Fréttatíminn - 29.05.2015, Qupperneq 60
Í takt við tÍmann nökkvi Fjalar OrrasOn
Dreymir enn um að verða
atvinnumaður í fótbolta
Nökkvi Fjalar Orrason er 21 árs Kjalnesingur sem vakið hefur athygli fyrir fram-
göngu sína í sjónvarpsþáttunum Áttunni sem sýndir eru á Mbl.is. Nökkvi fer á allar
myndir í bíó því hann kann ekki að dánlóda og klæðist hvítum fötum í ræktinni.
Staðalbúnaður
Ég er ekki hrifinn af því að kaupa föt sem ég
hef séð aðra í og reyni því að finna eitthvað
sem enginn annar á. Ég fer samt ekkert út
fyrir þægindarammann. Núna er ég voða
hrifinn af því að vera í svörtum gallabuxum
sem eru hálfgerðar leðurbuxur og svo skyrtu
við. Ég hugsa alveg um útlitið og reyni að
vera snyrtilegur. Í ræktinni vil ég vera í öllu
hvítu, kannski til að vera í stíl við hárið á mér.
Hugbúnaður
Vinnan er svo mikið áhugamál hjá mér að
maður er alltaf að djöflast í henni. En svo
finnst mér bara gott að vera með kærustunni
eða mínum bestu mönnum. Ég er alveg bíó-
sjúkur og fer á allar myndir. Stundum fer ég
fjórum sinnum í viku í bíó. Það er kannski af
því ég kann ekki að dánlóda. Ég hef aldrei
smakkað áfengi og er því rólegur í næturlíf-
inu. Ég kíki samt alveg út og fer þá oftast á
Austur eða b5. Annars er ég frekar ofvirkur
og á erfitt með að sitja kyrr. World Class er
eiginlega mitt annað heimili þó ég sé ekkert
rosalegur ræktargaur, mér finnst bara gaman
að hreyfa mig. Draumurinn var alltaf að
verða atvinnumaður í fótbolta og ég held enn
fast í þann draum, þó ég sé bara að æfa með
Vængjum Júpíters og hafi varla tíma til að
mæta á æfingar.
Vélbúnaður
Ég er alveg heftur þegar kemur að tölvum en ég
er símakall og er duglegur á samfélagsmiðlun-
um. Ég hef alveg gífurlega gaman af að taka In-
stagram-myndir og breyta þeim og hef verið að
taka að mér að gera myndirnar hjá félögunum
flottar. Ég er tiltölulega nýbyrjaður á Twitter og
er ennþá alveg að skíta á mig þar en ég ætla að
kynna mér þann miðil betur og verða sniðugri.
Aukabúnaður
Ég elska að borða og er hálfgerður matar-
fíkill. Ég borða líka allt. Eina undantekn-
ingin er þegar ég borðaði yfir mig af jóla-
matnum fyrir nokkrum árum. Ég gat ekki
borðað hamborgarhrygg í tvö ár á eftir. Dags
daglega er ég mikið á ferðinni en ég reyni að
vera í hollustunni. Ég er mjög hrifinn af Han-
anum og er trylltur í vefju á Subway. Upp-
áhaldið er samt Hereford, það er eðall. Ég
spara peninga með því að vera ekki á djamm-
inu og get þá leyft mér fína staði eins og Her-
eford í staðinn. Sushi Samba er heldur ekki
verra. Ég keypti mér nýjan Toyota Aygo um
daginn og hann er gífurlega öflugur. Í sumar
ætla ég að fara til Tyrklands með konunni og
bróður mínum og kærustunni hans. Planið
er að róa sig aðeins niður. Ég ætla meira að
segja að kúpla mig alveg út með því að skilja
símann eftir heima.
Lj
ós
m
yn
d/
H
ar
i
myndlist spessi Í GallerÍ listamönnum
l jósmyndarinn Spessi opnar sýningu á verkum sínum í Gallerí Listamönnum að
Skúlagötu 32 á laugardag. Myndirn-
ar eru teknar á Fogo Island við Ný-
fundnaland á austurströnd Kanada.
„Á eyjunni eru ellefu fiskimanna-
samfélög innflytjenda frá Bret-
landseyjum sem settust þarna að
til að veiða fisk þar til þorskstofninn
hrundi fyrir um þremur áratugum.
Punktar voru málaðir á hurðir fiski-
skúranna til að hjálpa sjómanninum
að rata rétta leið í morgunmugg-
unni, ólæsi var algengt og sjómenn-
irnir lögðu öll mið og leiðarlýsingar
á minnið. Nú hrærist fólkið í minn-
ingum um horfna tíma. Spessi
skynjar sársauka þessa fólks betur
en flestir aðrir, enda sjálfur fæddur
og uppalinn í sjávarbyggð við Norð-
ur-Atlantshaf,“ segir Elísabet Gunn-
arsdóttir, stofnandi og fyrsti stjórn-
andi Fogo Island Arts.
„Hann les í umhverfið, skyggnist
undir yfirborð ljúfmennsku þar sem
erfið lífsbarátta, kúgun og grimm
fátækt hefur skilið eftir sig djúp
spor. Þetta fólk hefur lifað kynslóð
fram af kynslóð í nánum tengslum
við náttúruna, líf þess snýst um að
verja sig gegn veðrinu, fjölga sér
og sækja sér í soðið. Það er einhver
frumveikleikastyrkur í kúltúr þessa
fólks, einhver frumóþverrafegurð.
Þau eru frumlega venjuleg, þau eru
náttúran sjálf. Fjölskyldan er þeim
allt og allt snýst um mat... og svo
er það pósthúsið,“ segir hún enn-
fremur.
Spessi, eða Sigurþór Hallbjörns-
son, er fæddur árið 1956. Hann
lagði stund á ljósmyndun við AKI
– Akademie voor Beeldende Kunst
– í Hollandi og útskrifaðist þaðan
1994. Verk hans hafa verið sýnd á
fjölmörgum einka- og samsýning-
um hér á landi og erlendis meðal
annars í Frakklandi, Finnlandi, Sví-
þjóð, Belgíu og Bandaríkjunum.
Skynjar sársauka
fólksins við sjóinn
60 dægurmál Helgin 29.-31. maí 2015
Samiðn
- og aðildarfélög
KJÓSUM UM
VERKFALLSBOÐUN
OG STÖNDUM
ÞÉTT SAMAN!