Fréttatíminn - 29.05.2015, Síða 51
Helgin 19.-21. september 2014
D-vítamínbætt ný-
mjólk – sólarvítamín
í hverjum sopa
M jólk er að öllum líkind-um ein næringarríkasta matvara sem völ er á en
hún er góð uppspretta kolvetna,
próteina, vítamína og steinefna.
Mjólkin er jafnframt besti kalk-
gjafi sem völ er á,“ segir Björn S.
Gunnarsson, næringarfræðingur
og vöruþróunarstjóri MS. Undan-
farin misseri hefur nokkuð borið á
umræðu þess efnis að Íslendingar
fái ekki nægilegt D-vítamín og á
það við um fleiri þjóðir á norðlæg-
um slóðum þar sem sólar nýtur ekki
við í miklum mæli en það má rekja
til þess að vítamínið myndast í húð-
inni fyrir tilstilli útfjólublárra geisla
sólarinnar.
D-vítamín fyrir beinin
D-vítamín er mikilvægt beinheilsu
þar sem það örvar frásog kalks úr
meltingarvegi, stuðlar að eðlilegum
kalkstyrk í blóði og styður við bein-
vöxt hjá börnum og hjálpar til við að
viðhalda styrk beina hjá fullorðnum.
Þegar sólar nýtur ekki við, og eins
þegar sólarvörn er notuð, er mikil-
vægt að fá D-vítamín úr fæði. Það
getur hins vegar verið úr vöndu að
ráða þar sem afar fá matvæli inni-
halda vítamínið frá náttúrunnar
hendi, en það eru helst lýsi og feitur
fiskur.
„Þrjú ár eru liðin síðan MS setti
D-vítamínbætta léttmjólk á mark-
að og tóku neytendur henni einkar
vel,“ segir Björn og bætir við að nú
hafi D-vítamínbætt nýmjólk bæst
í hópinn. „Er þetta skref tekið til
að bregðast við kalli neytenda um
meira val í vítamínbættum vörum
og jafnframt til að auka D-vítamín-
inntöku sem er nokkuð lág í mörg-
um hópum.“ Skortur á D-vítamíni
er sérstaklega algengur yfir vetr-
armánuðina en miðað við veður-
farið á Íslandi síðustu ár er sumar-
tíminn ekkert mikið betri. Um er
að ræða alvarlegt vandamál bæði
meðal barna og fullorðinna þar sem
skortur á vítamíninu getur valdið
beinkröm eða vansköpun beina
vegna kalkskorts í börnum og hjá
fullorðnum getur hann valdið bein-
þynningu, beinmeyru, vöðvarýrnun
og tannskemmdum.
Sólarvítarmín í hverjum sopa
„Mikilvægt er að leita leiða til að
bæta mataræði íslenskra barna sem
og fullorðinna og er D-vítamínbætt
mjólk því góður kostur. Mikilvægt
er að vörur sem eru algengar á borð-
um landsmanna innihaldi þetta lífs-
nauðsynlega vítamín og því getur
glas af D-vítamínbættri mjólk með
morgunmatnum hjálpað okkur að
takast á við daginn með bros á vör
og óhætt að segja að sólarvítamín-
ið finnist í hverjum einasta sopa,“
segir Björn.
Unnið í samstarfi við
MS
Björn S. Gunnarsson, næringarfræð-
ingur og vöruþróunarstjóri MS.
AFSLÁTTUR
50%
AF HEYRNARTÓLUM
ALLT AÐ
SUMARÚTSALA
Á HEYRNARTÓLUM
ALLT AÐ 50% AFSLÁTTUR AÐEINS ÞESSA HELGI
Tölvutek • Reykjavík • Hallarmúla 2 • 563 6900 • Akureyri • Undirhlíð 2 • 430 6900 • www.tolvutek.is
Síðumúla 21
S: 537-5101
snuran.is
Finnsdottir vasi
14.900.-
Herman Cph borð
frá 55.000.-
Fuss púði
12.990.-
Pia Wallén teppi
frá 13.500.-