Listin að lifa - 01.06.2010, Page 11
og gamalt fólk hefur líka gaman af því þó það sé töluvert
mál að láta það verða að veruleika. Og þó hugurinn sé
lúinn og bíltúrinn gleymdur eftir klukkustund þá skiptir
núið öllu máli og að þess sé notið á meðan það stendur
yfir.
Hvað skiptir okkur máli?
Kaffíbollinn sem við fáum okkur á morgnana meðan
við lesum blaðið okkar, heita sturtan sem við förum í
á morgnana eða gönguferðin síðdegis. Þetta eru litlu
hlutimir sem skipta samt svo ótrúlega miklu máli eins
og segir í þekktu dægurlagi. Hvaða venjur hafði fólkið
okkar áður á sínu heimili sem við hjálpum því að halda
í þó það sé flutt til okkar á hjúkrunarheimili? A Eden-
heimili er lögð rækt við að fínna út hverjir þessir litlu
hlutir em og reyna að sjá til þess að viðkomandi haldi
þeim áfram. Þetta er auðvitað auðveldara þegar við búum
á hjúkrunarheimili sem skipt er niður í litlar einingar en
það er í raun allt hægt, líka þó búið sé á heimili þar sem
35 manns búa saman.
Líkamleg líðan ekki miðpunkturinn
Aldrei verður því lýst nógu vel hversu notalegt fólki fínnst
að komast á heimili þar sem læknar og hjúkmnarfræðingar
em í kallfæri. Öryggistilfmningin er ómetanleg.
En að því sögðu þurfum við að sama skapi að passa
upp á að sjúkdómar verði ekki miðpunktur lífsins
hjá heimilisfólki. Oft snýst líf þess meira og minna
um meðferð við sjúkdómum, lyfjagjöf, sprautur og
aukaverkaniraflyfjum. Alitlu Eden-heimili sem sniðið
er utanum hugmyndafræðina em læknar og hjúkmnarfólk
í bakgmnni en ætíð í kallfæri. Þeir em ekki með aðstöðu
á heimilinu en í sömu byggingu. Þeir koma alveg eins
oft til viðkomandi en þá sem gestkomandi. A stómm
hefðbundnum heimilum verður að sníða stakk eftir vexti.
Heimilisfólkið ræður sér sjálft
Eitt atriði Eden- stefnunnar er að ákvarðanir em færðar
til heimilisfólks eða aðstandenda eins og hægt er.
Akvarðanir dags daglega koma ekki í skipunartón
frá yfírmanni heldur er valdið sem mest fært til
heimilisfólksins eða nánustu aðstandenda hans ef
aðstæður em þannig. Hvenær viðkomandi fer í bað,
hvenær hann fer á fætur, hvort hann borðar hafragraut eða
fer í sund. Heimilisfólkið ákveður til dæmis í sameiningu
með starfsfólki hvenær skreyta á sameiginleg rými fyrir
jólin, hvort baka á tertu eða búa til brauðtertu fýrir afmæli
og segja til um hvort heimilið vilji fá böm í heimsókn
eða gæludýr.
Eiður, heimilismaður i Asi, með dísarpáfagaukinn Rósu á öxlinni.
Ljósmynd/hg
Manneskjuleg starfsmannastefna
Eins og yfirmenn koma fram við starfsfólkið kemur
starfsfólkið fram við heimilisfólk. Þetta er hin gullna
regla Eden- stefnunnar. Þar er lögð áhersla á að
gefa starfsfólki kost á að líða eins og heima hjá sér.
Starfsfólkið þarf ekki að hafa samviskubit ef það sest
niður og prjónar í smá stund með heimilisfólkinu og
lætur annað sitja á hakanum. Og á heimili sem hannað
er í anda Eden- hugmyndafræðinnar þá sest starfsfólkið
niður með heimilisfólki og borðar hádegismat og
spjallar í rólegheitum um daginn og veginn yfir matnum.
Eldhúsið er miðjan á slíku heimili og ilminn leggur um
vistarverumar þegar bakað er eða þegar verið er að hella
upp á kaffí á morgnana. En þó að húsnæðið sé ekki svona
og við séum að vinna á hefðbundnum deildum þá má
ýmsu breyta og þoka hlutunum í rétta átt.
Grund fylgir Eden- hugmyndafræðinni á
Suðurlandsbraut
Það er uppörvandi að sjá að í dag er farið að byggja
hjúkmnarheimili hér á landi sem eru í anda heimilislegrar
hugmyndafræði eins og Eden.
Nýlega var gengið að tilboði Grundar í rekstur
hjúkrunarheimilis við Suðurlandsbraut. Þar er verið að
leggja lokahönd á 110 manna heimili sem er skipt upp í
ellefu tíu manna heimili með eldhúsi og stofu sem hjarta
hvers heimilis.
Þama mun Gmnd nú gefast kostur á að koma á fót
virkilega notalegum heimilum í Eden- anda þar sem
sjálfræði fólks verður varðveitt sem lengst en þó öryggið
alltaf innan seilingar. Það er mikið tilhlökkunarefni að fá
að takast á við slíkt verkefni.
Texti og myndir:
Guðbjörg R. Guðmundsdóttir
Samskiptafulltriá Grundar
gudbjorg@grund. is