Iðnaðarmál - 01.01.1973, Blaðsíða 21

Iðnaðarmál - 01.01.1973, Blaðsíða 21
einingu. Steypan er látin vera í mót- inu í rúman sólarhring, en þá er einingin tekin úr í sérstakri afmótun- arvél. Mynd 4 sýnir teikningu af eining- artegundum þeim, sem boðnar eru. Með einföldum hjálpartækjum geta þrír menn reist veggeiningarnar á fljótan og auðveldan hátt. Notkun krana er óþörf. Einingarnar eru bolt- aðar saman jafnóðum að þéttilistum úr plasti. Þéttilistarnir eru sérstak- lega hannaðir fyrir þessar útveggja- 2. mynd. Myndin sýnir framleiðsluferil vegg- eininganna. einingar, og samskeyti hafa reynzt þétt - sjá mynd 7. Verk hf. hefur látið prófa þétti- lista þá, sem boðnir eru með eining- unum, og hafa niðurstöður þeirrar prófunar ekki gefið tilefni til að ótt- ast, að samskeytin leki. Ljóst er, að þétting lista er eitt veigamesta atrið- ið í byggingu einingahúsa. Fulltrúi ritnefndar ræddi þetta við forráða- menn Verk hf., og virtust þeir hafa fullnægjandi svör við spurningum eins og hvað gerðist, er sólarljósið skini á listann í lengri tíma, og jafn- vel því, ef þéttilistarnir ónýttust alveg með árunum. Annað atriði, er miklu varðar í byggingu einingahúsa með aðferð eins og þeirri, er hér um ræðir, er þétting við glugga. Forráðamenn Verk hf. hafa einnig velt þeirri spurn- ingu fyrir sér, og sýnir meðfylgjandi tafla niðurstöður prófana hjá Rann- sóknastofnun byggingariðnaðarins. í undirbúningi hjá Verk hf. er verksmiðjuframleiðsla á þaksperrum úr tré. Ef þaksperrur eru tilbúnar, þegar veggir eru reistir, má skorða húsið af jafnóðum. Hugsanlega má klæða þak með vætuvörðum plötum. Þakjárn getur verið bárujárn eða þakjárn með innbrenndu lakki í lit. Ef eitt eða tvö skilrúm í lengdar- átt hússins eru berandi, t. d. út tré, geta þaksperrur verið ódýrari. Má síðan slá upp öðrum tréskilrúmum eftir þörfum. Með slíku byggingar- lagi verður vinna rafvirkja og pípu- lagningarmanna tiltölulega einföld og fljótleg, og þurfa iðnaðarmenn ekki að koma jafnoft á byggingar- stað og nú gerist með hefðbundnum 3. mynd. Myndin sýnir áferð steypueininga í lok framleiðsluferils. aðferðum og er slíkt mikill kostur, sérstaklega í strjálbýli. Utveggjaeiningar henta mjög vel þeim, sem vilja og geta byggt sjálfir. Uppsetning er einföld, auðskilin og auðlærð, jafnvel alveg óvönum en vandvirkum mönnum. Veggeiningarnar henta flestöllum grunnmyndum, aðeins þarf að gæta þess, að lengdir í útveggjum séu margfeldi af 60 cm. I nýjum íslenzk- um staðli, ÍST nr. 20,2 frá 1.11. 1971, er gert ráð fyrir, að lárétt utan- mál húsa verði margfeldi af 30 cm, sem hentar þessum einingum mjög vel (60 cm). IÐNAÐARMAL 15

x

Iðnaðarmál

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Iðnaðarmál
https://timarit.is/publication/1105

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.