Iðnaðarmál - 01.01.1973, Síða 27

Iðnaðarmál - 01.01.1973, Síða 27
Inniloft - Lifeðlisfræðilegar kröfur Eftip Hallvard Hagen, verkfræöing við Byggingarannsóknastofnun Noregs Þó að hinn almenni notandi íbúð- arhúsnæðis viti fullvel af eigin reynslu, hvers konar inniloft honum fellur bezt, og það jafnvel þótt hann hafi ekki minnstu þekkingu á líffæra- fræði og enda þótt oft beri að taka fullyrðingar einstakra sérfræðinga með varúð, getur það verið æskilegt að hafa ofurlitla þekkingu á þeim þáttum lífeðlisfræðinnar, sem hafa á- hrif á inniloftið. Hitaframleiðsla líkamans Hitavellíðan okkar er undir því komin, að jafnvægi sé haldið í hita- útláti og hitaframleiðslu líkamans (efnaskiptum) með þeim hætti, sem okkur er þægilegast. Hitaframleiðsla líkamans er bein- línis háð athafnasemi líkamans. Minnstu efnaskipti — hin svo nefndu grunnefnaskipti — eiga sér stað, þeg- ar við liggjum í djúpri hvíld í fasta- svefni. Fyrir venjulega, heilbrigða, fullvaxna manneskju má reikna grunnefnaskiptin 40 hitaeiningar á fermetra húðar í eina klst. Venjulega eru efnaskiptin miðuð við flatarmál húðar á líkamanum, þar sem þetta gefur miklu betri viðmiðun en t. d. líkamsþungi. Þessi tala, 40 kal/m2 h, er annars næstum hin sama fyrir öll spendýr, allt frá mús og upp í fíl. Grunnefnaskiptin eru nokkuð breytileg eftir einstaklingum. Hjá holdugu fólki með óvirkan vef (fitu) geta grunnefnaskiptin verið um 10% undir meðalagi, en hjá þjálfuðu fólki geta þau verið 5% yfir. Yfirleitt eru efnaskiptin 5-10% lægri hjá konum en körlum. Grunnefnaskiptin eru auk þess háð aldrinum. Nýfætt barn hefur aðeins grunnefnaskiptin 30 kal/m2 h, á aldrinum 4 ára nær það sem hámarki 55 kal/m2 h, en síðan lækkar talan jafnt eftir því sem árin líða, þannig að á elliárunum er hún aftur komin í 30 kal/m2 h. Þar sem húðyfirborð líkamans er frá 0,4 m2 á ungbarni og upp í 2 m2 á stórvöxnum karlmanni, verður út- koman sú, að grunnhitaframleiðsla líkamans er einhvers staðar frá 12-80 kal/m2 h (samsvarandi 15 og 90 wöttum). Hér á Norðurlöndum er yfirleitt gert ráð fyrir, að venjulegur fullvax- inn maður, 170 cm á hæð og 70 kg að þyngd, hafi 1,8 m2 húðyfirborð, og eru þá grunnefnaskiptin 40 X 1,8 = 72 kal/h. Áreynsla og efnaskipti Við sérhverja áreynslu hækka grunnefnaskiptin upp fyrir grunntöl- una, og við mestu líkamsáreynslu geta þau margfaldazt. Þetta kemur fram á töflunni hér á eftir, er sýnir, hvernig efnaskiptin eru háð hinni líkamlegu starfsemi hjá venjulegri (normal) manneskju. Starjsemi kal/h Djúpur svefn (grunntala)........ 72 Liggja rólega .................. 85 Sitja rólega ................... 95 Lesa upphátt .................. 105 Prjóna ........................ 115 Standa rólega ................. 115 Standa við létta vinnu (uppþvott) .................... 150 Röskleg vélritun .............. 150 Húshrfdngerning ............... 180 Ilóleg ganga, 3 km/klst........ 210 Rólegur dans .................. 220 Venjuleg ganga, 5 km/klst..... 320 Meðaltal af erfiðum vinnudegi . 550 Stutt hámarksáreynsla íþrótta- manna: Kappróður, hjólreiðar (þrekmælingahjól) .... 1500-3500 Þegar um er að ræða starfsemi, sem gera má ráð fyrir innan veggja heimilisins, er hitaframleiðsla full- vaxinnar „meðalmanneskju“ ein- hversstaðar á milli 72 kal/h (djúpur svefn) og 600 kal/h (hraður vínar- vals). Eðlilegra er þó að gera ráð fyrir þrengri mörkum, eða 80 og 130 KAL/h /5OD-350C' IÐNAÐARMAL 21

x

Iðnaðarmál

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Iðnaðarmál
https://timarit.is/publication/1105

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.