Dagblaðið Vísir - DV - 03.07.2008, Blaðsíða 29

Dagblaðið Vísir - DV - 03.07.2008, Blaðsíða 29
DV Fólkið fimmtudagur 3. júlí 2008 29 Emilíana Torrini á aðdáendur úti um allan heim. Margir hverjir eru orðnir þreyttir á að bíða eftir nýrri skífu frá stúlkunni en Fisherman’s Woman kom út árið 2005. Emilí- ana hefur ekki verið þekkt fyrir að troða sér fram í fjölmiðlum og því reynist þögnin um nýju plötuna mörgum erfið. Þegar Emilíana er spurð út í næstu plötu vill hún lít- ið segja: „Platan kemur út í september, eða ég vona það allavega því ég er orðin verulega óþolin- móð,“ segir Emilíana á síðunni emiliana.nu. Fisherman’s Woman var mjög ólík Love in the time of Science svo það er spurn- ing hverju aðdáendur hennar eiga von á að þessu sinni. „Nýja platan verður mjög ólík þeim fyrri sem ég hef gefið út í Evrópu. Bæði lögin og hljómurinn á henni eru allt öðruvísi en á Fisherman’s Woman,“ segir Emilíana. Hún er þegar búin að semja um tíu lög, flest af þeim með Dan Carey gítarleik- ara sem mun einmitt spila á nýju plötunni því hann er í miklu uppáhaldi hjá henni. Auk þess verður eitt lag sem hún semur með Eg, en hann átti lög á báðum fyrri plötun- um. „Það er mikill fjölbreytileiki á nýju skífunni og það kveður við nokkuð nýj- an hljóm í tónlist minni um þessar mundir,“ segir hún. Að sögn Emilí- önu kemur þessi nýi hljómur þó ekki til með að blómstra fyrr en á þar næstu plötu, því allt þurfi tíma til að þróast. Það hvílir nokkur dulúð yfir plötunni líkt og Emilíönu sjálfri og því þurfa aðdáendur hennar að bíða enn um stund. liljag@dv.is Spengileg í Höllinni Margt var um manninn á tónleikum Pauls Simon í Laugardalshöllinni í fyrrakvöld. Þar á meðal voru að sjálfsögðu mörg þekkt andlit og var eitt þeirra Jónína Benediktsdóttir, athafnakona og líkamsræktarfröm- uður. Athygli vakti hve Jónína leit vel út; var grönn og spengileg sem aldrei fyrr. Eins og frægt er hefur Jónína verið á fullu í afeitrun í Pól- landi undanfarna mánuði og staðið fyrir hópferðum frá Íslandi til að leyfa landsmönnum líka að kynnast þessari líkamsrækt 21. aldarinnar, ef svo má kalla það. Afeitrunin virðist allavega skila árangri í tilviki Jónínu, svo mikið er víst. Þá er loksins von á nýrri plötu frá söngkonunni Emilíönu Torrini. Nýja platan verður nokkuð ólík þeim fyrri því bæði lögin og hljómurinn er annar. Vonast er eftir að platan komi út í september en Emilíana sjálf er orðin nokkuð óþolinmóð. Herra og frú Zorba Egill Helgason sjónvarpsmað- ur gekk að eiga unnustu sína Sig- urveigu í gær á Folegandros á Grikklandi. „Þetta verður borgaraleg at- höfn undir stjórn bæjarstjórans hér sem heitir Lefteris – hvorugt erum við meðlimir í hinnu grísku krikju,“ segir Egill á bloggi sínu í gær. Eins og kunnugt er er Egill Helgason mikill áhugamaður um menningu og þjóð á Grikklandi og hefur varið miklu af sínum frí- tíma þar í landi. Hann er nú stadd- ur á Grikklandi til að læra gríska tungumálið. Veisla þeirra hjóna var haldin í blómagarði sem heitir Pounta og var allt sem kom að veislunni með grískum blæ. Hans helstu áhyggj- ur voru þó að jakkaföt hans, sem hann pantaði sér sérstaklega fyr- ir brúðkaupið, bærust ekki í tæka tíð. Hann segir þau þó hafa borist með síðasta skipi dagsins kvöldið fyrir brúðkaupið. Blogg Egils er víðlesið og höfðu í gær hinir ýmsu bloggarar óskað Agli og hans frú innilega til ham- ingju í tilefni dagsins. „Vá, þetta er rómantískt og skemmtilegt, Egill minn. Til ham- ingju og gangið á Guðs vegum í líf- inu öllu. Þú verður aldrei sakaður um að spóka þig um í nýju fötum keisarans. Kemur alltaf til dyranna eins og þú ert klæddur,“ sagði Jón- ína Benediktsdóttir og vitnaði í blogg Egils þar sem hann hug- leiddi jafnvel að halda brúðkaup- ið á lítilli nektarströnd nálægt að- setri hans í Folegandros. Þráinn Bertelsson rithöfundur sló á létta strengi og skrifaði: „Til hamingju, hr. og frú Zorba.“ Við- eigandi heillaósk á fallegum degi. hanna@dv.is Egill HElgason gEkk að Eiga síNa hEittElskuðu í gærkVöldi á grísku EyjuNNi FolEgaNdros: nýgiftur maður Egill Helgason gekk að eiga Sigurveigu, unnustu sína til margra ára, í gær á grísku eyjunni folengandros. Syrgja kött Sorg ríkir á heimili Svölu Björg- vinsdóttur og Einars Eðvalds- sonar, tveggja meðlima sveitar- innar Steed Lord. En þau misstu sinn heittelskaða kött á dögun- um. Kötturinn hét Suzy Lu og nefndu Svala og Einar sig Suzy og Elvis er þau vantaði nafn á plötusnúðadúó sitt. Á Myspace-síðum Steed Lord- meðlima eru myndir til heiðurs kettinum krúttlega. En heyrst hefur að kötturinn Suzy Lu hafi verið í miklu uppáhaldi hjá öll- um meðlimum sveitarinnar. getur ekki beðið eftir nýju plötunni Ótrúleg rödd Emilíana er ótrúlega fjölhæf og kraftmikil söngkona. Emilíana er alltaf jafnsæt Ef hún er ekki hluti af krúttkyn- slóðinni hver er það þá? Fisherman’s Woman lítið hefur heyrst frá Emilíönu síðan platan fisherman’s Woman kom út árið 2005. aðdáendur geta andað léttar í september þegar áætlað er að nýja platan komi á markað. Emilíana Torrini:

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.