Fréttatíminn - 29.05.2015, Blaðsíða 10
M Meginlínur hafa verið lagðar í kjarasamning-um almennt með þeim samningsdrögum sem lágu fyrir, þegar blaðið fór í prentun í gær, fimmtudag, milli VR, LÍV, Flóafélaganna og
StéttVest annars vegar og Samtaka atvinnu-
lífsins hins vegar. Samningarnir, gangi allt
eftir, fara síðan í atkvæðagreiðslu félags-
manna en forystumenn beggja vegna borðs
hafa lýst því yfir að forsendur samningsins
séu kaupmáttaraukning. Með samningunum
sé farið fram með ábyrgum
hætti, að stöðugleiki haldist án
mikillar verðbólgu. Samið er
til langs tíma, til ársloka 2018,
en aðaláherslan lögð á hækkun
lægri launa og að verja milli-
tekjur. Samningurinn gerir ráð
fyrir að 300 þúsund króna lág-
markstekjutrygging náist innan
þriggja ára. Aðkoma ríkisins að
kjarasamningunum var enn til
umfjöllunar í gær.
Framkvæmdastjóri Samtaka atvinnulífsins
segir að tíminn muni leiða í ljós áhrif samn-
ingsins á verðbólgu. Samningurinn muni
reyna talsvert á þolmörk fyrirtækja til launa-
hækkana en hann metur það svo að um skyn-
samlega lendingu hafi verið að ræða og góðar
líkur á því að samningurinn leiði til kaupmátt-
araukningar.
Þegar til lands sást í samningagerðinni
frestuðu ofangreind stéttarfélög boðuðum
verkföllum sínum um fimm daga. Þótt verk-
föllum þessara félaga hafi ekki verið aflétt,
vegna atkvæðagreiðslunnar sem fram und-
an er, ríkir þó bjartsýni um að aðilar sjái sér
hag í þeim samningi sem fyrir liggur og ekki
komi til verkfallanna. Slíkt allsherjarverkfall
hefði alvarlegar afleiðingar í för með sér og
stórkostlegan samfélagslegan skaða. Því er
afstaða samningsaðila ábyrg.
Hið sama á við um Starfsgreinasambandið
en samninganefnd þess gekk á miðvikudag-
inn frá samkomulagi við Samtök atvinnulífs-
ins um að fresta verkföllum um sex daga. Í til-
kynningu Starfsgreinasambandsins sagði að
ljóst væri að viðræður væru hafnar af fullum
þunga og því væri það mat samninganefndar-
innar að gefa tíma til að reyna til þrautar að ná
samningum. Fram kom að kröfugerð Starfs-
greinasambandsins væri sem fyrr grundvöllur
áframhaldandi viðræðna en líklegt má telja að
samningar sambandsins og Samtaka atvinnu-
lífsins fari í svipaðan farveg og samningur-
inn við hin stóru stéttarfélögin. Meginkrafa
Starfsgreinasambandsins var að ná 300 þús-
und króna lágmarkslaunum innan samnings-
tímans – líkt og fyrir liggur í samningi hinna.
Óþolandi ástand er hins vegar að skapast
þegar litið er til hins þáttar vinnumarkaðar-
ins, það er að segja hins opinbera. Nokkrar
stéttir BHM hafa verið í verkfalli í nær tvo
mánuði, meðal annarra stéttir í heilbrigðis-
kerfinu. Í vikunni bættust hjúkrunarfræðing-
ar í verkfallshópinn og gerbreyttu stöðunni.
Verkfall lækna á liðnum vetri, heilbrigðisstétta
innan BHM undanfarnar vikur og nú hjúkr-
unarfræðinga hafa sett heilbrigðiskerfið úr
skorðum. Ástandinu á Landspítalanum er lýst
með þeim hætti að nú sé þar aðeins sinnt lífs-
bjargandi þjónustu. Loka hefur þurft deildum
og senda sjúklinga heim. Læknaráð spítalans
segir ástandið fordæmalaust og áhrif verkfall-
anna á sjúkrahúsið séu gríðarleg. Óásættan-
leg töf hafi orðið á öllum þáttum í meðhöndl-
un sjúklinga og uppsafnaður verkefnalisti sé
langur. Landlæknir gengur enn lengra og
segir verkfall hjúkrunarfræðinga ofan á önn-
ur verkföll í heilbrigðiskerfinu stofna lífi og
heilsu sjúklinga í hættu. Ekkert heilbrigðis-
kerfi þoli svona ástand.
Í þeirri stöðu sem við erum nú sér land-
læknir ekki fram á það að öryggi sjúklinga
verði tryggt. Við slíkt ástand verður ekki
unað. Ábyrgð deiluaðila er því þung. Líf og
heilsa fólks vegur þyngra en rétturinn til þess
að leggja niður störf í kjarabaráttu. Því hljóta
menn að greiða úr þessari flækju áður en hún
verður óleysanleg. Landlæknir segir að ein-
ungis Alþingi geti greitt úr deilunni ef ekki
semst í kjaradeilunni. Leið lagasetningar er
hins vegar neyðarúrræði sem varla er í þágu
deilenda. Þeir hljóta því að hysja upp um sig
buxurnar og leysa heilbrigðiskerfið úr her-
kvínni – og sama gildir um aðrar stéttir BHM
sem vikum saman hafa verið í verkfalli. Greiða
þarf úr sérmálum hverrar stéttar en fyrir ligg-
ur að heildarkjaralínur hafa verið lagðar.
Almennur og opinber vinnumarkaður
Meginlínur hafa verið lagðar
Jónas Haraldsson
jonas@frettatiminn.is
LóABORATORíUM LóA hjáLMTýsdóTTiR
Sætúni 8, 105 Reykjavík. Sími: 531 3300. ritstjórn@frettatiminn.is Ritstjóri: Jónas Haraldsson jonas@frettatiminn.is Fréttastjóri: Höskuldur
Daði Magnússon hdm@frettatiminn.is. Auglýsingastjóri og stjórnarformaður: Valdimar Birgisson valdimar@frettatiminn.is. Framkvæmdastjóri: Teitur Jónasson teitur@
frettatiminn.is. Fréttatíminn er gefinn út af Morgundegi ehf. og er prentaður í 82.000 eintökum í Landsprenti. VÍKURHVARF 6 • 203 KÓPAVOGUR • SÍMI 557 7720 • WWW.VIKURVERK.IS
FamilyCamp er íslenskur tjaldvagn sem er hannaður og
smíðaður til að standast íslenskar aðstæður. Kassinn á
FamilyCamp er smíðaður úr trefjaplasti með 15 mm
einangrun í hliðum og 10 mm í loki. Undir rúmi er geymsla og
hægt er að lyfta rúmbotni upp til að komast í hana en geymslan
virkar einnig sem einangrun undir rúmi. Seglið er saumað úr
100% bómull sem gerir FamilyCamp einstaklega
hlýjan og notalegan. FamilyCamp er með svefnpláss fyrir fjóra
í tveimur herbergjum. FamilyCamp er léttur aðeins 310 kg. en
með burðargetu upp á 240 kg. hann er á galvaniseraðri grind
með AL-KO flexitorum og 13” felgum. Það tekur ekki nema
örfáar mínútur að reisa vagninn og setja upp fortjaldið.
Verð kr. 1.470.000,- með fortjaldi.
ALICANTE f rá
Tímabil: júní, september og október
10.999 kr.*
AFMÆLISTILBOÐ - TAKMARKAÐ MAGN Í BOÐI!
* Aðeins bókanlegt á wowair.is. Verð miðast við flug aðra leið ásamt sköttum & gjöldum.
5 kg handfarangur innifalinn.
BILLUND f rá
Tímabil: júní
7.999 kr.
AFMÆLISTILBOÐ - TAKMARKAÐ MAGN Í BOÐI!
* Aðeins bókanlegt á wowair.is. Verð miðast við flug aðra leið ásamt sköttum & gjöldum.
5 kg handfarangur innifalinn.
*
10 viðhorf Helgin 29.-31. maí 2015