Iðnaðarmál - 01.01.1973, Blaðsíða 35

Iðnaðarmál - 01.01.1973, Blaðsíða 35
Lufthansa sýndi, acf enginn var á móti hinu nýja fyrirkomulagi. Algjör meirihluti eða 95% starfsmannanna fannst það mikið hagræði og þæg- indi. Báðum stóru fyritækjunum hef- ur einnig að sögn reynst auðveldara að fá nýtt starfsfólk. Að sjálfsögðu er þó ekki unnt að láta þetta fyrirkomulag ná til allra. Móttökustjórinn við aðaldyr hjá Lufthansa verður ennþá að mæta til vinnu kl. 7 f. h. og vildi gjarnan, að hún þyrfti þess ekki. Boelkow getur ekki boðið þeim starfsmönnum, sem vinna við aðal- framleiðslulínuna þetta fyrirkomu- lag, þar sem framleiðsluaðferðin krefst þess, að á hverjum tíma sé á- kveðið vinnuafl til staðar. Sömuleiðis verða flugáhafnir Lufthansa að halda sig áfram við áætlanir flugvélanna. Skrifstofur, er sjá um farseðlana, hafa einnig valdið erfiðleikum. Sem stend- ur er Lufthansa að reyna nýtt sveigj- anlegt fyrirkomulag á skrifstofunum í Þýzkalandi, London og Hong Kong. Starfsmönnunum sjálfum er falið að gera þær ráðstafanir, sem þarf, til að viðskiptavinirnir þurfi ekki að bíða, og hingað til hefur það tekizt. Hið sveigjanlega fyrirkomulag hef- ur einn aukakost, sem er, að auðveld- ara er að fá mæður, er vinna utan heimilisins, til að gerast starfsmenn. Þetta leyfir þeim að koma til vinnu, þegar þær eru tilbúnar — börnin komin í skólann og helztu heimilis- störfum lokið. Það gefst einnig nægi- legt svigrúm til að sinna venjulegum vandamálum hinnar útivinnandi móður, eins og tímum hjá læknum og tannlæknum. Þessi kostur er mjög mikilvægur, þegar efnahagslífið er eins og í Vestur-Þýzkalandi, að starfs- menn vantar í 800.000 lausar stöður. Tvær mæður — Eitt starf Onnur aðferð til að fá mæður aftur út á vinnumarkaðinn með því að hafa sveigj anlegan vinnutíma hefur Irorið góðan árangur í Idollandi. Þar sá Albert Heyn verzlunarkeðjan, sem hefur aðalstöðvar í Zaandan, fram á alvarlegan vinnuaflsskort. Til að leysa hann auglýsti fyrirtækið eftir tveim mæðrum, sem vildu taka að sér eitt fullt starf í sameiningu. Hverjar tvær mæður taka sjálfar ákvarðanir um, hvor vinnur hvenær. Margar unnu saman ekki aðeins sem starfsmenn, heldur önnuðust þær jafnframt barnagæzlu hvor fyrir aðra, skiptust á um að gæta barna og fara til vinnu. Eins og sveigjanlega vinnutímafyrirkomulagið lét þetta kerfi starfsmennina sjálfa vera á- hyrga fyrir að leysa málið og hafði þannig í för með sér sveigjanleika án aukins stjórnunarkostnaðar. Þessi aðferð hefur gefizt svo vel, að verzl- unarkeðjan þarf ekki lengur að aug- lýsa eftir starfsfólki. Að yfirfæra nýjungar í starfsmanna- málum Höfundi þessarar greinar virðist ekkert því til fyrirstöðu, að báðar þessar nýju hugmyndir séu yfirfærð- ar óbreyttar til Bandaríkjanna. Sveigj anlega vinnutímafyrirkomulag- ið virðist eins og sniðið fyrir skrif- stofuhverfin í Bandaríkjunum, svo sem í New York og Chicago, þar sem umferðaröngþveitið er mikið vanda- mál. Að láta tvær mæður taka að sér starf virðist líklega henta vel við að vinna hvaða skýrt afmarkað eða ein- falt starf sem er, þar sem ekki er krafizt sérþekkingar eða erfitt er að fá sérhæft starfsfólk. Auk þeirra hugmynda, sem unnt er að yfirfæra óbreyttar, geta bandarísk fyrirtæki lært af því að kynna sér, hvernig velferðar- og hlunnindamál í Evrópu, sem eru til fyrirmyndar, falla raunverulega inn í myndina af heild- arviðskiptalífinu. Tökum t. d. Dan- mörku. Þar hefur hin stjórnmálalega öfluga verkalýðshreyfing fengið eft- irfarandi lögleitt inn í dönsk verka- lýðsmál: Lágmarkssumarleyfi fjórar vikur á fullum launum, 120 daga veikindaleyfi á ári á fullum launum; lágmark sex mánaða laun vegna upp- sagnar; fullkomnar tryggingar; leyfi vegna barnsfæðingar og almennt styttri vinnutíma en hér tíðkast. Allt er þetta að fullu greitt af einátökum vinnuveitendum án aðstoðar ríkis- valdsins. Að vísu eru laun lægri í Evrópu en hér, en hve lengi verður það svo? Evrópubúar áætla, að laun í Englandi muni hafa hækkað um 50% og enn meira á meginlandinu árið 1975. Yfir hluta af þessum árum er lík- legt, að launahækkunum í Bandaríkj- unum verði haldið í lágmarki vegna ráðstafana gegn víxlhækkunum kaupgjalds og verðlags. Þegar svo er komið, getur vel ver- ið, að helzti munurinn á vinnuafli í Bandaríkjunum og Evrópu liggi í til- Framhald ó 33. bls. IÐNAÐARMÁL 29

x

Iðnaðarmál

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Iðnaðarmál
https://timarit.is/publication/1105

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.