Fréttatíminn - 29.05.2015, Page 6
– fyrir lifandi heimili –
R e y k j a v í k o g A k u r e y r i
E I T T S Í M A N Ú M E R 5 5 8 1 1 0 0
w w w . h u s g a g n a h o l l i n . i s
ÚTSALA
Sumar3
60%
ALLT AÐ
AFSLÁTTUR
MARS&MORE púðar
MIKIÐ ÚRVAL – 50% AFSLÁTTUR
ÚTSALA
Sumar3
FRÁ 2.495
FULLT VERÐ FRÁ:
4.990 KR.
BLAISE barborð
58% AFSLÁTTUR
ÚTSALA
Sumar3
14.990
FULLT VERÐ: 34.990
KRÓNUR
IVV skálasett
30% AFSLÁTTUR
Glerskálar í setti
með sex mismunandi litum.
ÚTSALA
Sumar3
11.193
FULLT VERÐ: 15.990
KRÓNUR
Hall dór Ásgríms son, fyrr ver andi
for sæt is ráðherra og formaður
Framsóknarflokksins, var bor inn
til hinstu hvílu í gær. Útför hans
var gerð frá Hall gríms kirkju. Séra
Pálmi Matthíasson jarðsöng Hall-
dór og sagði meðal annars: „Hall-
dór Ásgrímsson var klettur í haf-
inu - ekki óumdeildur í dagsins önn
en þegar kom að trausti, tryggð og
trúmennsku vissu allir, samherjar
sem mótherjar, fyrir hvað hann
stóð.“
Kist una báru, frá vinstri: Sig-
mund ur Davíð Gunn laugs son
for sæt is ráðherra, Finn ur Ing-
ólfs son, fyrr ver andi ráðherra,
Jón Kristjáns son, fyrr ver andi
heil brigðisráðherra, Ein ar K.
Guðfinns son, for seti Alþing is,
Davíð Odds son, fyrrum forsætis-
ráðherra og núverandi rit stjóri
Morg un blaðsins, Guðmund ur
Bjarna son, fyrr verandi ráðherra,
Jón Sveins son lögmaður og Helgi
Ágústs son sendi herra.
Halldór Ásgrímsson
jarðsunginn
Ljósmynd/Hari
Nauðsynlegt er að efla forvarnir og fræðslu um ofþjálfun ungmenna. Helstu einkenni ofþjálfunar geta verið líkamleg, andleg og
félagsleg.
Íþróttir Efla þarf forvarnir og fræðslu
Ný rannsókn bendir til að ofþjálfun í íþróttum sé klínískt vanda-
mál meðal íslenskra ungmenna. Íþróttaþjálfarar og sjúkraþjálf-
arar telja nauðsynlegt að efla forvarnir og fræðslu meðal iðk-
enda, foreldra, þjálfara og sjúkraþjálfara. Rannsóknin er hluti af
útskriftarverkefni Þóru Hugósdóttur og Ágústu Ýrar Sigurðar-
dóttur við heilbrigðisvísindasvið Háskóla Íslands, en sambæri-
leg könnun hefur ekki verið framkvæmd hér á landi áður.
v ið höfðum tilfinningu fyr-ir því að það væri ákveð-ið vandamál til staðar og
fannst spennandi að rannsaka þetta,
enda aldrei verið gert fyrr á Íslandi
og auk þess er almennt lítið fjallað
um þessi mál hér á landi,“ segir
Ágústa Ýr Sigurðardóttir, sem vann
rannsókn á ofþjálfun ungmenna
ásamt Þóru Hugósdóttur. Ágústa og
Þóra eru báðar menntaðir sjúkra-
þjálfarar en rannsóknin er hluti af
útskriftarverkefni þeirra við heil-
brigðisvísindasvið Háskóla Íslands.
Markmið hennar var að skoða hvort
íþróttaþjálfarar og sjúkraþjálfarar
telji ofþjálfun hafa verið klínískt
vandamál meðal ungmenna á aldr-
inum 13 til 18 ára í íþróttum á Ís-
landi síðustu 12 mánuði.
Vantar forvarnir og fræðslu
Spurningalistar voru lagðir fyrir
þjálfara sem þjálfa fimleika, frjálsar
íþróttir, handknattleik, knattspyrnu
og sund, og fyrir sjúkraþjálfara á
verktakaskrá Félags sjúkraþjálfara.
Helstu niðurstöður könnunarinnar
eru að ofþjálfun meðal íslenskra
ungmenna er klínískt vandamál, að
mati sjúkraþjálfara og þjálfara og
meirihluti þátttakenda telur fræðslu
og fovarnarstarfi vegna ofþjálfunar
vera ábótavant.
„Það þarf klárlega að efla forvarn-
ir og fræðslu í þessum efnum, bæði
meðal iðkenda, foreldra, þjálfara og
sjúkraþjálfara,“ segir Ágústa. „Það
verður að vera teymi í kringum
barnið sem er í þjálfun og samtal á
milli allra aðila.“
Svefnvandamál og minnkuð
matarlyst meðal einkenna
Ágústa bendir á að foreldar og
þjálfarar eigi að fylgjast með þeim
tíu einkennum sem börn sýna séu
þau undir of miklu andlegu eða
líkamlegu álagi. Einkennin eru
skert frammistaða í keppni miðað
við væntingar, aukin fyrirhöfn við
æfingar, þreyta, minnkuð matar-
lyst, óútskýrt þyngdartap, svefn-
vandamál, minni áhugahvöt, ójafn-
vægi í lyndi, einkenni þynglyndis
og krónískir stoðkerfisverkir. „Þeir
þjálfarar og sjúkraþjálfarar sem við
unnum með voru sammála okkur
um að þetta væru helstu einkenni
ofþjálfunar. Þetta eru hlutir sem
verður að fylgjast með, sérstaklega
þegar börn eru að æfa oft í viku og
jafnvel fleiri en eina íþróttagrein.
Þetta eru bæði líkamleg og and-
leg einkenni en þau geta líka orðið
félagsleg. Hluti af forvarnarstarf-
inu væri að efla vitund fólks um
þessi einkenni.“
Halla Harðardóttir
halla@frettatiminn.is
Ofþjálfun vandamál
meðal ungmenna
Ágústa Ýr Sigurðardóttir.
6 fréttir Helgin 29.-31. maí 2015