Iðnaðarmál - 01.01.1973, Side 9
r----------------
'Gfni
ÁlagsstaSlar fyrir mannvirkja-
gerð ....................... 2
Forustugrein - Hvert liggur
leiðin? ..................... 3
Iðnaðarverkfræði - Erindi flutt
á ráðstefnu Félags verkfræði-
nema 29. apríl 1973 ......... 4
Verkstjórnarfræðslan - nám-
skeiðahald .................. 7
Sementsverksmiðja ríkisins árið
1972 - og stutt yfirlit yfir árin
1968-1971 .................. 10
Verk hf. - Ný tegund útveggja 14
Inniloft - Lífeðlisfræðilegar
kröfur ...................... 21
Frá vettvangi stjórnunarmála -
Nýjungar í starfsmannamálum
í Evrópu .................... 28
Nytsamar nýjungar .............. 30
Létt lijal - Þeir gömlu, góðu
dagar ....................... 34
Kynning UNIDO-sérfræðinga .. 35
Endurprentun háð leyfi útgefanda.
Ritstjórn:
Sveinn Björnsson (ábyrgðarm.),
Herdís Björnsdóttir,
Stefán Bjarnason,
Hörður Jónsson,
Jón Bjarklind.
Ráðgjafi um íslenzkt mál:
Bjarni Vilhjálmsson cand. mag.
Útgefandi:
Iðnþróunarstofnun Islands,
Skipholti 37, Reykjavík,
Sími 81533 (3 línur).
Askriftarverð kr 300,00 árg.
PRENTSMIÐJAN HOLAR HF.
V--------------------------------------/
lONAÐARMAL
20. ÁRG. 1973 . 1. HEFTI
Hvert liggur leiðin?
Eins og lesendum Iðnaðarmála er kunnugt hófst undirbúningur
að gerð iðnþróunaráætlunar í Iðnþróunarstofnun íslands í sept.
1971 með tilstyrk Iðnþróunarstofnunar S. Þ. (UNIDO). Voru drög
að áætlun þessari í tillöguformi afhent iðnaðarráðuneytinu í febrú-
arlok á þessu ári.
Enda þótt einn höfundur sé að þessu ritverki, Svíinn Olle Rimér,
hefur fjöldi manna kornið við sögu, innlendir og erlendir, á því 18
mánaða tímabili, sem starf þetta hefur staðið yfir. Hefur hlotizt af
þessu mikið álag á hið fámenna starfslið stofnunarinnar, sem hefur
m. a. bitnað á útkomu Iðnaðarmála.
Tillögur Rimérs eru nú til úrvinnslu í iðnaðarráðuneytinu, sem
ber að sjálfsögðu meginábyrgð á stefnumótun ríkisvaldsins í iðnað-
armálum.
í beinu framhaldi af áðurgreindu starfi, er nú unnið markvisst að
því að efla fræðslu- og ráðgjafastarfsemi á vegum Iðnþróunarstofn-
unarinnar einkum í því, er lýtur að þjónustu á sviði iðnaðarverk-
fræði og vöruþróunar. í þessu efni nýtur stofnunin fyrirgreiðslu
UNIDO og eru starfandi á hennar vegum um þessar mundir auk
Rimérs tveir danskir verkfræðingar, Mogens Höst og Erik Frost
(sjá bls. 35).
Það er að sjálfsögðu ríkisvaldsins að ákveða, hversu búið skal
að iðnaðinum af opinberri hálfu. Þegar um er að ræða ráðgefandi
þjónustu má segja, að slík starfsemi hér á landi hafi verið í lág-
marki um langt árabil samanborið við grannlöndin.
Grundvöllur hefur nú verið lagður að nýrri stefnu. Er aðeins
eftir að sjá, hvernig tekst til með framkvæmd hennar, m. ö. o. hvort
fé og mannafli fæst. Svarið verður að finna í fjárlögum næsta árs.
S. B.
IÐNAÐARMAL
3