Listin að lifa - 01.06.2010, Page 18
/
Plöntur í litlu plássi
- sælureitur á svölunum
Lengi vel var sá misskilningur útbreiddur að þegar
maður minnkaði við sig húsnæði, færi úr einbýlishúsi
í íbúð í fjölbýlishúsi, þá þyrfti maður að gefa
ræktunardraumana upp á bátinn. Litrík blómabeð og
gróskumikill matjurtagarður yrðu endurminningar
einar, eitthvað til að ylja sér við á hrollköldum
vetrarkvöldum. Reyndar getur verið að einhverjir
hafí séð ákveðna kosti samhliða svona breytingum,
eins og til dæmis að glíman við illgresi af öllum
stærðum og gerðum væri að baki, bakbólgur og
hnjáverkir heyrðu sögunni til og sorgarrendur undir
nöglum eyðilegðu ekki lengur handsnyrtinguna.
Einstaka sérvitrar blómakonur í fjölbýlishúsum létu
þó ekki svona hugrenningar á sig fá, heldur héldu sínu
striki og fylltu svalir sínar af alls konar gróðri. Þessar
konur (og reyndar karlar líka) hafa nú heldur betur
fengið uppreisn æru því með tímanum hafa æ fleiri
komist að því að það er ekkert tiltökumál að útbúa
sælureit á svölunum.
Birta
Hægt er að koma sér upp gróðurvin á hvaða svölum
sem er. Birtuþörf plantna eru mjög mismunandi og
þess vegna er nauðsynlegt að átta sig á því hvemig
svalimar snúa við sólu áður en maður ákveður hvaða
tegundir maður ætlar að ráðast í að rækta. Yfírleitt
snúa svalir að einhverju leyti í suðurátt og þá er hægt
að rækta nánast hvaða tegundir sem er, svo framarlega
sem plöntumar fá beina sól einhvem hluta dags. Á
svölum sem snúa í norður er alveg hægt að rækta
plöntur en þá þarf að velj a plöntur sem em skuggþolnar
og þola það að fá jafnvel enga beina sól yfír daginn.
Upplýsingar um birtuþörf plantna er hægt að fá í
gróðrarstöðvum en til er þumalfmgursregla sem er
þannig að til þess að fá blómgun á plöntur verða þær
að fá beina sól einhvem hluta dags (3-4 klukkutímar
em eiginlega lágmark). Á skuggasvalimar velur
maður þá frekar plöntur sem ekki blómstra, svo sem
burkna, hostur eða skuggþolin sumarblóm eins og
brúðarauga eða apablóm.
Vökvun
Á svölunum er hægt að útbúa sér fasta blómakassa
sem ekki em færðir úr stað eða einbeita sér að því
að rækta plöntumar í ýmiss konar kerjum og pottum.
Plöntumar em eigandanum algerlega háðar um
vökvun því jarðvegurinn í pottunum er takmarkaður.
Það er því óráðlegt að fýlla svalimar af fallegum
gróðri og stinga svo af í sólarlandaferð í þrjár vikur
í júlí, nema maður eigi auðvitað góða nágranna
eða fjölskyldu sem getur séð um vökvunina fyrir
mann. Ef maður þarf hins vegar að skjótast í burtu
í nokkra daga er hægt að gera ýmislegt til að draga
úr þurrki hjá plöntunum. Það fýrsta er auðvitað að
vökva plöntumar mjög vel áður en maður leggur af
stað. Hægt er að blanda sérstökum vatnskristöllum
í moldina en þeir em þeirrar náttúru að þegar maður
vökvar drekka þeir í sig vatn og bólgna út. Þegar
Minjasafii
Egils Olafssonar
Björgunarafrekinu við Látrabjarg eru gerð mjög
góð skil og einnig eru til sýnis stórmerkilegir
hlutir frá Gísla á Uppsölum ásamt fjölmörgum
öðrum merkilegum safngripum.
Stórmérkilegt og fallegt safn gamalla
muna úr héraðinu.
Þar er meðal annars Þjóðhátíðarskipið frá 1974
og fiskiskipið Mummi sem Bárður Tómasson,
fyrsti íslenski skipaverkfræðingurinn, hannaði og
smíðaði á ísafirði 1935.
Að Hnjóti er Flugminjasafn og þar hefur verið
endurreist Vatnagarðaskýlið sem stóð í Reykjavík.
Á staðnum er kaffitería þar upplagt er að
setjast niður og fá sér hressingu.
MinMkifn E^riU OUUunnr Hu;4n OrlyjiiiuUn
i; 4S6-I&II ww\» lin|o«ur i» - knjocuriflinpnlur.il
18