Iðnaðarmál - 01.01.1973, Page 37

Iðnaðarmál - 01.01.1973, Page 37
ÞverskurSur aj öryggisbíl VolkswagenverksmiSjanna. Óll sœti eru logsoðin föst til að auka styrkldka bílsins en ajtur á móti eru fótstig og stýri hreyjanleg. Benzíntankurinn (5) gelur ekki lekið. Við árekstur á meira en 25 km hraða koma hnéöryggishlífarnar jram. Högghlíjar með höggdeyji taka af höggið við árekstur á allt að 15 km hraða. Öryggisbíll frá Volkswagen A bílasýningu, sem haldin var í Kaupmannahöfn í janúar, var sýndur öryggisbíll ESVW frá Volkswagen- verksmiðjunum. Ameríska samgöngu- málaráðuneytið setti fyrir nokkrum árum fram kröfur til öryggisbíis ESV (Experimental Safety Vehicle) til þess að mynda reynslugrundvöll, sem í framtíðinni gæti aukið bæði virkt og óvirkt öryggi bifreiða okkar. Meðal þeirra verksmiðja, sem tóku þessum tilmælum, eru Volkswagen- verksmiðjurnar. Vinna 80 verkfræð- inga og tæknimanna, 44 tilraunir með tilraunabíla og 40 árekstrar með bilum í framleiðslu eru undan- fari ESV-fólksvagnsins, sem sýndur var í Kaupmannahöfn. GerSar kröfur Kröfurnar, sem yfirvöldin gerðu, voru, að farþegarnir lifðu af ýmiss konar slys, eins og: Árekstur að framan á fasta fyrir- stöðu á 80 km hraða eða tvær heilar veltur um lengdaröxul bílsins eða ákeyrslu helmingi þyngri bíls frá hlið á 48 km hraða eða hliðarárekst- ur á fastan stólpa á 24 km hraða eða árekstur á ská að framan á fasta hindrun — 80 km undir 15° horni, eða 48 km undir 45° horni, eða á- rekstur á 120 km hraða á kyrrstæðan bíl, sem er helmingi þyngri, eða á- keyrslu aftan frá af helmingi þyngra ökutæki, sem er á 64 km hraða. Til virks öryggis teljast kröfurnar um, að ESVW skuli geta ekið á hringbraut með þvermálið 30,5 m og með miðflóttakraftinn 0,65 G, að hann geti slengzt á 80 km hraða milli súlna, sem á milli eru 29,6 m. að hægt sé að beygja snögglega á 80 km hraða, án þess að hann velti, að hann víkji ekki meira en 1,37 m frá réttri stefnu á 6,1 m braut með hlið- arvind, sem er 80 km á klst., þegar bíllinn ekur á um 113 km hraða, og að hann geti stöðvað á 96 km hraðo á minna en 47,3 m, án þess að bíll- inn renni út af 3,66 m breiðri ak- braut. Föst sæti ESV Volkswagen-verksmiðjurnar uppfylla eða gera betur en að upp- fylla allar þessar kröfur. Bíllinn veg- ur 1450 kg, er 473 cm langur, 178 cm breiður og 140 cm hár. Fjarlægð milli öxla er 280 cm, og sporvíddin að framan er 154 cm og að aftan 148 cm. ESVW hefur fjögur afturljós, sem eru græn, til að öruggt sé, að ekki sé villzt á þeim og rauðu stöðvunar- Ijósunum. Þegar hemlað er snögg- lega, blikka þau mjög ótt til aðvör- unar þeim, sem á eftir koma. Aðeins við mjúka hemlun er ljósið stöðugt. Blikkljósin eru gul. Öll þessi ljós hafa tvenns konar ljósstyrkleika og lýsa sterkara í þoku. Við dagsljós eru blikkljósin og stöðvunarljósin sterkari en á nóttu. Oll ESVW-sætin eru föst nema ekilssætið, sem hægi er að hækka og lækka. Stýri og fótstig eru stillanleg við hæfi hvers ekils. Föstu sætin eiga mikinn þátt í styrkleika farþegarým- isins, því að sætisgrindurnar eru log- soðnar við hliðarstafi yfirbyggingar- innar. Oryggisólarnar í bílnum strengjast sjálfkrafa, og við árekstur, sem verð- ur með meira en 24 km hraða, verð- ur falin hnéöryggisól virk. Hcggr.lííar með höggdeyfi Vélin er að aftan, fjögurra strokka, loftkæld, 100 hestafla, tengd sjálf- skiptingu, sem gefur ESVW hraða- aukningu frá 50 til 110 km á klst. á 11,5 sek. Högghlífarnar að framan og aftan eru hreyfanlegar og festar við högg- deyfi, sem tekur við högginu við árekstur á litlum hraða, þannig að IÐNAÐARMÁL 31

x

Iðnaðarmál

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Iðnaðarmál
https://timarit.is/publication/1105

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.