Fréttatíminn - 29.05.2015, Side 44
44 heilsa Helgin 29.-31. maí 2015
Kryddjurtir má
rækta allt árið um
kring innanhúss, en
nú er kjörinn tími til
ræktunar þar sem
daginn er tekinn
að lengja. Líflegur
kryddjurtagarður í
eldhúsglugganum
gefur góðan ilm í
húsið og einstakt
bragð út í matar-
gerðina. Kryddjurtir
eru hollar og góðar,
en hvaða heilsusam-
legu áhrif hefur hver
og ein kryddjurt?
Kryddjurtir sem bæta heilsuna
Mynta: Fersk og
frískandi. Stuðlar að
betri meltingu, losar
um stress, getur lagað
höfuðverk og minnkað
hósta og komið í veg
fyrir andfýlu.
Steinselja: Meinholl og
fjölhæf kryddjurt. Hún
inniheldur hlutfalls-
lega meira C vítamín en
appelsínur og bætir því
ónæmiskerfið og styður
líkamann í að vinna upp
járn úr fæðunni og er
því góð við blóðleysi.
Steinselja örvar
starfsemi nýrna, hjálpar
við afeitrun líkamans og
róar meltingarveginn.
Hún léttir þannig á
meltingartruflunum,
ristilkrampa og vind-
gangi.
Basilíka: Ilmar
dásamlega og býr yfir
mörgum heilsusamleg-
um eiginleikum. Basilíka
hefur reynst vel gegn
ýmsum meltingarkvillum
og talið er að jurtin geti
dregið úr ógleði. Hún
hefur einnig bólgueyð-
andi eiginleika og getur
reynst
vel við
bólgusjúk-
dómum í þörmum.
Basilíka er einnig rík af
magnesíum, sem hjálpar
við slökun á vöðvum og
æðum.
Rósmarín: Inniheldur
caffeicsýru og rósmar-
ínsýru sem báðar stuðla
að andoxun og eru auk
þess
bólgu-
eyðandi. Rós-
marín er einnig ríkt
af e-vítamíni og olíum
sem minnka þrengingu
öndunarvegarins og
geta þannig komið í veg
fyrir astma og önnur
ofnæmiseinkenni.
Olíur eru allra meina bót
Olíur er hægt að nota á marga vegu og í svo miklu meira en bara matargerð. Olíur hafa heil-
næm áhrif á húðina og hárið og sumar olíur má nýta til að vinna bug á alls konar kvillum. Sumar
ilmolíur er jafnvel hægt að nota eins og ilmvatn. Hér lítum við á nokkrar heillandi olíur sem má
nota í ýmsum tilgangi. Flestar olíur er hægt að nálgast í heilsuvöruverslunum eða heilsuhillum
stórmarkaðanna.
E-vítamín olía
E-vítamín er mikið notað í
snyrtivörur, bæði vegna þess að
það er náttúrulegt rotvarnarefni
og einnig er það græðandi og
mýkjandi fyrir húðina, ásamt
því að varna öldrun. Olían hefur
þykka áferð og er einstaklega
næringarrík.
Notkun:
Á augun: Berið nokkra dropa
af olíunni undir augun og á
augnlokin.
Á húðina: Berið nokkra dropa
af olíunni á húðina og nuddið.
E-vítamín olían hefur græðandi
áhrif og því er gott að bera hana á
ör og húðslit.
Eucalyptus ilmkjarnaolía
Lyktin minnir á pipar-
myntu, enda er eucalyptus
einstaklega frískandi og
kælandi olía. Olían er góð
fyrir lungun og kinnholur
og er einnig bakteríud-
repandi.
Notkun:
Í baðið: Blandið dropum af
olíunni út í grunnolíu (t.d.
kókosolíu eða ólífuolíu),
salt eða mjólk og setjið í
baðvatnið.
Til innöndunar: Setjið 3-6
dropa í skál af heitu vatni.
Setjið svo handklæði yfir
höfuðið og andið að ykkur
í 5-10 mínútur. Innöndun
olíunnar stuðlar að losun
stíflunar í nefi.
Argan olía
Upprunin frá Marokkó og
er talin vera eitt besta
geymda fegurðarleyndar-
mál marokkóskra kvenna.
Olían er rík af E-vítamíni og
vatnskennd áferð hennar
gerir það að verkum að
húðin drekkur hana í sig án
þess að fitna.
Notkun:
Í hárið: Setjið 1-2 dropa í
lófann og berið í rakt hár.
Einnig er sniðugt að útbúa
hármaska með argan olíu,
kókosolíu, avocado olíu og
öðrum góðum olíum fyrir
hárið.
Á húðina: Nuddið nokkrum
dropum á hreina húð. Talið
er að argan olían viðhaldi
sýrustigi í húð sem stuðlar
að auknu jafnvægi.
Sítrónu
ilmkjarnaolía
Fersk og upplífgandi en
jafnframt slakandi olía sem
drepur bakteríur og styrkir
ónæmis- og æðakerfið.
Notkun:
Út í baðvatnið: Setjið
5-10 dropa út í baðvatnið
og finndu fyrir slakandi
áhrifum olíunnar.
Til innöndunar: Setjið 3-6
dropa í skál af heitu vatni.
Setjið svo handklæði yfir
höfuðið og andið að ykkur í
5-10 mínútur.
Sem heimilisilm: Setjið
5-6 dropa í spreybrúsa
með vatni. Blandan gefur
heimilinu einstaklega
ferskan blæ.
Bio-tex þvottaefni og blettaeyðir
Leikum
okkur!
KOSTA
RÍKA
NÁTTÚRUPARADÍS SEM Á EKKI SINN LÍKA
5. - 19. SEPTEMBER
Verð kr. 565.940.-
Innifalið í verði: Flug, skattar, hotel, allar ferðir,
islenskur fararstjóri og aðgangur þar sem við á
Ferðaskrifstofan hefur nú hannað í samvinnu við
heimamenn sérstaka ferð sem saman-stendur
af upplifun af náttúru landsins og dýralífi þess.
Auk þess munum við kynnast fólkinu sjálfu
sem landið byggir. Ferðin er ætluð brosandi og
lifandi fólki sem vill upplifa ævintýri í ótrúlegu
umhverfi