Listin að lifa - 01.06.2010, Page 7
Fáðu öruggari öryggishnapp
- aukin þjónusta án aukakostnaðar
Alltaf innifalið í heimaöryggi eldri borgara:
Öryggishnappur
- armband eða hálsmen
Þegar þrýst er á öryggishnappinn heyrist
viðvörunartónn á staðnum og boð berast
strax til vaktmiðstöðvar Öryggismiðstöðvarinnar.
Um leið og viðvörun birtist á skjá vaktmiðstöðvar
opnast talsamband milli viðskiptavinar og
öryggisvarðar. Hljóðneminn á taekinu er mjög
næmur til að talsamband náist sem víðast á
heimilinu. Það er afar einfalt og algjörlega án
aukakostnaðar aö skipta um öryggishnapp.
©
Okeypis úttekt
á umhverfi og öryggi
Flest slys verða inni á heimilum. Öllum
nýjum hnapphöfum stendurtil boða að fá
ókeypis úttekt á húsnæði sínu með tilliti
til öryggis og aðgengis. Með einföldum
forvörnum má draga verulega úr líkum á
slysum, t.d. vegna slæms aðgengis eða
óhentugrar aðstöðu.
Hjúkrunarfræðingar
á vakt allan sólarhringinn
(vaktmiðstöð Öryggismiðstöðvarinnar eru
hjúkrunarfræðingar á vakt allan sólarhringinn,
alla daga ársins. Hnapphöfum býðst ókeypis
aðstoð og ráðgjöf komi eitthvað upp á sem
veldur áhyggjum.
Reykskynjari
Boðið er upp á þráðlausan
reykskynjara beintengdan vaktmiðstöð
Öryggismiðstöðvarinnar. Beintengdur
reykskynjari tryggir að ávallt sé gripið
til viðeigandi ráðstafana komi upp
eldur. Skynjarinn lætur kerfið einnig vita
þegar skipta þarf um rafhlöður og sinnir
Öryggismiðstöðin þeirri þjónustu.
Viðbótarþjónusta sem eykur öryggi:
Hev
e\dri bor9ara
Mottur
þrjár tegundir
Öryggismiðstöðin býður upp á mottur,
sem skynja hreyfingu, í rúm og á gólf.
Motturnar senda boð til vaktmiðstöðvar
ef frávik greinast, t.a.m. vegna
hjartsláttartruflana, flogakasta og ef
aðili sem ekki kemst um án aðstoðar
hefur í hyggju að fara fram úr.
Rápvörn
Öryggishnappur sendir frá sér
útvarpsbylgjurtil móttakara sem
staðsettir eru við útganga. Rápvörn
hentart.d. hluta Alzheimer-sjúklinga.
m Hreyfiskynjari
með ferlivöktun
Hreyfiskynjarinn sendir boð til
vaktmiðstöðvar greini hann ekki
hreyfingu í íbúö í tiltekinn tíma.
0 Aðrir skynjarar
Einnig er hægt að fá hita-, vatns- og
gasskynjara sem eru beintengdir við
vaktmiðstöð.
0 Úthringingar
Öryggismiðstöðin býður einnig upp
á þá þjónustu að hringja reglulega í
hnapphafa, t.d. einu sinni á sólarhring.
Hringdu í 570 2400 og fáðu öruggari öryggishnapp
www.oryggi.is