Iðnaðarmál - 01.01.1973, Side 38
högghlífin fer aftur á sinn uppruna-
lega stað eftir áreksturinn.
Dyrnar hafa til styrktar innbyggða
kassalagaða stálbita í sömu hæð og
högghlífarnar. Ef innleidd væri stöðl-
uð hæð á högghlífum, myndi það
gefa mesta öryggið í öllum tilfellum.
Dyralæsingarnar geta ekki hrokkið
upp, jafnvel ekki við ákeyrslu frá
hlið, og geta þær staðizt allt að 3000
kg högg hver.
Framrúðuna hreinsar eitt þurrku-
blað, sem hreyfist þannig, að stefnan
fylgir alltaf stefnu loftstreymisins.
Það lyftist því jafnvel ekki frá fram-
rúðunni við mikinn hraða.
32
Öryggi er dýrt
Með þessari athyglisverðu bifreið
eru sýndar mögulegar, tæknilegar
lausnir á mörgum vandamálum um-
ferðaröryggis, en verðið er mjög
hátt.
Kostnaðarverð fyrir aukaútbúnað-
inn í ESVW er ca. 5100 dollarar, ef
hann yrði settur í fjöldaframleiðslu.
Bíllinn verður talsvert þyngri en
venjulegur bíll, sem hefur í för með
sér meiri benzineyðslu, svo að hann
verður dýrari í rekstri og mengun
loftsins eykst. Þessi flókni útbúnaður
hefur einnig í för með sér, að fleiri
hlutar þarfnast eftirlits, þannig að
reksturinn verður af þeirri ástæðu
dýrari.
Úr „Ingeniiírens Ugeblad, nr. 3“ 1973.
Pallklifra
Pallklifran er afbrigði af venju-
legum stiga, þ. e. hún sameinar stiga
og vinnupall. Starfsmaðurinn getur
staðið á láréttum vinnupalli og unn-
ið beint við vegginn í stað þess að
standa í höllum stiga. Vinnufjar-
lægðin er alltaf hin sama, hver sem
hæðin er.
Essve-klifran (framleidd af Essve
A/B) er í rauninni stigi með fjórum
fótum og palli með öryggisbrún.
Stiganum er haldið lóðréttum með
tveimur stoðum, er liggj a frá stigan-
um í vegginn, og tveimur stoðum frá
veggnum að stiganum. Pallurinn
rennur eftir innri hlið stigans að
veggnum.
Oryggisgrind og 10 cm hár kantur
á pallinum draga úr slysahættu.
Kanturinn á einnig að hindra, að
naglar, skrúfur og verkfæri detti nið-
ur.
Þegar vinna þarf uppi á veggnum,
stígur starfsmaðurinn á pallinn,
leggur taug yfir um hálsinn og klíf-
ur upp stigann. Pallurinn, sem veg-
ur 6 kg, fylgir eftir og festir sig
sjálfkrafa, þegar maður hættir að
klífa.
Þegar maðurinn vill fara niður,
leggur hann aftur lyftitaugina um
hálsinn og þrýstir á fjöður. Þá síg-
ur pallurinn um leið og maðurinn
klífur niður.
Úr „Ny Teknik", nr. 9, 1973.
Gólfhitun me3 plastpípum
Góður árangur — oiniöld lagning
Kostir plastpípnanna umfram stál-
og málmpípur við upphitun gólfa
felast í einfaldri lagningu, mótun og
viðnámi gegn ryðmyndun. í sund-
höll í Frankfurt voru gólfin í göng-
unum hituð upp með þessum hætti.
Notaðar voru lágþrýstipípur úr
polyethylene, 25 mm að þvermáli og
með 2,5 mm veggþykkt. Samtals voru
lagðir 3500 m af pípum, er hitaðar
voru með 40°C heitu vatni. Hitastig
gólfflísanna var 20—22°C.
Úr „Ajour“, nr. 2, 1973.
IÐNAÐARMÁL