Dagblaðið Vísir - DV - 03.07.2008, Síða 18
fimmtudagur 3. júlí 200818 Bílar DV
vetur kom í ljós að hann dreif alveg
svakalega.
Ég var Toytota-þenkjandi lengi
vel og sá ekkert nema Toyota. En svo
heilluðu alltaf kraftmiklir mótorar,
þar kemur þetta ameríska inn. Dod-
ge-inn er sjálfskiptur og það er langt
síðan menn komust að því að sú
skipting hentar betur að mörgu leyti
uppi á fjöllum. Hún tekur mýkra á og
heldur betur við.“
Mikið vill meira
Aðspurður hvað myndi gerast
ef eitt dekk myndi springa stend-
ur ekki á svari. „Hann myndi velta,“
segir Bjarni og hlær. „Nei, þessi dekk
sem eru undir honum núna, þessi
Michelin-dekk, eru notuð í fullt af
tækjum. Þau springa ekki svo auð-
veldlega. Það eru alveg ógnarsterkar
hliðar á þeim og það er mjög gott að
keyra á þeim.“ Bjarni segir að það sé
mikið af aukahlutum í bílnum. Bakk-
myndavél og myndavél að framan
meðal annars, sérstæð loftdæla og
fleira og fleira. „Guttarnir vilja að ég
fari með hann í 700 hestöfl,“ segir
Bjarni og glottir.
benni@dv.is
Fyrir Framan bílinn Átta
ára gutti sem átti leið framhjá
nær ekki upp fyrir dekkið. Við
hliðina á bílnum er annar jeppi á
40“ dekkjum.
BÍLLINN
Bíllinn: dodge ram 3500
Dekk: 54“, 53“ sumardekk
Hestöfl: 492
Skipting: Sjálfskiptur
Eldsneyti: dísilolía
Eyðsla: 18 lítrar á langkeyrslu
Hugsaðu umhöfuðið
SHOEI fremstir í 40 ár
Ný sending komin í hús
Hugsaðu um fæturna
Skór á allt mótorhjólafólk
Crossre Vertigo Race
Stórhöfða 35
110 Reykjavík
S: 567 6116
InnI í húsInu Á palli bílsins er
þýskt hús sem þolir íslenskt
veðurfar.
Á vetrarbomsunum
Bíllinn tekur sig vel út á
vetrardekkjunum.
Engin SMáSMíði dodge-inn tekur
mikið pláss í götunni eins og sést hér.