Fréttatíminn - 29.05.2015, Blaðsíða 29
kostnað vegna matarsóunnar má
ætla að meðal-Íslendingurinn hendi
mat fyrir um 29 þúsund krónur á
ári. Því til viðbótar er sóað og hent
mat fyrir um 61 þúsund krónur á ári
á hvert mannsbarn við framleiðslu,
flutning og sölu á mat; samtals 90
þúsund krónur á íbúa. Það gera rétt
tæpa 30 milljarða króna á ári fyrir
landsmenn alla. Ef Íslendingum
tækist að færa sóunina niður á stig
Suðaustur-Asíu þyrfti ekki að fram-
leiða, dreifa eða selja matvæli að
verðmæti um 17 milljarðar króna.
Það jafngildir fasteignamati Hörpu
og er nærri því sama upphæð og
verðmæti útflutnings járnblendis
var í fyrra. Nokkur fjöldi fólks
myndi því missa vinnuna ef okkur
tækist að hemja sóunina – allavega
tímabundið þar til það tæki upp
gáfulegri störf en að framleiða mat
fyrir ruslatunnurnar.
Andleg kreppa mannsins
Í síðustu viku skrifaði ég á þessum
stað um þá hugmynd að félagslegir
og efnahagslegir ágallar samfélags-
ins kynnu að vera birtingarmynd
einhverskonar skekkju í undir-
stöðum þess, sem brenglaði allt
sem kæmi þar á ofan. Félagslegt
ranglæti, efnahagsleg kreppa og
stjórnmálaleg stöðnun væru þannig
mismunandi birtingarmyndir and-
legrar kreppu. Samfélagið virkaði
ekki vegna þess að enginn vissi í
raun hver staða hans innan sam-
félagsins væri; hvar ábyrgð hans
lægi, hverjar skyldur hans væru og
hvers hans gæti vænst af öðrum.
Samfélagið hefði tapað tilgangi
sínum. Það væri ófrjótt. Afrakstur
þess ynni í raun gegn hagsmunum
fólks; þrátt fyrir mikið erfiði, mikla
tæknikunnáttu og víðtæka upp-
safnaða þekkingu væru afurðirnar
geldar, lífvana, dauðar.
Þessi hugmynd er í raun svar
við vangaveltum um hvernig á því
standi að samfélög, sem virðast
hafa allt til alls og getu til að leysa
hvern vanda, skuli ekki byggjast
upp af réttlæti og kærleika. Hún
byggir á þeirri vissu að maðurinn
sé í raun góður – alla vega ekki ill-
ur. Þótt hann sé syndaselur og spill-
ist auðveldlega, þurfi eitthvað til að
spilla honum. Hann sé ekki illur að
upplagi. Og eins og hann geti spillst
af illum aðstæðum þá geti hann líka
blómstrað við góðar aðstæður.
Andleg kreppa á Íslandi
Margur Íslendingurinn hefur dund-
að sér við að hugsa eftir þessum
brautum eftir Hrun. Af umræðunni
að merkja virðast þó flestir leggja
mesta áherslu á upplag en minni
á uppeldi. Vinsælasta skilgrein-
ingin á Hruninu er að þar hafi fáir
eðlisvondir menn vélað um örlög
fjöldans, sem ekki hafði varann á.
Sjálfstæðisflokkurinn ályktaði á
þessum nótum: Stefnan brást ekki
heldur mennirnir. Þótt flokkurinn
njóti ekki mikils fylgis um þessar
mundir virðast flestir Íslendingar
sammála flokknum að þessu leyti.
Krafa Búsáhaldabyltingarinnar
var um nýja ríkisstjórn, nýja stjórn
Seðlabankans og nýja stjórn Fjár-
málaeftirlitsins – semsé nýtt fólk,
en ekki endilega nýja stefnu eða
róttækt uppgjör. Búsáhaldabylt-
ingin sigraði og byltingarfólkið
fékk öllum sínum kröfum fram-
fylgt. En líklega eru ekki margir í
dag sem telja að uppfylling þessara
krafna hafi nokkru breytt. Í öllum
grunnatriðum er íslenskt samfélag
það sama í dag og fyrir Hrun og
það sama og fyrir búsáhaldabylt-
inguna.
En auðvitað er ekki hægt að
ræða hrun samfélaga og and-
legar kreppur að baki þeim út frá
Hruninu á Íslandi eða afleiðingum
þess. Áður en tvær setningar eru
sagðar stendur einhver upp og
hrópar: Icesave! Næsti ber í borðið
og segir: Kvótinn! Og sá þriðji: Ný
stjórnarskrá!
Við skulum því halda okkur við
matinn. Hann er eina umræðu-
svæðið sem býður upp á þokkalega
friðsamt samtal. Innan hans má
ræða áhrif eins menningarsvæðis
á næsta, ólíkar afurðir iðnaðar og
handverks og meira að segja mikil-
vægi náttúruverndar án þess að allt
fari úr böndunum. Kannski eru það
borðsiðirnir sem halda samræð-
um um mat á siðuðum nótum. Það
sættir sig enginn við borðfélaga
sem hrópar eitthvað um Icesave
með fullan munninn.
Við skulum því halda okkur við
hið augljósa hrun matvælafram-
leiðslu, -dreifingar, -sölu og –
neyslu. Hvað gekk eiginlega á áður
en niðurstaðan varð þessi; að við
búum til, dreifum, seljum, kaupum
og berum heim næstum því þrisvar
sinnum meiri mat en við getum
borðað? Af hvers völdum varð
kerfið svona firrt?
Handabandskeðjan rofnar
En áður en ég reyni að svara því vil
ég skjóta inn útskýringu á hruni
fjármálakerfis Vesturlanda.
Þótt hrun fjármálaheimsins
hafi komið aftan að flestum er nú
almennt viðurkennt að sjá hefði
mátt það fyrir. Rætur hrunsins eru
taldar liggja í tilflutningi ábyrgðar
innan kerfisins. Hinn hefðbundni
banki byggði á þekkingu útibús-
stjórans á viðskiptavininum. Með
árunum byggði hann upp þekkingu
á fasteignamarkaði, veikleikum og
styrk atvinnulífsins á sínu svæði.
Útibússtjórinn þurfti að vera leik-
inn í að lesa fólk og þekkja. Hann
þurfti að sá í gegnum óraunhæf
áform og sjálfsblekkingu en varð
líka að geta komið auga á einarðan
vilja, þrek og þor. Hefðbundinn
bankarekstur var þannig húman-
ískt fag; byggði á mannþekkingu
og -skilningi.
Ofan á þessa þekkingu útibús-
stjórans byggðist pýramídi banka-
heimsins. Útibússtjórinn lánaði
þeim sem hann þekkti, banka-
stjórinn útibússtjóranum sem hann
treysti og svo áfram upp í stærstu
heildsölubankana. Þegar allt var
brotið niður byggðust ógnarupp-
hæðir fjármálalífsins upp á tröppu-
gangi frá gamaldags samskiptum
og handabandi fólks sem þekkti til
hvers annars og var háð hvert öðru
í daglegu lífi.
Á síðustu árum síðustu aldar
umbreyttist bankakerfið. Þá töldu
menn sig hafa fundið formúlur
sem gætu reiknað út áhættu svo
varla skeikaði eyri. Bankakerfið
átti með þessu að losna úr viðjum
gamaldags viðskiptahátta sem
byggðu á mannlegum samskiptum.
Með formúlunum var hægt að
taka ákvarðanir um að lána fólki
sem enginn þekkti. Útibússtjórar
lánuðu samkvæmt krossaprófi og
fengu að selja frá sér ábyrgðina til
næsta banka, sem aftur gat keypt
sér tryggingar gegn tapi á láni til
útibúsins. Áhættan var svo kirfi-
lega mæld og vegin að hægt var að
selja hana og kaupa. Bankastarf-
semi var ekki húmanísk lengur.
Hún var verkfræði.
Að þekkja vandann en ekki
leiðina út
Allir þekkja afleiðingarnar. Eftir
áratug byggðan á þessum formúl-
um hrundi bankastarfsemin í heim-
inum ekki aðeins til grunna heldur
dró hún stærstan hluta efnahags-
lífsins með sér í fallinu, atvinnulífið
og helstu stofnanir samfélaganna.
Nilfisk
Gæði og góð þjónusta í 80 ár!
24.300 kr
24.300 kr
35.200 kr
46.900 kr
118.800 kr
82.600 kr
73.800 kr
29.900 kr
19.900 kr
Það er meira af mat hent á Vestur-
löndum en þyrfti til að brauðfæða alla
fátæka og hungraða í veröldinni. Óhóf
og sóun Vesturlandabúa er sú náttúru-
auðlind sem gjöfulast væri að nýta til að
sporna gegn náttúruspjöllum og fátækt.
WASHINGTON, D.C. f rá
Tímabil: september - desember
14.999 kr.*
AFMÆLISTILBOÐ - TAKMARKAÐ MAGN Í BOÐI!
* Aðeins bókanlegt á wowair.is. Verð miðast við flug aðra leið ásamt sköttum & gjöldum.
5 kg handfarangur innifalinn.
TENERIFE f rá
Tímabil: september - desember
12.999 kr.*
AFMÆLISTILBOÐ - TAKMARKAÐ MAGN Í BOÐI!
* Aðeins bókanlegt á wowair.is. Verð miðast við flug aðra leið ásamt sköttum & gjöldum.
5 kg handfarangur innifalinn.
Eftirlitskerfi matsfyrirtækja og fjár-
málaeftirlits reyndust gagnslaus.
Þau voru hluti kerfisins og gátu því
ekki komið auga á ágallana innan
þess. Eftirlitsaðilarnir treystu á
formúlurnar ekkert síður en bank-
arnir og féllu því með þeim.
Það magnaða við þessa sögu er
sú staðreynd að eftir hrun banka-
kerfisins var það endurreist í
óbreyttri mynd og sömuleiðis eftir-
litskerfin, efnahagslífið, atvinnu-
lífið og allar helstu stofnanir sam-
félagsins. Ástæðan var náttúrlega
sú að þótt fólk hafi komið auga á
hversu röng kerfin voru gat það
ekki komið auga á hvað ætti að
koma í staðinn.
Slík staða kallast andleg kreppa.
Fólk er þá lokað inn í veröld sem
reynist því illa en það ratar ekki út.
Það treystir svo á lögmál hins fallna
heims að það getur ekki annað en
endurbyggt hann að nýju.
Í næstu viku langar mig að fjalla
um hvernig andleg kreppa birtist
í matvælaframleiðslu, -dreifingu,
-sölu og –neyslu og hverjar eru
hugsanlegar orsakir hennar. Það
er nefnilega þannig að handabands-
keðjan, sem slitnaði í bankaheim-
inum á síðustu árum síðustu aldar,
hafði slitnað mörgum áratugum
fyrr í matvælaheiminum. Í raun er
sá heimur löngu hruninn. Og við
höfum lifað í rústum hans lengi.
matartíminn 29 Helgin 29.-31. maí 2015