Listin að lifa - 01.06.2010, Side 15
Systir Jenfridar er Kristíana Kristjánsdóttir. Hún fór til náms
í Haverford High School árið 1955, aðeins 17 ára gömul. Þá
bjó hún hjá systur sinni sem ein af fjölskyldunni. í október
næsta haust mun Kristíana fara utan til að hitta skólafélaga
sína og fagna 55 ára afmæli og endurfundum.
Heimsókn í janúar 2009
Ég fór ásamt Kristíönu, vinkonu minni, til Jenfridar í janúar
á síðasta ári og bjuggum við á nýja heimilinu hennar í
rúma viku. Kvöldið eftir komuna til hennar bauð hún okkur
og vinum úr húsinu í kvöldverð. Við vorum kynntar fyrir
mörgu fólki sem við hittum svo oftar meðan á heimsókn
okkar stóð. Jenfrid á gott með að kynnast fólki og tengja
það saman. Tveir matsalir eru í húsinu. Annar er bistro með
salatbar en hinn „the dining room“. I þeim síðamefnda kom
fólk spariklætt að dúkuðum borðum. Skólafólk gekk þar um
beina og mynduðust þannig góð tengsl milli yngra og eldra
fólksins.
Tómstundir og félagslíf
Allt umhverfi Shannondell er með miklum glæsibrag sem
og vistarverur innanhúss. Boðið er upp á þjónustu sem
aldraðir þurfa en svæðið er vaktað allan sólarhringinn.
Þama er hjúkrunarheimili (Medows) þar sem fólk getur
dvalið um tíma ef það veikist eða eftir sjúkravist og notið
hjúkmnar og aðhlynningar.
Margt er í boði fyrir íbúana í Shannondell. Þar eru
bridgeklúbbar, listklúbbar, kór, aðstaða til tónlistar- og
íþróttaiðkana (sundlaug, leikfimi- og tækjasalur), tölvuver,
leiksvið, kvikmyndasalur og sitthvað fleira. Lyfjaverslun
er á staðnum og stutt í verslanir en sérstakir vagnar sjá
reglulega um akstur til og frá verslunarmiðstöðinni. Jenfrid
spilar bridge í einum klúbbnum þrisvar í viku.
Meðan á dvöl okkar stóð heimsóttum við stað þar sem 10-
15 manna módelklúbbur hefúr vinnuaðstöðu. Þar hafði
verið sett upp líkan af nokkuð fjölbreyttu bæjarfélagi með
öllu sem því tilheyrir, svo sem leikvöllum, íbúðarsvæðum,
sólarströnd, tívolí, kirkjum og fjöllum. Klúbbfélagamir
vom að fullkomna líkanið, t.d. að leggja jámbrautir í
gegnum fjöllin.
Það var mjög gaman að dvelja hjá Jenfrid í góðu atlæti og
sjá draumaheimili eldri borgaranna. Hún lagði sig mjög
fram um að gera okkar dvöl sem ánægjulegasta. Sjá má
fleiri myndir á www.shannondell.com
Texti og myndir: Lovísa Einarsdóttir,
lovisa. einarsdottir@hrafnista. is
Jenfrid er keppniskona í bridge og sést hér með
spilafélögunum í spilaklúbbnum.
Hádegisverður i veitingasalnum. Greinarhöfundur, María,
Auður ogJenfrid. María ogAuður búa í nágrenninu.
Systurnar í móttökunni á fyrstu hœðinni í
aðalinnganginum. Fersk blóm eru í vasa fremst á
myndinni allan ársins hring.
Tveir íbúanna glaðbeittir í sundlauginni.