Fréttatíminn - 29.05.2015, Blaðsíða 2
Smiðjuvegi 2, Kóp - S. 554 0400
Opið kl. 11 - 18 virka daga
Opið kl. 11 - 16 laugardaga
Er frá Þýskalandi
FULLT VERÐ
57.900
49.900
SUMARTILBOÐ
Skoðið úrvalið á
www.grillbudin.is
10,5
KW
Píratar halda fylgi þriðjungs kjósenda
32,7%
FYLGI
pÍRATA
15.-20. maí 2015
Fylgiskönnun
MMR
píratar halda fylgi sínu milli kannana en MMR kannaði
fylgi stjórnmálaflokka og stuðning við ríkisstjórnina á
tímabilinu 15. til 20. maí. Fylgi pírata mældist 32,7%,
borið saman við 32,0% í aprílkönnun MMR, og mælast
með mest fylgi allra flokka. Fylgi Sjálfstæðisflokksins
mældist 23,1%, borið saman við 21,9% í síðustu könnun.
Fylgi Samfylkingarinnar mældist nú 13,1, borið saman
við 10,7% í síðustu könnun. Fylgi Vinstri-grænna mældist
10,4%, borið saman við 10,8% í síðustu könnun. Fylgi
Framsóknarflokksins mældist 8,6%, borið saman við
10,8% í síðustu könnun og fylgi Bjartrar framtíðar
mældist 6,3%, borið saman við 8,3% í síðustu könnun.
Fylgi annarra flokka mældist undir 2%. Stuðningur við
ríkisstjórnina mældist 31,4% en mældist 30,7% í síðustu
mælingu. -jh
Aukið fé til
vegaframkvæmda
Varið verður 1,8 milljörðum króna til
brýnna framkvæmda á vegakerfi landsins
til viðbótar við þær framkvæmdir sem
áður voru fyrirhugaðar. Ríkisstjórnin hefur
ákveðið að fé til viðhaldsverkefna verði
aukið um 500 milljónir á árinu. Fénu skal
varið til viðhalds á umferðarmestu götum
á höfuðborgarsvæðinu svo og hringveg-
inum samkvæmt ástandsmati Vegagerðar-
innar. Auk þess er stefnt að framkvæmd-
um við Dettifossveg, Kjósarskarðsveg,
Uxahryggjaveg og Kaldadalsveg. Verkefnin
eru öll tilbúin til útboðs með litlum fyrir-
vara. Alls verður 1,3 milljörðum króna
varið til þessara fjögurra verkefna sem
Vegagerðin mun hafa umsjón með. -jh
Vel tengdir á
afmælisári
Kópavogsbær og Gagnaveita Reykjavíkur
undirrituðu fyrr í vikunni viljayfirlýsingu
um aukinn uppbyggingarhraða ljósleiðar-
ans í bæjarfélaginu. Allir nýir viðskipta-
vinir Gagnaveitu Reykjavíkur í Kópavogi
munu fá búnað sem ræður við 1 Gb/s
gagnahraða. Með þessu er Gagnaveitan
að koma Kópavogsbæ í fremstu röð
bæjarfélaga í fjarskiptum en 64% heimila
í Kópavogi munu í lok árs hafa aðgengi
að hraðasta interneti á Íslandi, að því er
fram kemur í tilkynningu Kópavogsbæjar.
Ljósleiðaravæðingu bæjarins lýkur síðan
fyrir lok ársins 2017 en þá munu öll heimili
í bænum hafa aðgengi að ljósleiðaranum.
Vegur um Teigsskóg
aftur í umhverfismat
Skipulagsstofnun hefur fallist á beiðni
Vegagerðarinnar um heimild til endurupp-
töku á þeim hluta úrskurðar stofnunarinnar
um mat á umhverfisáhrifum Vestfjarða-
vegar um Reykhólahrepp sem varðar leið B
í 2. áfanga. Um er að ræða rúmlega 15 km
kafla Vestfjarðavegar sem áformaður er frá
Þorskafirði og vestur fyrir Gufufjörð og fer
meðal annars um Teigsskóg, að því er fram
kemur á vef Skipulagsstofnunar. Tekist hefur
verið á um vegalagninguna árum saman.
Nyrðri hluti Dettifossvegar. Mynd
Vegagerðin
Þ að eru margar göngu- og dag-deildir lokaðar eða í algjörri lágmarksstarfsemi á Landspít-
alanum,“ segir Ólafur G. Skúlason,
formaður Félags íslenskra hjúkrunar-
fræðinga. „Svo var Rjóðrinu, sem er
hvíldar- og endurhæfingardeild fyrir
langveik og fötluð börn, lokað. Þar
að auki er Hjartagátt, bráðamóttaka
hjartveikra, lokuð. Þeir sinna líka
sjúklingum sem eiga að fara í hjarta-
þræðingar og létta líka undir hjarta-
deild ef svo ber undir. Það er heilmikil
starfsemi sem þar fer fram sem nú er
alveg stopp. Þrátt fyrir að vera bráða-
móttaka hjartveikra þá lokar deildin á
flestum rauðum dögum og um helgar
og þá lokar hún líka í verkfalli. Okkar
mat er að ef Landspítalinn telur það
ekki ógna öryggi sjúklinga að loka
þessari deild um helgar og á rauðum
dögum þá gerir það ekki heldur í
verkfalli,“ segir Ólafur en bætir við
að undanþágunefndin láti sjúklinga
alltaf njóta vafans. „Ef það kemur upp
sú staða að það þurfi að opna Hjarta-
gátt, því annars séu sjúklingar lagði
í hættu, þá myndum við væntanlega
veita þá undanþágu,“ segir Ólafur.
Engir fundir boðaðir
„Það hafa ekki enn verið boðaðir
neinir fundir,“ segir Ólafur en félagið
fundaði síðast með samninganefnd
ríkisins á þriðjudag. Nú hafa hjúkr-
unarfræðingar verið í verkfalli frá því
á miðnætti aðfaranótt miðvikudagsins
27. maí. „Staðan er auðvitað ekkert
venjuleg því það er verið að semja við
svo marga. Við höfum skilning á því
að nú sé verið að funda með BHM
þar sem þau eru búin að vera átta
vikur í verkfalli,“ segir Ólafur. Áður
en verkfallið skall á leitaði Embætti
landlæknis eftir mati stjórnenda heil-
brigðisstofnana á áhrifum yfirvofandi
verkfalls hjúkrunarfræðinga þar sem
ljóst var að margra vikna verkfall
BHM auk uppsafnaðs vanda vegna
verkfalls lækna síðastliðinn vetur hef-
ur skapað óásættanlegt ástand. Mat
stjórnenda var að neyðarástand myndi
fljótt skapast og að ekki yrði hægt að
tryggja öryggi sjúklinga.
Allt á öðrum endanum
Ólafur segir ástandið sem skapast hef-
ur sýna hversu mikilvæg hjúkrunar-
stéttin er en síðan verkfallið hófst hafa
145 undanþágur verið veittar. „Heil-
brigðiskerfið má bara ekki við því að
missa hjúkrunarfræðinga því það fer
bara allt á annan endann. En launin
er því miður ekki í samræmi við það.
Við skynjum það við samningaborðið
að það er verið að bíða eftir almenna
markaðinum en augljóslega þykir
mér undarlegt að samninganefndin
sé samt ekki kölluð saman þegar svo
háalvarlegt verkfall er í gangi.“
Samninganefnd Starfsgreinasam-
bandsins gerði samkomulag við Sam-
tök atvinnulífsins á miðvikudag um að
fresta fyrirhuguðum verkfallsaðgerð-
um um sex daga. Verkfall sem átti að
hefjast 28. og 29. maí er því frestað til
3. og 4. júní og ótímabundnu verkfalli
sem átti að hefjast 6. júní hefur verið
frestað til 12. júní. Búist er við því að
Samtök atvinnulífsins ljúki drögum að
kjarasamningi við VR, Flóabandalag-
ið, LÍV og StéttVest í dag, föstudaginn
29. maí.
Halla Harðardóttir
halla@frettatiminn.is
Hjúkrunarfræðingaverkfall engir fundir Hafa verið boðaðir
Hjartagátt lokuð vegna
verkfalls hjúkrunarfræðinga
Margar göngu- og dagdeildir eru lokaðar á Landspítalanum og Rjóðrinu og Hjartagátt hefur verið
lokað. Verkfall Félags íslenskra hjúkrunarfræðinga hefur nú staðið yfir í rúmlega tvo sólarhringa
og þykir Ólafi G. Skúlasyni, formanni félagsins, undarlegt að engir fundir hafa verið boðaðir.
Stjórnendur heilbrigðisstofnana landsins telja að öryggi sjúklinga sé ekki tryggt.
Hjartagátt, bráðamóttaka
hjartveikra, er lokuð og verða
sjúklingar að snúa sér að
slysadeild. Rjóðrinu, hvíldar- og
endurhæfingardeild fyrir lang-
veik og fötluð börn hefur líka
verið lokað sem og mörgum
göngu- og dagdeildum Land-
spítala. Ljósmynd/Hari
Hrefnuveiðar eru hafnar í
Faxaflóa við lítinn fögnuð
hvalaskoðunarfyrirtækja,
en hrefnan er sú tegund
sem ber uppi hvalaskoðun
í Faxaflóa. Hvalaskoð-
unarsamtök Íslands furða
sig á því að stjórnvöld
leyfi veiðar á þessu
stærsta hvalaskoðunar-
svæði landsins. Einhugur
ríkir um griðasvæði hvala
í Faxaflóa í borgarstjórn.
ÁgreiningsmÁl Hvalveiðar Hafnar í faxaflóa
Borgin vill griðasvæði hvala við Faxaflóa
„Það skiptir okkur mjög miklu
máli að styðja og styrkja við
innviði ferðaþjónustunnar í
Reykjavík. Það eru allir sam-
mála um það að hvalaskoðun
og hvalveiðar fari ekki saman,
allavega ekki á sama svæði,“
segir Sóley Tómasdóttir, for-
seti borgarstjórnar, en hún
fundaði með Alþjóðadýra-
velferðasjóðnum (IFAW) og
fulltrúum frá Hvalaskoðunar-
samtökum Íslands á veitinga-
staðnum Haiti við Reykjavíkur-
höfn í gær, fimmtudag. Sóley
sagði í samtali við Fréttatímann
algjöran einhug ríkja meðal
borgarfulltrúa í Reykjavík um
að það þurfi að stækka griða-
svæði hvala í Faxaflóa og vísaði
í ályktun borgarstjórnar þess
efnis frá því í desember á síð-
asta ári. Hún telur mikilvægt
að sú ályktun sé áréttuð núna
þegar bæði ferðamannatíminn
er að hefjast og líka hvalveiði-
tímabilið. „Bæði hvalveiðimenn
og hvalaskoðunarfólk er sam-
mála um það að hrefnan hefur
verið að styggjast mjög á þessu
svæði en eru kannski ekki al-
veg sammála um ástæðurnar
fyrir því. Hvalaskoðunarfólk
telur það vera vegna aukinna
veiða en hvalveiðimenn halda
öðru fram. Það er þó ljóst að
það er erfiðara að finna hrefn-
una og að hún er styggari. Það
hefur sýnt sig að griðasvæði
hvala skapa dýrunum rólegri
og betri aðstæður og tryggja
betur vöxt og viðgang tegund-
anna. Langbest væri ef Faxaflói
yrði gerður að griðasvæði með
öllu.“ -hh
2 fréttir Helgin 29.-31. maí 2015