Fréttatíminn - 29.05.2015, Side 22
A ron Einar Gunnarsson landsliðsfyrirliði tók á móti blaðamanni með soninn Óli-
ver Breka, sem fæddist fyrir tveim-
ur mánuðum, á flúruðum arminum
á heimili tengdaforeldra sinna á
Álftanesi. Aron og unnusta hans,
Kristbjörg Jónasdóttir, hafa verið
saman í um tvö ár og búa saman í
Cardiff, höfuðborg Wales, þar sem
Aron spilar með heimaliðinu. Við
setjumst niður og Aron svæfir son-
inn á arminum á meðan við tölum
saman. Hann er greinilega mjög
ánægður með hlutskipti sitt í þess-
um aðstæðum.
Aron er búinn að vera í fríi síðan
2. maí þar sem Cardiff náði ekki að
komast í umspil um sæti í ensku úr-
valsdeildinni á næstu leiktíð. Hann
hefur verið mikið til heima á Íslandi
síðan og æfir með Breiðabliki þang-
að til landsliðið hittist í byrjun júní
og hefur undirbúninginn fyrir leik-
inn gegn Tékkum, þann 12. júní, af
alvöru.
Vanur barnastússi
„Við ætluðum okkur upp, og vorum
með háleit markmið,“ segir Aron.
„En einhvern veginn klikkaði þetta,
eins og gengur og gerist. Sem er
ekki óalgengt hjá liðum sem eru
nýkomin niður úr úrvalsdeildinni,“
segir hann. „Þetta er erfið deild og
mikil keyrsla. Hún er erfiðari lík-
amlega en úrvalsdeildin þó þar séu
meiri gæði. Það er best í heimi að
koma heim til Íslands eftir svona
langt tímabil eins og er í þessari
deild,“ segir Aron sem spilaði nán-
ast alla leiki Cardiff á tímabilinu.
„Sérstaklega þegar maður er kom-
inn með svona lítinn prins eins og
þennan,“ segir hann og horfir aðdá-
unaraugum á frumburðinn í fang-
inu.“
Hvernig gengur föðurhlutverkið?
„Bara mjög vel. Ég er nokkuð
vanur því að passa þar sem ég á 12
frændsystkini og systur mínar voru
alltaf mjög duglegar við það að fá
mig til þess að passa börn í gamla
daga, svo ég fór ekki alveg í djúpu
laugina,“ segir Aron. „Þetta gengur
bara vel og hann er mjög góður og
lítið hægt að kvarta. Það er samt
svolítið spes að vera allt í einu kom-
inn með eitthvað líf í hendurnar
sem maður þarf að bera ábyrgð á,“
segir hann. „Þetta er mitt blóð og
maður hefur kannski aðeins meiri
þolinmæði fyrir sínu eigin en ann-
arra. Ég viðurkenni það að ég lít á
lífið öðrum augum, sem er jákvætt.
Kristbjörg hefur líka staðið sig eins
og hetja í þessu hlutverki og það er
eins og hún hafi aldrei gert neitt
annað,“ segir Aron en þau kynntust
í gegnum sameiginlega vini.
Þriggja ára samningur við
Cardiff
Aron var að klára sitt fjórða tímabil
með Cardiff og þegar viðtalið var
tekið var verið að leggja lokahönd á
nýjan samning við hann sem tryggir
hann í herbúðum félagsins næstu
þrjú ár. Hann segir mikla stemningu
í félaginu og klúbbinn vera af sömu
stærðargráðu og margir klúbbar í
ensku úrvalsdeildinni. „Ég fíla mig
mjög vel í Cardiff og við erum búin
að kaupa hús þarna og líður mjög
vel,“ segir Aron. „Nýr samningur er
á lokastigi og þetta er í fyrsta sinn
sem ég segi frá því í fjölmiðlum.
Það er þriggja ára samningur og ég
er mjög ánægður með hann,“ segir
hann. „Þjálfarinn er búinn að spila
mér í öllum leikjum síðan hann tók
við sem er virkilega jákvætt fyrir
mig og landsliðið,“ segir hann en
þjálfari Cardiff, Russell Slade, tók
við af Ole Gunnar Solskjær í októ-
ber á síðasta ári.
Þetta var ekki alveg að ganga upp
hjá Solskjær, eða hvað?
„Nei, það var erfitt fyrir hann að
taka við af McKay sem var elskaður
í Cardiff,“ segir Aron. „Erfitt að taka
við klúbbi sem er nýkominn upp í
úrvalsdeildina og fullt af nýjum leik-
mönnum að koma. Mikið fjaðrafok
var í kringum eigandann og svona
eitt og annað sem gerði honum erf-
itt fyrir,“ segir Aron. „Að fá svo nýj-
an þjálfara eins og Slade sem hefur
mikla trú á manni er gífurlega gott
fyrir sjálfstraustið og mér líður vel.
Ég var að spila mjög vel undir lok
tímabilsins og var hundfúll að það
var að klárast, því ég var í topp-
standi,“ segir Aron. „Cardiff á að
vera í úrvalsdeildinni. Félagið hef-
ur allt til þess að bera. Stóran völl
og góða stuðningsmenn, og það er
alltaf takmarkið. Fólk vill sjá Cardiff
í sömu deild og Swansea og það er
stefnan á næsta tímabili.“
Tékkaleikurinn mikilvægi
Íslenska landsliðið spilar nú í júní
gríðarlega mikilvægan leik við
Tékka á Laugardalsvelli og með
hagstæðum úrslitum í þeim leik
tekur liðið stórt skref í átt að því að
komast á stórmót í fyrsta sinn. Aron
hefur því þurft að halda sér í æfingu
eftir að tímabilinu lauk á Englandi
og æfir með Pepsideildarliði Breiða-
bliks hér heima þangað til að lands-
liðið hittist. Hann segir að þrátt fyrir
að hann finni fyrir gæðamuni á Eng-
landi og Íslandi sé mjög gott að hafa
lið til þess að æfa með í fríinu. „Mað-
ur finnur fyrir mun á tempói,“ segir
hann. „Maður keyrir þetta þá aðeins
meira upp sjálfur. Ég finn fyrir því
að ungir strákar hér heima hafa gott
af því, eins og ég. Ég vill sjá sem
flesta leikmenn hérna heima fara út
og þess vegna legg ég enn meira á
mig á þeim æfingum, svo það kom-
ist til skila að maður þarf að leggja
mikla vinnu á sig til þess að komast
í atvinnumennsku,“ segir Aron. „Ég
valdi það að æfa með Blikunum því
Gulli markmaður er góður félagi og
hef alltaf æft þar sem hann er að æfa
hverju sinni,“ segir Aron og talar þar
um Gunnleif Gunnleifsson, mark-
mann Breiðabliks. „Ég er voðalega
lítið farinn að hugsa um Tékkaleik-
inn en ég finn að þetta er að nálgast
og er bara að halda mér í toppstandi
Ég er vanur
því að taka
ábyrgð
Knattspyrnumaðurinn Aron
Einar Gunnarsson segir ís-
lenska landsliðið í knattspyrnu
karla hafa alla þá burði sem til
þurfi til að komast á stórmót.
Í júní er gríðarlega mikilvægur
leikur við Tékka þar sem
landsliðið ætlar að taka stórt
skref í áttina að takmarki
sínu. Aron er nýbakaður faðir
og kann hlutverkinu mjög
vel. Hann segist hafa lært
mikið og þroskast á þeim átta
árum sem hann hefur verið
í atvinnumennsku og er einn
reyndasti leikmaður lands-
liðsins þrátt fyrir að vera
aðeins nýorðinn 26 ára.
Framhald á næstu opnu
Aron Einar og Kristbjörg
með soninn Óliver
Breka. Ljósmynd/Hari
22 viðtal Helgin 29.-31. maí 2015