Iðnaðarmál - 01.01.1973, Page 26
að setja upp tréskilrúm. fullgera hita-
og raflögn, klæða með plötum, koma
fyrir hurðum, innréttingum og tækj-
um og hraða og einfalda byggingar-
stigin eftir „fokhelt“, enda liggur þar
u. þ. b. % kostnaðar. Yerk hf. getur
leiðheint væntanlegum kaupendum,
hvar hentug og ódýr byggingarefni
fást hverju sinni.
Flestar þekktar hitunaraðferðir
koma til álita, þótt rafhitun hafi ef-
laust ýmsa kosti.
Telja verður þetta merkilegt fram-
lag til framþróunar byggingarmála
hérlendis, og munu þessar bygging-
ar áreiðanlega ko:na víða til álita,
sérstaklega þar sem góð steypuefni
eru vandfundin og þar sem skortur
er faglærðra manna.
11. mynd. Myndin sýnir írágang í fokheldu
húsi.
10. mynd. Myndin sýnir uppsettan útvegg.
gólf og þann raka, sem þeim vinnu-
hrögðum fylgir. Er þá platan tilbúin
undir dúk- eða teppalagningu.
Með fyrrnefndri byggingaraðferð,
vélslípaðri plötu, steyptum veggein-
ingum, boltuðum saman, og verk-
smiðjuframleiddum þaksperrum má
stytta byggingartímann verulega að
fokheldu húsi.
Séu öll skilrúm nema við kyndi-
klefa byggð úr tré, sparast mikill
tími, sem annars fer í kyndingu og
þurrkun múrverks.
Umrædd aðferð er „þurr“ bygg-
ingaraðferð, þ. e. a. s. byrja má strax
20
IÐNAÐARMAL