Iðnaðarmál - 01.01.1973, Page 13
Verkstjórnarfraeðslan: Námskeiðahald
Lög um verkstjómarnámskeið frá '61
Ellefu ár eru liöin síðan nám-
skeiðahald fyrir verkstjóra hófst í
núverandi mynd. Það var árið 1962.
Arið áður hafði Alþingi samþykkt
lög um slík námskeið. Fyrirmyndir
að tilhögun námskeiðanna voru að
miklu leyti sóttar til Noregs.
f fyrstu báru námskeiðin heitið
Verkstjóranámskeiðin eins og nám-
skeið þau, sem Verkstjórasambandið
hafði efnt til áður. Fyrir tveimur ár-
um var hins vegar tekin upp sú venja
að tala um námskeið verkstjórnar-
fræðslunnar. Var það gert til að
leggja áherzlu á varanleika þessarar
fræðslu, svo og til samræmis við aðr-
ar tegundir fræðslustarfsemi á svip-
uðu stigi, sbr. Stjórnunarfræðsluna.
Tvenns konar námskeið eru hald-
in. Annars vegar er árlega efnt til
3—4 fjögurra vikna námskeiða. Þau
eru flest almenn, þ. e. opin verkstjór-
um úr öllum greinum en einnig hafa
verið haldin fjögurra vikna sérnám-
skeið fyrir verkstjóra í sláturhúsum,
frystihúsum og verkstjóra sveitarfé-
laga.
Alls hafa nú verið haldin 41 fjög-
urra vikna námskeið og þátttakendur
verið 625 talsins.
Framhaldsnámskeið hafa einungis
verið sex talsins, þar sem þau hófust
fyrst 1969. Heildarfjöldi þátttakenda
á þeim hingað til er 95.
Fjögurra vikna námskeið
Almennu námskeiðin eru haldin í
tvennu lagi, tvær vikur í hvort sinn.
Fyrri hlutinn er einkum helgaður
hinum mannlega þætti verkstjórnar-
innar, hagnýtri verkstjórn og vinnu-
35. námskeið
36. námskeið
IÐNAÐARMAL
7