Iðnaðarmál - 01.01.1973, Síða 32

Iðnaðarmál - 01.01.1973, Síða 32
einkum hjá fólki, sem þolir illa þurrt húsaryk. Hins vegar er nokkuð óljóst, hvar setja ber takmörkin, en margir sérfræðingar telja nú, að frá hollustu- sjónarmiði ættu ekki að vera grund- völlur fyrir kvartanir, ef „relatívur“ raki er yfir 30%. Um miðjan vetur er rakinn í heim- ilum okkar oft um 30% og í kulda- köstum getur hann farið niður í 20%. A skrifstofum, þar sem enginn raki kemur frá eldhúsi, blómum o.fl. og loftræsting er auk þess öllu meiri, verður rakastigið oft nokkru lægra en á heimilum og getur þá komizt allt niður í 10%. Við vitum, að nú er allmikil sala í ýmiss konar loftraka- tækjum til heimilisnota, en óvíst er, að hve miklu leyti slík tæki fullnægja þörfum. Þar sem uppgufunarker þau, er áður voru notuð á miðstöðvarofna, komu aðeins að óverulegu gagni, eru hin nýju rakatæki svo mikilvirk, að þau geta verið varhugaverð. Þau geta auðveldlega komið rakanum upp í 50—60% í minni blokk-íbúðum, og þetta getur valdið talsverðum raka- skemmdum, ef byggingalag er gallað, og þess eru mörg dæmi. Því miður er það útbreidd skoð- un, að 50—60% raki sé „sá rétti“, og má e. t. v. rekja það til áletrana á sumum þeim rakamælum, er verið hafa á markaðnum, þar sem 40% raki er merktur með „þurrt“, 50— 60% með „eðlilegt“ og 70% með „rakt“. Þessir rakamælar eru gerðir fyrir amerískt sumarveðurfar, þar sem rakinn er plága og menn geta hrósað happi, ef rakinn fer niður í 50—60%. Ef við viljum auka rakann í inni- loftinu, ættum við að láta staðar numið við 40%. Þá ætti öllum mann- legum þörfum að vera fullnægt, og jafnframt ætti venjulegum, vel gerð- um byggingum ekki að vera hætta búin. Þörfin fyrir endurnýjun lofts Manneskja, sem situr í ró, andar að jafnaði hálfum lítra lofts við hvern andardrátt. Með 20 andardrátt- um á mínútu verða þetta 600 lítrar lofts á klst. Loftið, sem við öndum að okkur, inniheldur 21% súrefni og útöndunarloftið 1%. Það er því langt frá því, að súrefnisforðinn í þessum 600 lítrum sé notaður að fullu; raun- ar mætti nota loftið einusinni enn. Með öðrum orðum: Ef hvert okkar fær 1 m3 af fersku lofti á klst., er súr- efnisþörfum okkar fullnægt ríkulega. Ef við viljum bera súrefnisnotkun okkar saman við efnaskiptin við mismunandi áreynslu, er auðvelt að muna, að eins lítra súrefnisnotkun samsvarar 5 kal líkamshita. Maður, sem vinnur meðalstranga vinnu og hefur 300 kal efnaskipti á klst., mun því nota 60 lítra súrefnis á klst., eða fjórum sinnum meira en sofandi maður. Því hefur lengi verið haldið fram, að innihald loftsins af kolsýringi (COo) megi ekki fara yfir 0,1— 0,2%, en oft hefur verið sýnt fram á, að fólk, sem vinnur í lofti með tals- vert hærra kolsýringsmagni, t. d. við ölgerð, bíður ekki hið minnsta tjón. Við getum því andað rólega þess vegna. En nú skulum við minnast á loft- ræsiþörf, sem ekki miðast við 1 m3 á mann á klst. Þeir hollustuþættir, sem við venju- legar aðstæður ákvarða loftræsti- þörfina, eru lyktarefni, raki og of- hitun. Raki og ofhitun Við venjulega innistarfsemi gefur manneskja frá sér í hita um 100 kal/h (þar við bætist bundið hitamagn í formi uppgufunar um 50 g vatns/h, þ. e. um 30 kal/h). Þessi hiti mun við eðlilegar aðstæður ekki krefjast aukinnar loftræstingar á heimilum. Þau 50 g af raka, er við gefum frá okkur á klst., hafa heldur engan vanda í för með sér, þar sem inniloft- ið er, eins og áður getur, fremur of þurrt en of rakt. En við sérstakar aðstæður getur rakinn, er stafar frá fólki, skapað vandamál. Ef móðir, faðir og lítið barn liggja í sama svefnherbergi, munu þau yfir eina nótt gefa frá sér um 1 lítra vatns, í formi vatnsgufu, og þetta getur hæglega valdið raka- skemmdum í lélega upphituðum og illa loftræstum herbergjum. Þetta eru þó undantekningar. Yfirleitt eru það Lyktareinkennin eingöngu, er ákvarða, hve loftræst- ing er mikil á heimilum. Flest lyktar- efni, sem menn gefa frá sér, eru mjög óstöðug sambönd, sem brotna auð- veldlega niður í lofti. Gagnstæða við þetta er tóbaksreykur, sem er mjög stöðugur. Uppleysandi áhrif gera það að verkum, að loftræsiþörfin er 26 IÐNAÐARMÁL

x

Iðnaðarmál

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Iðnaðarmál
https://timarit.is/publication/1105

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.