Fréttatíminn - 29.05.2015, Page 64
HELGARBLAÐ
Sætúni 8, 105 Reykjavík. Sími: 531 3300 ritstjorn@frettatiminn.is www.frettatiminn.is
Sigríður Bylgja SigurjónSdóttir
Bakhliðin
Vel gefin og
hjartahrein
Nafn: Sigríður Bylgja Sigurjónsdóttir
Aldur: 27 ára.
Maki: Ingólfur Þorsteinsson.
Börn: Barnlaus en á fullt af yndislegum
frænkum og frændum.
Menntun: MSc í mannvistfræði,
menningu, völdum og sjálfbærni frá
Háskólanum í Lundi. BA í HHS (heim-
speki, hagfræði og stjórnmálafræði) frá
Háskólanum á Bifröst.
Starf: Verkefnisstjóri hjá Landvernd.
Fyrri störf: Allt frá fiskvinnslu til
garðyrkju og þjónustustarfa til þróunar-
mála.
Áhugamál: Ferðalög, veiði, köfun og
gæðastundir með vinum og fjölskyldu.
Stjörnumerki: Ljón.
Stjörnuspá: Fullkomnunarárátta er
streituvaldur. Dundaðu þér við kaffi-
drykkju, farðu í gönguferð eða gerðu
hvaðeina sem gefur þér svigrúm.
Hún er einstaklega skemmtileg og uppátækja-söm. Að fá að vera í kring-
um hana er stundum eins og að
fara í stærsta rússíbana í heimi.
Og að eiga við hana samræður
um landsins gagn og nauðsynjar
fær mann til þess að hugsa málin
upp á nýtt og í nýju ljósi. Annars
gæti ég skrifað langan lista yfir
það sem þessi vel gefna og hjarta-
hreina stúlka býr yfir,“ segir Lilja
Baldursdóttir, móðir Sigríðar
Bylgju.
Sigríður Bylgja Sigurjónsdóttir er verk-
efnisstjóri grænna viðburða og vinnur
auk þess við Grænfánaverkefni Land-
verndar og Hjarta landsins. Hún flutti
ræðu á mótmælunum við Alþingishúsið í
vikunni sem vakti athygli og fékk góðar
undirtektir.
Hrósið...
... fær Sigurður Sigurjónsson
leikari sem fer algerlega á kostum
í kvikmyndinni Hrútum sem frum-
sýnd var í vikunni.
Rains
regnfatnaður
Laugavegur 45
Sími: 519 66 99
Vefverslun: www.myconceptstore.is