Fréttatíminn - 29.05.2015, Blaðsíða 9
FLUTTIR
Velkomin í einn stærsta sýningarsal
notaðra bíla á landinu að Kletthálsi 13.
Enn betri þjónusta í enn betra umhverfi.
HeklaNotadirBilar.is
Klettháls 13
590 5040
VW Bjalla
Turbo Sport 200 hö
5.950.0002014
6
30
Audi A4
Avant 2.0 TDI
5.390.0002012
29
Mercedes-Benz
E200 CGI
4.980.0002009
68
Skoda Octavia
Combi 1,6 AT
3.290.0002013
120
Hyundai I30
Comfort Wagon
2.190.0002009
88
Ekinn þús. km.
Myndir á vef
Dísil
Fjórhjóladrif
Metan & bensín
Sjálfskiptur
Beinskiptur
Rafmagnsbíll
Toyota Auris
1400 Sol MM
1.890.0002008
80
Ágúst Bjarni Garðarsson.
Stjórnmál ráðinn í atvinnuvegaráðuneytið
Ágúst aðstoðar Sigurð
Ágúst Bjarni Garðarsson hefur
verið ráðinn aðstoðarmaður
Sigurðar Inga Jóhannssonar
sjávarútvegs- og landbúnaðarráð-
herra, að því er fram kemur á síðu
atvinnuvega- og nýsköpunarráðu-
neytisins. Ágúst hefur starfað sem
stundakennari, verkefnisstjóri og
nú síðast á skrifstofu utanríkis-
ráðherra. Hann lýkur meistara-
prófi í verkefnastjórnun (MPM)
frá Háskólanum í Reykjavík í
næsta mánuði. Ágúst er í sambúð
með Áslaugu Maríu Jóhannsdóttur
sálfræðinema og saman eiga þau
dreng.
t il að tryggja að íslensk nátt-úra og öflug ferðaþjónusta geti blómstrað samtímis
hefur ríkisstjórnin samþykkt að
verja í sumar 850 milljónum króna
til brýnna uppbyggingar- og vernd-
araðgerða á ferðamannastöðum
sem eru í eigu eða umsjón ríkisins,
að því er fram kemur á síðu um-
hverfis- og auðlindaráðuneytisins.
Þar segir að íslensk náttúra hafi
lagt grunninn að öflugri ferða-
þjónustu, sem nú skapar meiri
gjaldeyristekjur fyrir þjóðarbúið
en nokkur önnur atvinnugrein.
„Vöxtur greinarinnar hefur skapað
mörg tækifæri, en einnig áskoran-
ir vegna mikillar ásóknar ferða-
fólks á viðkvæm náttúrusvæði,“
segir enn fremur.
Ráðist verður í 104 verkefni á 51
stað á landinu, auk þess sem við-
bótarfé verður varið til aukinnar
landvörslu um allt land. Hæsta
upphæðin, 160 milljónir króna, fer
í framkvæmdir í Skaftafelli. Fram-
kvæmt verður fyrir 156,5 millj-
ónir á Þingvöllum, 50 milljónir við
Geysi, 38,5 milljónir í Dimmuborg-
um, 34,5 milljónir við Dynjanda,
34 milljónir við Gullfoss, 31 milljón
við Dyrhólaey, 30 milljónir við
Stöng í Þjórsárdal og 25 milljónir
við Dettifoss. Megináhersla er
lögð á framkvæmdir vegna göngu-
stíga, útsýnispalla, bílastæða og
salernisaðstöðu.
Fyrirliggjandi framkvæmda-
áætlun fyrir þetta ár var unnin í
samstarfi forsætisráðherra, iðn-
aðar- og viðskiptaráðherra og um-
hverfis- og auðlindaráðherra. -jh
Mest framkvæmt á
ásetnustu stöðunum
Ríkisstjórnin hefur samþykkt að verja 850 milljónum króna til
að vernda ferðamannastaði í eigu og umsjón ríkisins.
Í sumar verða lagðar 850 milljónir króna til uppbyggingar- og verndaraðgerða á
ferðamannastöðum í eigu ríkisins.
FerðamennSka 850 milljónum úthlutað
Helgin 29.-31. maí 2015