Iðnaðarmál - 01.04.1968, Blaðsíða 12
hreint ekki verið sem bezt að undan-
förnu, og veittu honum áminningu.
Þetta eru vissulega allt fremur
frumstæðar tillögur, en þegar þú hef-
ur prófað nokkrar þeirra muntu
sennilega hafa komizt að raun um,
að hættan sé liðin hjá. Þú ert örugg-
lega kominn á þinn stað í röðinni.
Þú gætir jafnvel verið kominn á göt-
una.
5. Bældu niður kjarkinn
Góð forusta er ósérhlífin. Hún
getur leyft sér að vera kjarkmikil, því
að hún telur sig ekki ómissandi. Hún
þorir að taka á, því að hún trúir á
það, sem hún stjórnar.
Ein bezta aðferðin til að vera
ekki forustumaður er sú að vera
heigull, og hugleysið á rætur sínar að
rekja til eigingirni. Þú getur ekkibeitt
þessari aðferð nema með nokkurri
lipurð, og þú verður að vera fús til
að láta misskilja þig, en af öllum
þeim leiðum, sem liggja til flatneskju-
unnar, er þessi sú beinasta .
Þess vegna skaltu halda þér fast
við hana. Ekki stinga höfðinu út.
Eigðu ekkert á hættu. Láttu sam-
starfsmenn þína ekki vera í nokkrum
vafa um, að þér sé déskotann sama,
hvað verði um fyrirtækið — allt, sem
þú hafir hug á, sé að skara eld að
þinni eigin köku. Láttu það verða
kunnugt, að þú sért reiðubúinn að
selja ömmu þína fyrir góðan lífeyri,
launahækkun eða sumarbústað á
Þingvöllum.
Sýndu dálítið yfirlæti. Eyddu
löngum tíma fyrir framan baðher-
bergisspegilinn við að greiða hár þitt,
lagfæra bindið og dást að vel sniðn-
um jakkanum. Gefðu yfirmanni þín-
um í skyn, að skrifstofan þín sé ekki
nógu stór fyrir mann af þinni gerð
eða að mahony-skrifborð væri í
meira samræmi við stöðu þína í fyr-
irtækinu eða að maður með þín völd
ætti vissulega skilið að hafa allt
teppalagt út í horn.
Umfram allt, settu aldrei báða fæt-
ur sömum megin við neitt. Ef þú stíg-
ur öðrum fæti fram, þá gættu þess,
að hinn fari aftur á bak. Ef annar
fóturinn er innan dyra, haltu þá hin-
um fyrir utan. Þegar þú segir ef til
vill, þá gættu þess að bæta við og ef
til vill ekki. Talaðu tvírætt og dragðu
allt á langinn. Láttu aldrei setja þig á
þann stað, sem þú getur ekki hörfað
aftur frá í skyndi. Trúðu ekki á neitt,
treystu engum og starfaðu ekki fyrir
neinn — nema sjálfan þig.
Smásálirnar í fyrirtækinu munu
sennilega líta á þig sem slunginn ná-
unga, metnaðargjarnan mann, sem
Rörafrystir
Senn er það liðin tíð, að loka
þurfi fyrir heitavatnsleiðslur í heilu
stigahúsi eða íbúð, þótt lagfæra þurfi
smávægilegan vatnsleka.
Þýzka fyrirtækið Karl Weiss, Gies-
sen, 6301 Lindenstruth, hefur nýlega
sent á markaðinn rörafrysti, sem
stöðvar vatnsrennsli í pípulögnum.
Umrætt tæki er kassi, 40X55X40
sm, sem í er kæliútbúnaður, úrtökin
eru kælislöngur með festingum á %"
—2" rör.
Rörafrystinn má tengja við venju-
lega 220 V húsalögn. Þar sem stöðva
á vatnsrennsli í röri eru tengin fest,
og myndast þá ístappi í lögninni. ís-
tappar þessir eiga samkvæmt lýsingu
framleiðandans að þola 15 atm. þrýst-
ing og að sjálfsögðu ekki að skaða
pípulögnina.
Frystitíminn er háður hitastigi
vatnsins í rörunum. Ef vatnshitinn er
hafi augastað á forstjóraembættinu.
Stórlaxarnir munu sennilega álíta, að
þú sért að sprengja utan af þér bux-
urnar. En þeim skjátlast öllum, og
þú munt vera sniðugri en nokkur
þeirra, því að þegar á allt er litið, þá
ertu ekki að sækjast eftir því að vera
forustumaður — þú ert að leitast við
að vera það ekki. Og þér er sigurinn
($\ (*)
t. d. 20°C, myndast tappi í %" röri
á 2 mínútum, en í 2" röri á 30 mín-
útum.
Notkun rörafrystisins getur þýtt
betri hagnýtingu vinnuafls og komið
í veg fyrir ósamkomulag og leiðindi
þeirra, sem þurfa á þjónustu pípu-
lagningarmanna að lialda og finnst
smávægileg viðgerð óþarflega tíma-
frek.
Ur „Tidsskrift for varme ventilation
sanitet“, No. 8, 1S68.
Þýtt úr „Personnel Journal“,
marz 1968. — J. Bj.
74
IÐNAÐARMAL