Listin að lifa - 01.06.2010, Blaðsíða 52
Q§ TRY6GINGAST0FNUN
Lækkanir lífeyrissjóða og
greiðslur Tryggingastofnunar
Margir lífeyrissjóða hafa boðað lækkanir
lífeyrisgreiðslna til sjóðsfélaga á árinu. Hjá sumum
lífeyrisþegum, sem einnig njóta lífeyris skv. lögum
um almannatryggingar, geta tekjutengdar bætur frá
Tryggingastofnun hækkað við það að lífeyrissjóðirnir
lækka.
Tryggingastofnun hefur í samráði við lífeyrissjóðina
leitað leiða til að þessar breytingar geti gengið
sjálfkrafa fyrir sig til hægðarauka fyrir alla aðila. Það
reyndist þó ekki unnt að svo stöddu. Breytingarnar eru
mismiklar og koma til á mismunandi tímum. Margir
lífeyrisþegar eiga aðild að fleiri en einum sjóði sem
einnig flækir málið.
Ahrif lægri lífeyrissjóðsgreiðslna á greiðslur frá
Tryggingastofnun eru mismiklar hjá einstaklingum,
háð samsetningu heildartekna. Auðvelt er að átta
sig á hvaða áhrif breytingin hefur með því að setja
forsendur inn í reiknivél á vef Tryggingastofnunar
www.tr.is eða með bráðabirgðaútreikningi á vefnum
www.tryggur.is.
Vakin er athygli á að allar greiðslur til lífeyrisþega
vegna 2010 verða leiðréttar með hliðsjón
af rauntekjum við uppgjör um mitt ár 2011.
Lífeyrisþegar þurfa því ekki að aðhafast neitt til að
leiðrétting eigi sér stað.
Lífeyrisþegar sem óska þess að fá réttindi sín
endurreiknuð fyrr þurfa að skila nýrri tekjuáætlun til
Tryggingastofnunar. Það er auðvelt að gera rafrænt á
www.tryggur.is, með aðstoð veflykils ríkisskattstjóra,
eða með því að fylla út eyðublað sem nálgast
má á vefnum www.tr.is og hjá Tryggingastofnun
og umboðum um land allt. Við endurskoðun
tekjuáætlunar kemur sér vel ef lífeyrisþegar fá einnig
upplýsingar um áunna vexti frá bankanum sínum og
nota þær til að áætla ijármagnstekjur sínar fyrir árið
2010 og færa þær inn um leið og aðrar breytingar.
Það er á ábyrgð lífeyrisþega að veita
Tryggingastofnun réttar upplýsingar um tekjur og þær
breytingar sem verða á þeim.
Helstu þjónustuleiðir Tryggingastofnunar
• A vefTryggingastofnunar www.tr.is eru
ítarlegar upplýsingar um hvaðeina sem snertir
almannatryggingar.
• Þjónustuvefurinn www.tryggur.is er aðgengilegur
með kennitölu og veflykli skattsins.
• Hægt er að senda tölvupóst á netfangið tr@tr.is
eða eiga netsamtal við þjónusturáðgjafa.
• Þjónustumiðstöð að Laugavegi 114 er opin frá kl.
8:30 til 15:30
• Sími Tryggingastofnunar er 560-4400 -
Þjónustumiðstöð sími 560-4460 - Gjaldfrjálst
númer: 800-6044.
• Umboðsmenn Tryggingastofnunar eru á
skrifstofum sýslumanna um land allt.
52