsleiðsluna til Vestmannaeyja, fyrir
um fjörutíu árum. Framleiðandi vatns-
leiðslunnar er einnig sá sami og þá.
Þegar rætt var við Elliða í gærkvöldi
var hann önnum kafinn við undirbún-
ing á goslokahátíð í Vestmannaeyj-
um, en Vestmannaeyingar fagna því
nú að 35 ár eru liðin frá því að eldgosi í
Heimaey lauk. sigtryggur@dv.is
Vestmannaeyjar Ný vatnsleiðsla til
Eyja er forsenda fyrir rekstri vatnsverk-
smiðju.
Ölvaður á
ofsahraða
Karlmaður á þrítugsaldri var
tekinn fyrir ofsaakstur á Hafnar-
fjarðarvegi. Bíll hans mældist á
156 kílómetra hraða. Kom í ljós
að maðurinn var undir áhrifum
áfengis. Maðurinn furðaði sig á
afskiptum lögreglu þar sem hann
taldi sig hafa ekið á eðlilegum
hraða.
hundarnir við bæinn
Ben og Stjarna voru gæfir
hundar að sögn eiganda
þeirra.