Fréttatíminn - 29.05.2015, Blaðsíða 58
Möguleikhúsið sýnir leikverkið Hávamál
tvisvar næstkomandi sunnudag, 31. maí.
Leikhús MöguLeikhúsið Með þrjár sýningar
Hávamál í Tjarnarbíói
M öguleikhúsið sýnir leik-verkið Hávamál eftir Þór-arin Eldjárn og leikhópinn
á Listahátíð í Reykjavík. Leikstjóri er
Torkild Lindebjerg frá Danmörku,
en hann leikstýrði sýningunni Tveir
menn og kassi hjá Möguleikhúsinu,
sem tilnefnd var til Grímuverðlauna
2004. Sýningin er unnin í samvinnu
við Teater Martin Mutter í Svíþjóð,
en þaðan kemur búningahönnuður
verksins.
Í verkinu kallast hin forna speki
Hávamála á við ýmis atriði sem þekkt
eru í daglegu lífi samtímans og glím-
unni við veruleika hversdagsins.
Unglingsstúlka og móðir hennar
hafa villst á fjöllum. Þær koma að
sérkennilegu tré þar sem þeim birt-
ist dularfullur maður er kemur und-
arlega fyrir. Er hann kominn til að
hjálpa, eða aðeins til að rugla þær í
ríminu? Er þetta geðsjúklingur, helg-
ur maður, tröll eða jafnvel hinn forni
guð, Óðinn? Hann skiptir sífellt um
hlutverk, talar öðrum þræði í bundnu
máli og misskiljanlegum heilræðum,
en áður en yfir lýkur þurfa mæðg-
urnar að horfast í augu við sjálfar sig
og samskiptin sín á milli.
Aðeins verða þrjár sýningar á
Hávamálum í Tjarnarbíói. Verkið var
frumsýnt á miðvikudaginn en tvær
sýningar verða á sunnudaginn, 31.
maí, klukkan 16 og 20.
Miðaverð kr. 3.500, miðasala á
midi.is og midasala@tjarnarbio.is -hf
Halldóra Rut, Guðmundur Ingi, Hildur Magnúsdóttir, Guðrún Bjarnadóttir og Laufey Elíasdóttir skipa RaTaTam. Ljósmynd/Laufey Elíasdóttir
Leikhús Leikhópurinn ratataM Með Leikverk í sMíðuM
Viðtöl verða að leikriti
Leikhópurinn RaTaTam samanstendur af sex leikurum sem vinna nú að gerð nýs leikrits sem tekur
á heimilisofbeldi. Í verkinu mun hópurinn notast við ákveðna leikhúsaðferð sem nefnist Verbatim
og hefur ekki verið notuð í miklum mæli hér á landi. Aðferðin byggir á því að leikararnir vinna
texta út frá samtölum við þolendur, gerendur og aðstandendur heimilisofbeldis. Halldóra Rut
Baldursdóttir, einn leikaranna segir að hópurinn sé um þessar mundir í heimildaöflun, að hitta
fólk sem tengist heimilisofbeldi á einn háttinn eða annan og vinna úr viðtölum. Þessi vinna hefur
verið í gangi síðan í janúar og enn er fólk að hafa samband sem vill tjá sig um þetta málefni.
Verkið verður sýnt á leikárinu 2015-2016 undir leikstjórn Charlotte Bøving.
r aTaTam-hópurinn, sem vinnur nú að gerð nýs leik-rits sem tekur á heimilisof-
beldi, myndaðist að fullu núna í vor
en hugmyndin að viðfangsefninu
varð til fyrir nokkrum árum,“ seg-
ir Halldóra Rut Baldursdóttir leik-
kona. „Svo í vetur kom hún Hildur
Magnúsdóttir heim úr leiklistar-
námi þar sem hún hafði lært aðferð-
ina í sínum skóla og fannst okkur
aðferðin henta mjög vel til að koma
málefninu og sögum fólksins vel til
skila“ segir Halldóra.
„Við auglýstum eftir viðmæl-
endum í janúar og viðbrögðin létu
ekki á sér standa. Við höfum fengið
ógrynni af póstum og höfum varla
undan við að svara fólki sem er það
hugrakkt að deila sögu sinni með
leikhópnum,“ segir hún. „Mest eru
þetta þolendur og aðstandendur en
einnig höfum við talað við gerend-
ur sem vilja segja sína sögu,“ segir
Halldóra. „Svo vinnum við úr við-
tölunum og aðferðin gengur út á
það í grunninn að segja sögu við-
mælandans með hjálp leikhússins
líkt og hann sjálfur stæði á sviðinu.
Flestir viðmælendur eru fyrst að
opna sig núna þegar þeir sjá að þeir
geta sagt almenningi sína sögu,
undir nafnleynd, í gegnum leikara
og þannig látið rödd sína heyrast
og um leið lagt sitt af mörkum í bar-
áttunni gegn ofbeldi.” segir Hall-
dóra.
„Það virðast svo margir þekkja
til heimilisofbeldis að það kemur
okkur svolítið í opna skjöldu. Þessi
tegund ofbeldis spyr ekki um þjóð-
félagsstöðu eða kyn, heldur snertir
alla. Okkur finnst því mikilvægt að
sögurnar fái að heyrast í þeirri von
að þær séu öðrum víti til varnaðar
og að þær endurtaki sig ekki á öðr-
um heimilum.“
RaTaTam mun á næstu dögum
hrinda af stað söfnun á Karolina
Fund til þess að fjármagna verk-
efnið og stefnt er að því að frum-
sýna á næsta leikári. „Sumarið fer í
það að leggjast yfir þetta, fjármagna
verkefnið, taka fleiri viðtöl og vinna
úr öllum viðtölunum. Við erum enn
að taka á móti sögum og hvetjum
fólk áfram til að hafa samband við
okkur,“ segir Halldóra Rut Baldurs-
dóttir leikkona.
Hægt er að hafa samband við
RaTaTam á facebooksíðu hópsins
undir nafninu RaTaTam eða senda
póst á okkarsogur@gmail.com.
Hannes Friðbjarnarson
hannes@frettatiminn.is
Ormadagar í Kópavogi
Ormadagar, barnamenningarhá-
tíð Kópavogsbæjar, hófust á þriðju-
daginn en þeim lýkur með hátíð í
menningarhúsum bæjarins og í
Kópavogskirkju um helgina, 30. og
31. maí. Yfir 2.000 leik- og grunn-
skólabörn í Kópavogi hafa heimsótt
menningarhús bæjarins í vikunni til
að taka þátt í Ormadögum. Þema
hátíðarinnar í ár er: Gamalt og nýtt
og er áhersla lögð á gamla útileiki
og gömul leikföng.
Uppskeruhátíð Ormadaga er á
morgun, laugardag, en þá verður
hægt að fara í blöðrubolta, risa-
keilu og aðra leiki á leik- og útivist-
arsvæðinu við menningarhúsin. Þar
verður einnig flugdrekanámskeið
á vegum Bókasafns Kópavogs.
Leikfangasýning með gömlu leik-
föngum frá Árbæjarsafni verður á
annarri og þriðju hæð bókasafns-
ins. Ormadögum lýkur á sunnudag
með barnamenningarmessu í Kópa-
vogskirkju með kór Kársnesskóla
og nemendum Tónlistarskóla Kópa-
vogs.
Nánari upplýsingar og dagskrá
helgarinnar er að finna á heimasíðu
Kópavogsbæjar.
Uppskeruhátíð Ormadaga, barna-
menningarhátíðar Kópavogsbæjar, er á
morgun, laugardag.
Billy Elliot (Stóra sviðið)
Fös 29/5 kl. 19:00 Fös 5/6 kl. 19:00 Fös 12/6 kl. 19:00
Lau 30/5 kl. 19:00 Lau 6/6 kl. 19:00 Lau 13/6 kl. 19:00
Sun 31/5 kl. 19:00 Sun 7/6 kl. 19:00 Sun 14/6 kl. 19:00
Mið 3/6 kl. 19:00 Mið 10/6 kl. 19:00
Fim 4/6 kl. 19:00 Fim 11/6 kl. 19:00
Fjölskyldusýning í hæsta gæðaflokki - ósóttar pantanir seldar daglega
Er ekki nóg að elska? (Nýja sviðið)
Fös 29/5 kl. 20:00
Nýtt verk eftir Birgi Sigurðsson - síðustu sýningar
Kenneth Máni (Litla sviðið)
Fös 29/5 kl. 20:00 Lau 6/6 kl. 20:00
Síðustu sýningar
Hystory (Litla sviðið)
Sun 31/5 kl. 20:00 auka. Fim 4/6 kl. 20:00 aukas.
Nýtt verk eftir Kristínu Eiríksdóttur - síðasta sýning
Peggy Pickit sér andlit guðs (Litla sviðið)
Lau 30/5 kl. 20:00
Síðusta sýning
Shantala Shivalingappa (Stóra sviðið)
Þri 2/6 kl. 20:00
Sýning á vegum Listahátíðar í Reykjavík
Billy Elliot – HHHHH , S.J. Fbl.
leikhusid.is
FJALLA-EYVINDUR OG HALLA – HHHH – SV, MBL
HVERFISGATA 19 551 1200 LEIKHUSID.IS MIDASALA@LEIKHUSID.IS
Fjalla - Eyvindur og Halla (Stóra sviðið)
Fös 29/5 kl. 19:30 Lokas.
Allra síðasta sýning.
Svartar fjaðrir (Stóra sviðið)
Lau 30/5 kl. 19:30 5.sýn Sun 31/5 kl. 19:30 6.sýn
Ronja Ræningjadóttir (Stóra sviðið)
Lau 6/6 kl. 14:00 Lau 6/6 kl. 17:00 Sun 7/6 kl. 14:00
Áhugasýning ársins. María Ólafsdóttir leikur Ronju í Þjóðleikhúsinu.
Ofsi (Kassinn)
Fös 5/6 kl. 19:30 Lau 6/6 kl. 19:30
Aukasýningar komnar í sölu.
MagnusMaria (Stóra sviðið)
Mið 3/6 kl. 20:00
Ópera um rétt kyn eftir Karólínu Eiríksdóttur.
Veitingastofurnar opnar alla daga frá
kl. 11 – 17.
Aðstaða fyrir fundi og móttökur af ýmsum
stærðum.
Nánari upplýsingar í síma 511 1904 eða
á hannesarholt@hannesarholt.is
Gestum og gangandi í Hannesarholti
býðst að horfa á stutta heimildarmynd
um Hannes Hafstein og uppvaxtarár
Reykjavíkurborgar.
Myndina eigum við bæði á íslensku og
ensku.
58 menning Helgin 29.-31. maí 2015