Fréttatíminn - 29.05.2015, Qupperneq 8
MEXICO,
GUATEMALA &
BELIZE
Á SLÓÐIR MAYA INDÍÁNA
4. - 19. OKTÓBER
Verð kr. 568.320.-
Innifalið í verði: Flug, hótel, allar ferðir, skattar og íslenskur fararstjóri
Við kynnumst stórkostlegri náttúru, dýralífi og hinum forna
menningarheimi Maya indíána. Skoðum m.a. píramída, gamlar
menningaborgir, syndum í sjónum við næst stærsta kóralrif heims
og upplifum regnskóginn. Endum svo álúxus hóteli við Karabíska,
þar sem allt er innifalið.
Af þeim gjaldþrotum hluta- og
einkahlutafélaga sem orðið hafa
frá árinu 1998 eru 49,6% þeirra 6
ára eða yngri og 34,3% eru 7-12 ára.
Einungis 16% félaga voru 13 ára eða
eldri þegar þau fóru í þrot, að því er
fram kemur hjá Hagstofu Íslands.
Ef aldur hluta- og einkahluta-
félaga sem hafa verið tekin til gjald-
þrotaskipta á árinu 2014 er skoð-
aður, þá sést að 9,1% félaga eru 1-3
ára, 23,7% eru 4-6 ára og 30,6% eru
7-9 ára gömul.
Gjaldþrot einkahlutafélaga síð-
ustu 12 mánuði, frá maí 2014 til
apríl 2015, hafa dregist saman um
20% samanborið við 12 mánuði þar
á undan. Alls voru 769 félög tekin til
gjaldþrotaskipta á tímabilinu. Gjald-
þrotum í flokknum Fjármála- og vá-
tryggingastarfsemi hefur fækkað
mest, eða um 22% á síðustu 12 mán-
uðum.
Nýskráningum einkahlutafélaga
síðustu 12 mánuði, frá maí 2014 til
apríl 2015, hefur fjölgað um 8% sam-
anborið við 12 mánuði þar á und-
an. Alls voru 2.107 ný félög skráð
á tímabilinu. Mest er fjölgun ný-
skráninga í flokknum Sérfræðileg,
vísindaleg og tæknileg starfsemi,
44% á síðustu 12 mánuðum. -jh
Hlutafélög Nýjar tölur Hjá HagstofuNNi
Gjaldþrot tíð á fyrstu árunum
g reining Íslandsbanka gerir ráð fyrir því í nýrri þjóð-hagsspá að hagvöxtur
verði hóflegur á næstu tveimur
árum. Gert er ráð fyrir að hag-
vöxtur verði 4% á þessu ári, 3,7% á
árinu 2016 og 2,4% árið 2017.
Hagur heimilanna mun, sam-
kvæmt spánni, halda áfram að
vænkast næstu misserin með
auknum kaupmætti, minna at-
vinnuleysi og hækkun eignaverðs.
Einkaneysla mun vaxa um 3,8% að
jafnaði á næstu þremur árum og
fjárfestingar heimila í íbúðarhús-
næði munu vaxa næstu þrjú árin
eða um 18,5% í ár,16,3% á næsta ári
og 11% árið 2017. Gert er ráð fyrir
7,0% raunverðshækkun íbúðarhús-
næðis á þessu ári, 3,4% á næsta ári
og 1,9% árið 2017.
Efnahagsumhverfi fyrirtækja
hefur batnað undanfarin ár,
m.a. með aukinni innlendri sem
erlendri eftirspurn og bættum
viðskiptakjörum. Reiknað er með
því að umhverfi þeirra muni halda
áfram að styrkjast. Því er spáð að
fjárfestingar atvinnuveganna auk-
ist á næstunni og er gert ráð fyrir
16,9% vexti í ár, 18,8 á næsta ári en
einungis 1,7 vexti árið 2017.
Gert er ráð fyrir góðum vexti
í útflutningi á vöru og þjónustu
á tímabilinu, m.a. vegna vaxtar
í ferðaþjónustu og útflutningi
sjávarafurða. Spáir deildin 4,7%
vexti útflutnings í ár, 3,4% á næsta
ári og 3,5% árið 2017. Þrátt fyrir
góðan útflutningsvöxt er gert ráð
fyrir hraðari vexti innflutnings á
tímabilinu og verður framlag utan-
ríkisviðskipta til hagvaxtar nei-
kvætt á tímabilinu. Afgangur vöru-
og þjónustuviðskipta minkar.
Gengi krónunnar verður stöðugt
en flökt gengisins mun aukast
samhliða þeim skrefum sem hugs-
anlega verða tekin á tímabilinu í
afnámi fjármagnshafta. Gert er
ráð fyrir að raungengi krónunnar
muni hækka á tímabilinu vegna
mikillar innlendrar kostnaðarverð-
hækkunar og aukinnar innlendrar
verðbólgu.
Sú hagfellda verðbólguþróun
sem hefur hér undanfarið mun
taka enda á næstunni og verðbólga
mun færast í aukana. Spáð er að
verðbólga verði að jafnaði 1,9% á
yfirstandandi ári, 3,6% á því næsta
og 3,7% árið 2017.
Greining Íslandsbanka spáir því
að peningastefnunefnd Seðlabank-
ans bregðist við versnandi verð-
bólguhorfum, launahækkunum og
aukinni spennu í hagkerfinu með
hækkun stýrivaxta bankans um 1
prósentustig fyrir lok þessa árs,
um annað prósentustig á næsta ári
og um 0,5 prósentur á árinu 2017.
Jónas Haraldsson
jonas@frettatiminn.is
EfNaHagsmál grEiNiNg ÍslaNdsbaNka
Hóflegur hagvöxt-
ur næstu tvö ár
Bættur hagur heimila og fyrirtækja en verðbólgudraugurinn
rumskar.
Í þjóðhagsspánni er gert ráð fyrir vexti í útflutningi á vöru og þjónustu, m.a. vegna
vaxtar í ferðaþjónustu og útflutningi sjávarafurða.
Efstiás 22 í Svínadal
HVALFJARÐARSVEIT
Fallegt og fullbúið sumarhús á mjög góðum
stað við Eyrarvatn í Svínadal Hvalfjarðarsveit
aðeins í 45 mín akstri frá höfuðborgarsvæðinu.
Húsið stendur í suðurhlíð á 7,300 fm enda-
leigulóð með fallegu útsýni yfir vatnið. Lóðin er
mjög gróin með 63 fm verönd. Steypt plata með
gólfhita. Þrjú svefnherbergi og gestahús.
Eldhús og stofa eitt opið rými með gegnheilu
eikarparketi. Baðherbergi með sturtu og útgengi
út á verönd með heitum potti. Hitaveita á
staðnum.
Heimilt er að byggja annan bústað og tvö
gestahús á lóðinni sem er tilvalið til útleigu í
ferðaþjónustu.
STÆRÐ: 85 FM SUMARHÚS HERB: 5
23.900.000
Heyrumst
Þórunn Gísladóttir
Löggiltur fasteignasali
510 7900
thorunn@fastlind.is
Heyrumst
Jóhanna Gústavsdóttir
Sölufulltrúi
698 9470
johanna@fastlind.is
OPIÐ HÚS 31. maí 15:00 – 16:00
Helgin 29.-31. maí 2015