Fréttatíminn - 29.05.2015, Side 62
Reykjavík Tweed Ride hjólreiðaviðburðurinn fer fram í fjórða skiptið í sumar.
Hjólreiðar reykjavík Tweed ride fer fram um Helgina
Virðulegar hóphjólreiðar að breskum sið
Nóg verður um að vera fyrir
hjólafólk í sumar og segja má
að hjólreiðasumarið hefjist
formlega um helgina þegar
hóphjólreiðaviðburðurinn
Tweed Ride Reykjavík fram í
fjórða skipti. Viðburðurinn er
að breskri fyrirmynd, en árið
2009 tóku reiðhjólaáhuga-
menn í London sig saman og
stóðu fyrir hóphjólreiðum í
borginni. Viðburðurinn snýst
þó ekki eingöngu um að koma
saman og hjóla, heldur klæða
þátttakendur sig í klassísk
föt og dragtir í anda breskra
hefðarmanna og -kvenna.
Hjólin eru einnig klassísk og
virðuleg borgarhjól. Þegar
viðburðurinn var haldinn í
fyrsta skipti á Íslandi tóku
um það bil 70 manns þátt og
hefur þátttakendum farið
fjölgandi milli ára.
Lagt verður af stað frá Hall-
grímskirkju klukkan tvö á
laugardag. Hjólað verður um
miðbæinn og út í Nauthóls-
vík þar sem Satt Restaurant
mun bjóða upp á hressingu.
Hjólaferðin endar svo á Kex
hostel þar sem verðlaunaaf-
hending mun fara fram.
Herrafataverzlun Kormáks
& Skjaldar, Geysir shop og
Reiðhjólaverzlunin Berlín
munu leggja til verðlaun fyrir
best klædda herrann, best
klæddu dömuna og flottasta
hjólið. Nánari upplýsingar um
viðburðinn og skráningu má
finna á Facebook síðu Tweed
Ride Reykjavík og á heima-
síðunni tweedridereykjavik.
weebly.com
Myndir af húðflúrunum sem
í boði voru fyrir rúmum 70
árum.
Húðflúr maTTi á rás 2 gerir Heimildarmyndina „inked in iceland“
74 ára gamlar húðflúrs-
græjur komu í leitirnar
Útvarpsmaðurinn Matthías Már Magnússon vinnur þessa dagana að heimildarmynd um sögu
húðflúrs á Íslandi. Myndina vinnur hann í samstarfi við Eggert Gunnarsson kvikmyndagerðar-
mann og í henni er talað við alla helstu flúrara landsins og leitað verður eftir uppruna listar-
innar á landinu. Þegar Matthías fór að grennslast fyrir um málið komst hann að því að hingað
til lands komu húðflúrbyssur og blek með bandarískum hermönnum á stríðsárunum. Hann
segir íslenska húðflúrsögu ná aftur um 35 ár á pappírum, en með tilkomu þessara tækja vonast
hann eftir því að komast í kynni við fólk sem ber eldra íslenskt húðflúr.
Matthías Már Magnússon hefur haft áhuga á húðflúri í mörg ár. Ljósmynd/Hari
m atthías Már Magnússon, út-varpsmaður á Rás 2, hefur lengi verið áhugamaður um
húðflúr og skartar nokkrum sjálfur.
Hann vinnur nú að heimildarmynd um
sögu húðflúrs á Íslandi og var á dög-
unum látinn vita af fjársjóði úr þessari
sögu og langar að vita meira um málið.
„Hann Össur á Reykjavík Ink sagði
mér af gömlum flúrbyssum, nálum,
bleki og myndum sem fundust fyrir
einhverjum árum,“ segir Matthías.
„Þetta fannst í dánarbúi sem antík-
verslun hér í bæ komst yfir og þetta
er núna í eigu Fjölnis Bragasonar flúr-
ara,“ segir hann. „Ég fór að skoða þetta
betur og á græjunum er herstimpill
með áletruninni Indigo Base Comm-
and. Ég gúglaði það og komst að því
að það var nafnið á fyrstu bandarísku
herdeildinni sem kom hingað til lands
árið 1941, svo þetta eru 74 ára gamlar
græjur,“ segir Matthías.
„Þessi herdeild kom frá Chicago,
sem á þessum árum var eins og Amst-
erdam Bandaríkjanna og einhverra
hluta vegna verður þetta eftir hér á
landi. Á myndunum sem fylgdu þessu
voru íslensk og bandarísk verð svo að
öllum líkindum hefur Íslendingum
verið boðið að húðflúra sig hjá banda-
rísku hermönnunum, en það er alveg
ný vitneskja í íslenskri húðflúrssögu,“
segir Matthías.
„Hugmyndin að myndinni er að
þræða sögu þessarar listgreinar á Ís-
landi. Fyrsti flúrarinn hér á landi var
Helgi „Tattoo“, sem byrjaði í kringum
1980, en engar heimildir eru um húð-
flúr á Íslandi fyrir þann tíma. Áður
fóru sjómenn til Hull eða Grimsby og
létu flúra sig, en með þessari vitneskju
um þessi gömlu tæki eru allar líkur á
því að það hafi einhverjir á árum áður
látið á sig flúr frá bandaríska hernum,“
segir Matthías. „Við erum að vinna að
þessu og erum á byrjunarstigi myndar-
innar og þess vegna viljum við biðla til
fólks um að hafa samband við okkur
ef það veit eitthvað meira um þetta,“
segir hann. „Það er aldrei að vita nema
að þarna úti eigi einhver afa sem skarti
60 eða 70 ára gömlu húðflúri frá banda-
ríska hernum,“ segir Matthías Már
Magnússon.
Heimildarmyndin Inked in Iceland
hefur hafið fjáröflun á Karolina Fund
og geta áhugasamir lagt verkefninu lið
á heimasíðu sjóðsins.
Hannes Friðbjarnarson
hannes@frettatiminn.is
Fleiri listamenn kynntir
á Airwaves
Airwaves-hátíðin verður haldin í sautjánda
sinn dagana 4.-8. nóvember og í vikunni
var tilkynnt um fleiri listamenn sem koma
fram í ár. Meðal þeirra sem bættust í
hópinn eru Sleaford Mods, Árstíðir, Gísli
Pálmi, Felicita, Beach House, Battles, Low
Roar, QT og Retro Stefson. Miðasala er
hafin á heimasíðu Iceland
Airwaves.
Matarmarkað-
ur á Hlemmi?
Dagur B. Eggertsson
borgarstjóri galopnar hug-
myndina um að matar-
markaður verði settur á
fót á Hlemmi í vikulegu
fréttabréfi sínu í gær. Hug-
myndir þessa efnis hafa oft
komið fram en nú, þegar
Reykjavíkurborg er að
taka við rekstri Hlemms og
Mjóddar af Strætó, er kannski von til þess
að þessi skemmtilega hugmynd geti orðið
að veruleika. Á næstunni verður auglýst
eftir hugmyndum og rekstraraðilum fyrir
Hlemm og Mjódd.
Skyrbjór í Skagafirði
Forvitnilegur bjór kemur í Vínbúðirnar í
dag ef að líkum lætur. Hann kallast Skyr-
gosi og er samvinnuverkefni bruggsmiðj-
unnar Gæðings í Skagafirði
og Evil Twin Brewing og Two
Roads Brewing Company.
Við gerð bjórsins var meðal
annars notuð skyrmysa,
skyr, birkireykt sjávar-
salt og þari og fjallagrös.
Sannarlega forvitnilegt
samstarfsverkefni þar á
ferð en til þess var stofnað
þegar fulltrúar erlendu
brugghúsanna sóttu The
Annual Icelandic Beer
Festival á Kex í lok febrúar.
Aðeins verða 500 flöskur
til sölu.
Lækkun um eina milljón króna
Samningur Reykja-
víkurborgar við Iceland
Airwaves um stuðning
borgarinnar við hátíðina
var kynntur í hátíðinni.
Styrkurinn nemur níu
milljónum króna í ár
sem er lækkun frá fyrri
árum. Síðustu þrjú ár
hefur styrkurinn numið
tíu milljónum króna á
ári. Borgin hefur stutt
Iceland Airwaves frá
árinu 2000 og nemur
stuðningurinn alls 77,5
milljónum króna.
Sími 412 2500 - sala@murbudin.is - www.murbudin.is
Kletthálsi Reykjavík
Reykjanesbæ
BOZZ
sturtuklefi
80x80cm
41.990
Fást einnig í 90x90cm á
kr. 43.990. Einnig eru til
rúnnaðir 90x90 klefar
á kr. 43.990
Sturtustöng og -brúsa fylgja.
GÆÐAVARA
Vatnslás og botnventill frá
McAlpine seldur sér á kr. 1.290
Guoren-BO Hitastýrt
tæki með niðurstút
kr.13.990
62 dægurmál Helgin 29.-31. maí 2015