Iðnaðarmál - 01.01.1973, Síða 14

Iðnaðarmál - 01.01.1973, Síða 14
sálarfræði. Farið er yfir helztu at- riði, sem auðvelda mannleg sam- skipti á vinnustað, og í hópvinnu er fjallað um verkefni, þar sem koma til úrlausnar ýmis vandamál verk- stjóra. Þá er í sérstökum límum fjall- að um öryggisráðstafanir á vinnu- stað, hvernig koma megi í veg fyrir slys með aðgæzlu og forða því, að dýrmætar vinnustundir glatist. I greininni atvinnulöggjöf er komið inn á helztu lagaákvæði og réttarregl- ur, sem varða vinnustaðinn, m. a. skaðabótaábyrgð fyrirtækis við ólík- ar aðstæður. Þá eru eldvarnir og heimsókn í slökkvistöð fastur liður á hverju námskeiði. Á síðari hlutanum er mestum tíma varið í námsefnin: vinnurannsóknir, vinnueinföldun og skipulagstækni. Eru þar kynntar merkustu aðferðir til að auka hagræðingu í fyrirtækj- um. Þá er á síðari hlutanum fjallað um nokkur helztu atriði rekstrarhag- fræði í því skyni að veita þátttakend- um betri skilning á nauðsyn hag- kvæms rekstrar, og einnig er farið yf- ir helztu atriði í atvinnuheilsufræði. Alls er stundafjöldi heggja nám- skeiðshlutanna 142 stundir. Þeir sem ljúka báðum hlulum hvers námskeiðs fá þátttökuskírteini. Stjórnun Stjórn Verkstjórnarfræðslunnar skipa nú þessir menn: Adolf J. E. Petersen formaður, til- nefndur af Verkstjórasambandi ís- lands, Magnús Gústafsson tæknifræðingur, tilnefndur af Vinnuveitendasam- handi Islands, 37. námskeið 39. námskeið 8 IÐNAÐARMAL

x

Iðnaðarmál

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Iðnaðarmál
https://timarit.is/publication/1105

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.