Fréttatíminn - 29.05.2015, Page 12
11 kg2 kg 5 kg 10 kg
Smellugas er einfalt,
öruggt og þægilegt!
Gas fyrir grillið,
útileguna og
heimilið
Vinur við veginn
É g byrjaði ung að læra á fiðlu og tónlist hefur alltaf verið hluti af mínu lífi,“ segir tón-
listarkonan Ingibjörg Friðriksdótt-
ir sem hlaut á dögunum Fulbright
styrk til að stunda framhaldsnám í
tilrauna-tónsmíðum við Mills-Col-
lage í San Fransisco.
Auk þess að læra á fiðlu hefur
Ingibjörg alltaf verið í kór og
stundað söngnám meðfram námi
og tók burtfararpróf frá Söngskól-
anum í Reykjavík á sama tíma og
hún lauk stúdentsprófi frá Verzl-
unarskólanum. „Í gagnfræðaskóla
fór áhuginn á klassískri tónlist að
minnka og þá færði ég mig yfir á
djass- og rokkbrautina í FÍH. Ég
var alltaf á fullu bæði í skólanum,
söngnum og á fiðlunni en þegar
ég byrjaði í Versló þurfti ég að
minnka aðeins við mig svo ég gæti
líka tekið einhvern þátt í félags-
lífinu. En svo lenti mamma mín í
hestaslysi þegar ég var á öðru ári
og eftir það breyttist allt,“ segir
Ingibjörg.
Fullfær um að gera alla hluti sjálf
Ingibjörg Friðriksdóttir hefur
starfað við tónlist síðan hún
útskrifaðist úr tónsmíðum
frá Listaháskóla Íslands fyrir
tveimur árum en hún hlaut
nýverið Fulbright styrk til að
stunda framhaldsnám í til-
rauna-tónsmíðum. Ingibjörg
hefur reynt margt um ævina
þrátt fyrir frekar ungan aldur.
Hún hefur ferðast um tvær
heimsálfur, hannað fatalínu
og rekið hótel auk þess að
gera tilraunir með tónlist og
koma fram sem djasssöng-
kona. Aðeins 18 ára gamalli
tókst henni að fjármagna
tækjakaup fyrir Grensás,
endurhæfingardeild Land-
spítalans, þar sem móðir
hennar dvaldist áður en hún
lést eftir alvarlegt slys.
fór í endurhæfingu. Þar var hún í
eitt og hálft ár eða þar til hún lést
árið 2008. Mamma var dómstjóri í
Héraðsdómi Reykjaness þegar hún
lenti í slysinu og var fyrsta konan
til að gegna því embætti á Íslandi,“
segir Ingibjörg stolt. „En hún var
líka mikil listakona. Eftir að hún
lamaðist fór hún að mála með
munninum og var fyrsta manneskj-
an til að gera það á Íslandi. Vinur
hennar og listamaðurinn Derek
Mundell hjálpaði mömmu við að
ná tækninni og seinna vann hann
með Eddu Heiðrúnu Backman
en mamma arfleiddi hana að öllu
málningadótinu sínu þegar hún dó.“
Safnaði 5 milljónum fyrir
Grensás
„Mamma var með ótrúlegan vilja-
styrk sem smitaði alla í kringum
hana, líka mig og ég held að það
hafi verið hennar kraftur sem gaf
mér kraft til að standa ein að risa-
stórri fjáröflun þegar ég var bara 18
ára. Ég sé núna eftir á hversu galið
þetta var. Ég hafði verið að hanna
og sauma frá því ég var lítil og ég
ákvað að hanna fatalínu og selja svo
fötin til að ná að safna fyrir tæki
sem hjálpar lömuðu fólki við endur-
hæfingu.
Ég var í raun bara að leita eftir
öllum mögulegum leiðum sem
gætu aðstoðað mömmu við endur-
hæfinguna og auðvitað annað fólk í
leiðinni. Ég var daglegur gestur hjá
mömmu á meðan hún var á Grens-
ásdeildinni og það eru algjör for-
réttindi að hafa fengið að kynnast
starfseminni þar og mig langar að
nota tækifærið hér og benda á tón-
leikana á laugardaginn í Háskóla-
bíói sem eru til styrktar deildinni,“
segir Ingibjörg sem skipulagði ein
síns liðs tískusýningu í Saltfélag-
inu og var með uppboð á Myspace
og náði á endanum að safna þeim 5
milljónum sem þurfti til að kaupa
tækið. „Þetta var nú allt mikið til
mömmu að þakka því hún gaf mér
eitt besta veganesti sem hægt er að
fara út í lífið með. Hún kenndi mér
að bíða aldrei eftir því að aðrir geri
hlutina fyrir þig. Þú ert fullfær um
að gera hlutina sjálf.“
Fann sína leið í Asíu
„Tíu dögum eftir sýninguna dó
mamma og það var mikið áfall. Við
bjuggumst aldrei við því að hún
myndi fara því Grensás er auð-
vitað endurhæfingarstöð þar sem
maður býst við að sjá framfarir,“
segir Ingibjörg sem hélt áfram í
skólanum eftir áfallið. Það var ekki
fyrr en eftir útskrift úr Verzlunar-
skólanum og Tónlistarskólanum
sem hún ákvað að taka sér frí og
ferðast til Asíu með vinkonum
sínum.
„Ég tók líka að mér ýmis sauma-
verkefni með náminu en fékk
samt fljótlega leið á þeirri vinnu
þar sem að ég var saumakona að
framkvæma hugmyndir annarra,
en ekki hönnuðurinn. Þess vegna
hætti ég því og í dag sauma ég að-
allega á sjálfa mig. Eftir ferðalagið
til Asíu vissi ég að mig langaði í
meira tónlistarnám því ég hef alltaf
haft brennandi áhuga á tónlist en
mig langaði ekki að halda áfram í
klassísku söngnámi. Ég vissi líka
eftir alla þessa reynslu með tísku-
sýninguna að fyrir mig er mikil-
vægt að fá að skapa sjálf svo ég
endaði með að sækja um í Listahá-
skólanum.“
Með sjötíu bolta á lofti í einu
Ingibjörg ákvað að fara á nýmiðla-
braut, auk almennu brautarinnar,
og halda áfram í söngnáminu líka.
Hún segir Listaháskólann hafa
opnað sér nýjar víddir og kennar-
ana þar veitt sér mikinn innblástur.
„Ég kynntist þarna alveg nýrri teg-
und af tónlist og kennarinn minn á
síðasta ári, Jesper Pedersen, hafði
mikil áhrif á mig. Hann kom mér
inn í „Fengjastrút“ sem er hópur
tónskálda sem flytur verk sem
krefjast óhefðbundinnar túlkunar.
Við höfum meðal annars tekið þátt
í „Tectonics“ og „Jaðarber“,“ segir
Ingibjörg sem hellti sér út í ýmis
verkefni fljótlega eftir útskrift og
hefur verið virk í sköpun og tón-
leikahaldi síðan auk þess að hafa
gengið í hin ýmsu störf á hótelum
föður síns, þar á meðal verið hótel-
stjóri á Hótel Hálandi.
Hún hefur sungið mikið með
djasslistamönnum, samið tónlist
fyrir stuttmyndir auk þess að
hafa tekið þátt í „Myrkum músík-
dögum“ og fengið mikið lof fyrir,
meðal annars hjá tónlistargagn-
rýnanda The Times. „Það eru
allskonar misjöfn verkefni í gangi
hjá mér og ég held að leiðin til að
geta starfað sem tónlistarmaður
sé að vera með sjötíu bolta á lofti
í einu.“
Komst inn í fimm skóla
„Það sem ég hef mikinn áhuga
á, og það sem ég fjallaði um í
útskriftarverkinu mínu, eru
tækifæri og takmarkanir virkrar
nótnaskriftar (animated notation)
en það er öll nótnaskrift sem er
varpað á skjá, oft keyrð af tölvu-
forriti. Þetta er í raun ný tegund
af nótnaskrift og það sem heillar
mig er hvaða nýju möguleikar geta
skapast við að nota tækni í tónlist,“
segir Ingibjörg sem fer öll á flug
þegar hún ræðir um þessi mál.
Tónlistin er augljóslega ekki
bara vinnan hennar heldur miklu
frekar ástríða og kannski ekki
skrítið að henni hafi verið úthlutað
Fulbright styrk til að nema þessi
tengsl tónlistar og tækni frekar í
Bandaríkjunum. „Ég er ótrúlega
þakklát fyrir þennan styrk og það
kom mér skemmtilega á óvart að
vera valin, að nefndin hafi ákveðið
að styrkja mig í framhaldsnám í
tilraunatónlist, því það er alls ekki
allra og kannski fáir partur af þeim
heimi. Ég sótti um í fimm skólum
og komst inn í alla en valdi þennan
í San Fransisco því ég er mjög
spennt fyrir honum en svo er ég
líka viss um að San Fransisco sé
góður staður.
Ég tók mér smá frí eftir útskrift-
ina fyrir tveimur árum og ferðaðist
um Suður-Ameríku og heillaðist
af menningunni þar. Ég held það
verði gott að vera í Kaliforníu
því hún er nálægt Mexíko sem
ég stefni á að heimsækja. Svo er
borgin mjög evrópsk og örugglega
full af spennandi tækifærum.“
Halla Harðardóttir
halla@frettatiminn.is
Ingibjörg Friðriksdóttir í stúdíóinu sínu, sem hún smíðaði sjálf. Ingibjörg fékk nýlega Fulbright styrk til að nema tilraunatónlist í San Fransisco. Hún flytur út í haust og bíður
spennt nýrra ævintýra.
Slysið sem breytti öllu
Móðir Ingibjargar hét Ólöf Péturs-
dóttir en faðir hennar er Friðrik
Pálsson, oft kenndur við Hótel
Rangá. Ingibjörg segir fjölskylduna
hafa verið mjög samrýmda. „Við
höfðum verið í hestunum síðan
ég man eftir mér og við, mamma,
pabbi og ég, vorum í útreiðartúr
þegar hesturinn hennar mömmu
hnaut og hún datt af baki með þeim
afleiðingum að hún hálsbrotnaði.
Hún lamaðist fyrir neðan háls og
var lögð inn á Grensás þar sem hún
12 viðtal Helgin 29.-31. maí 2015