Fréttatíminn - 29.05.2015, Qupperneq 34
34 bílar Helgin 29.-31. maí 2015
ReynsluakstuR MeRcedes Benz cla shooting BRake
Mest seldu ofnar
á Norðurlöndum
áreiðanlegur hitagjafi
10 ára ábyrgð
LÁGHITA
MIÐSTÖÐVAROFNAR
Gæði fara aldrei úr tísku
AMSTERDAM f rá
Tímabil: september - desember
7.999 kr.*
AFMÆLISTILBOÐ - TAKMARKAÐ MAGN Í BOÐI!
* Aðeins bókanlegt á wowair.is. Verð miðast við flug aðra leið ásamt sköttum & gjöldum.
5 kg handfarangur innifalinn.
Mercedes Benz CLA Shoot-
ing Brake er einkar fagur
en jafnframt sportlegur. Að
keyra hann er hrein unun
og hann nánast svífur yfir
veginn. Mikil natni er lögð
í hvert einasta smáatriði
þegar kemur að hönnun
þannig að útkoman er sann-
kölluð glæsikerra.
Lagleg lúxuskerra
B enz. Það er bara eitthvað al-veg sérstakt við Benz. Það er jafn sérstakt nú og þegar
ég var lítil stelpa. Benz var og er
stöðutákn.
Nágrannar mínir eru að verða
því vanir að ég sé alltaf á glænýjum
bílum sem ég er að reynsluaka og
þegar ég stóð á hlaðinu hóaði einn
nágranninn í mig, gjóaði augunum
á Benzinn og spurði áhugasamur
hvort ég væri „á þessum“. Hann tók
eftir því að bíllinn var ekki einfald-
lega hvítur heldur var á honum ein-
stakur rjómaglans. Ég bauð honum
að líta inn í bílinn enda var ég æst í
að hann sæi hvað þetta væri falleg-
ur bíll. Klæðningin var hnotubrúnt
leður, gamaldags og glæsilegar loft-
túður sem setja svip sinn á innrétt-
inguna og það þarf ekki meira en að
koma við veglegt stýrið til að finna
hvað mikið er lagt í öll smáatriði.
CLA tilheyrir milliflokki bíla hjá
Mercedes Benz því stærðarlega
fellur hann á milli A-línunnar og C-
línunnar. Raunar stendur CLA fyrir
Coupé Light A-class. Hann er fimm
dyra og gengur því sem fjölskyldu-
bíll – sportlegur og töff fjölskyldu-
bíll fyrir litla fjölskyldu. Ég myndi
ekki mæla með því að fleiri en tveir
sætu aftur í, svona dagsdaglega.
Shooting Brake er síðan eilítið
öðruvísi en hefðbundinn CLA og er
hannaður til að vera hagnýtari og
rúmbetri. Þetta nafn kann að vekja
athygli en það var upphaflega not-
að í byrjun 20. aldar í Englandi yfir
farartæki sem rúmuðu veiðigræjur,
jafnvel veiðihunda og svo bráðina á
heimleiðinni. Í gegnum tíðina hefur
síðan þróast nokkuð það sem kallað
er „shooting brake“ en alltaf þykja
þetta sérlega flottir bílar sem hafa
tengsl við breska aðalstétt. Nokkuð
langt frá hefðbundnum þýskum eð-
albíl, en það er einmitt eðallinn sem
tengir þetta allt saman. Til að sverja
sig í ætt við nafið er Shooting Brake
síðan með 25 lítra stærra farangurs-
rými en hefðbundinn CLA.
Að keyra þennan bíl er hrein
unun og öll hönnun miðar að því að
akstursánægjan sé sem best. Gír-
stöngin er ekki á hefðbundnum stað
heldur er hún við stýrið, þar sem
yfirleitt er kveikt á rúðuþurrkunum.
Vegna þessa skipti ég óvart um gír
þegar byrjað að rigna, fór úr Drive í
Neutral, en leiðrétti það strax. Jafn-
vel þó bíllinn hafi verið sjálfskiptur
og höndin því ekki mikið á gírstöng-
inni er þetta þó miklu þægilegra en
að hafa gírstöngina á þessum venju-
lega stað og eftir daginn var ég hætt
að gera ósjálfráðar tilraunir til að
skipta um gír þegar það byrjaði eða
hætti að rigna.
Mercedes Benz CLA Shooting
Brake nánast svífur yfir veginn,
maður finnur ekki fyrir hraðanum
og beygjurnar eru áreynslulausar.
Þetta eru þægindi og lúxus alla leið
í gegn.
Erla Hlynsdóttir
erla@frettatiminn.is
Mercedes Benz CLA
Shooting Brake er
sérlega fallegur með
sportlegt en jafnframt
traustvekjandi útlit.
Ljósmyndir/Hari
Það gæti ekki verið einfaldara að stilla
framsætin. Það er gert í hurðinni með því
að ýta á þá „hluta“ sætisins sem maður
vill færa. Þá er hægt að setja í minnið
stillingar fyrir 3 mismunandi aðila.
Gírstöngin er ekki á hefðbundum stað
milli sætanna heldur við stýrið sem er
mun þægilegra.
Að innan er bíllinn allur hinn veglegasti,
mælaborðið afar smekklegt og lofttúð-
urnar sérstaklega elegant í hönnun.
Mercedes Benz CLA
200 CDI Shooting Brake dísil
136 hestöfl
3,9-4,2 l/100 í blönduðum akstri
101-111 Co2 g/km
Farangursrými 495 -1.354 l
9,9 sek 0-100 km/klst
Lengd 4630 mm
Breidd 1777 mm
Verð frá 5.190.000 kr.