Fréttatíminn - 29.05.2015, Page 50
50 matur & vín Helgin 29.-31. maí 2015
Bjór Borg Brugghús í samstarf með NørreBro Bryghus
Bruggararnir Valgeir Val-
geirsson og Árni Long í Borg
brugghúsi hafa tekið höndum
saman við kollega sína í
Nørrebro bryghus um gerð
tveggja bjóra. Bjórarnir eru
bruggaðir í sitt hvoru brugg-
húsinu og sækja nafn sitt til
frægasta ósigurs Íslendinga
á knattspyrnuvellinum; 14:2
gegn Dönum.
Þ etta var mjög góð heimsókn. Við áttum gott spjall um bjór og hvernig við gerum hann.
Bruggarar eru nefnilega eins og
stór fjölskylda, maður lærir alltaf
eitthvað nýtt þegar maður hittir
aðra bruggara,“ segir Peter Sonne,
bruggmeistari Nørrebro bryghus í
Danmörku.
Peter og kollegi hans, Emil Ros-
endahl, voru hér á landi á dögunum
vegna samvinnuverkefnis þeirra og
strákanna í Borg brugghúsi.
Samstarf brugghúsanna tveggja
felst í því að bruggaðir verða tveir
bjórar, sá fyrri á Íslandi en hinn í
Kaupmannahöfn síðar í sumar. Nöfn
bjóranna eru sótt í einn frægasta
knattspyrnuleik Íslandssögunnar,
stórtap Íslendinga fyrir Dönum árið
1967. Bjórinn sem bruggaður var
hér á landi á dögunum kallast 2:14
en sá sem bruggaður verður í Kaup-
mannahöfn mun kallast 14:2.
Sjaldséðir eru hvítir stoutar
Bjórinn sem bruggaður var á okk-
ar heimavelli er svokallaður „hvítur
stout“ en hinn bjórinn verður dökk-
ur stout.
„Við hittumst í Kaupmannahöfn
um daginn þegar Borgar-strákarnir
voru að koma frá Belgíu og töluðum
um hvað við myndum gera. Svo vor-
um við í sambandi eftir það. Okkur
datt í hug að það væri gaman að
gera hvítan stout sem myndi samt
bragðast eins og dökkur bjór. Þann-
ig að ef þú myndir bragða hann með
lokuð augun héldirðu að þú værir að
drekka hefðbundinn stout en svo
kæmi í ljós að hann væri alveg ljós.
Svo á dökki bjórinn, sem við ger-
um í Danmörku, að bragðast eins,“
segir Peter. Bjórinn er til að mynda
kryddaður með kaffi, kakónibbum,
móreyktu malti, stjörnuanís og bo-
urbon vanillu stöngum.
Valgeir Valgeirsson, bruggmeist-
ari í Borg brugghúsi, segir að hvítur
stout sé ekki algengur í bjórheim-
inum. „Það er ekki auðvelt að búa
hann til en við vildum auðvitað
gera eitthvað sérstakt með þessum
gestabruggurum. Það hafði enginn
okkar bruggað svona bjór áður,“
segir hann.
Valgeir segir jafnframt að í Borg
hafi menn gengið lengi með það í
maganum að efna til samstarfs við
erlend brugghús. „Staðsetning Ís-
lands gerir svona lagað hinsvegar
frekar erfitt. Það kostar töluvert að
fljúga á milli og fá gistingu auk þess
að flytja svo vöruna á milli landa. En
það er gaman að svona samstarfi.“
Hvenær megum við svo eiga von
á að fá að smakka þennan bjór?
„Við búumst við því að hvíti sto-
ut-inn komi í ÁTVR um mánaða-
mótin júní-júlí. Svo getur verið að
hann dúkki upp á einhverjum kynn-
ingum eða viðburðum fyrir það. En
hinn kemur ekki fyrr en í haust, við
eigum eftir að fara til Danmerkur
og brugga hann í sumar.“
Dæmdu í keppni heimabrugg-
ara
Peter Sonne lætur vel af dvöl sinni
hér á landi og samstarfinu við þá
Valgeir og Árna Long í Borg. „Við
gátum talað um ástríðuna í bjór-
gerð og um nýjar leiðir til að gera
spennandi bjóra. Svo gat maður séð
fjöll út um gluggann á brugghúsinu.
Ég er ekki beint vanur því í Kaup-
mannahöfn!“
Peter og Emil kollegi hans voru
fengnir til að vera meðal dómara í
Brugga með frum-
kvöðlum frá Danmörku
Að sjálfsögðu var skálað að loknu góðu dagsverki. Emil, Árni, Peter og Valgeir kynntu sér bjóra hvers annars og voru ánægðir
með útkomuna. Ljósmyndir/Anna Ellen Douglas
Góðir gestir í
Borg brugg-
húsi. Að neðan
eru þeir Peter
Sonne og Emil
Rosendahl
frá Nørrebro
bryghus. Í efri
röð eru Valgeir
Valgeirsson
og Árni Long
í Borg brugg-
húsi. Brugg-
húsin hafa
tekið höndum
saman um
gerð tveggja
bjóra. Ljós-
myndir/Anna
Ellen Douglas
bjórkeppni Fágunar, félagi áhuga-
bruggara á Íslandi. „Það var mjög
gaman að smakka góða íslenska
heimabruggaða bjóra. Það voru
margir hæfileikaríkir þarna, það er
enginn vafi á því. Svo var partí eftir
á. Það var gaman að kynnast þess-
ari senu á Íslandi, ég þekki vel til
hennar í Danmörku,“ segir Peter
sem kveður þá einnig hafa heimsótt
nokkra bari hér og lofar gott bjórúr-
val á þeim.
Nørrebro bryghus hefur tekið
þátt í fjölmörgum samstarfsverk-
efnum með öðrum brugghúsum í
gegnum tíðina en áherslurnar hafa
ekki verið á þeim að undanförnu.
„En nú erum við byrjaðir aftur og
vorum til dæmis að gera bjór með
Lervig-brugghúsinu í Stafangri.
Okkur fannst tilvalið að koma
næst hingað í samstarf,“ segir Pet-
er. Hann segir þá jafnframt hafa
notað ferðina til að kanna jarðveg-
inn með að þeirra bjór verði seldur
á Íslandi.
„Við vonumst til að finna dreif-
ingaraðila innan tíðar,“ segir hann.
Valgeir í Borg tekur undir það.
„Nørrebro er eitt af upphafs brugg-
húsunum í þessari kraftbjórsenu í
Danmörku sem síðar smitaðist yfir
til Íslands. Þeir eru með gæðabjóra
sem gaman væri að fá í sölu hér.
Bjóráhugafólk þekkir þessa bjóra
og ég er viss um að fólk sem hefur
verið í námi í Danmörku þekkir þá
vel.“
Höskuldur Daði Magnússon
hdm@frettatiminn.is
Veisluþjónusta
að hætti Jóa Fel
–allt fyrir útskriftina!
Fylltar súkkulaðiskálar
Pantanir í síma: 588 8998
Ítalskar snittur
12 eða 8 bita pinnaVeisla