Iðnaðarmál - 01.01.1973, Qupperneq 40

Iðnaðarmál - 01.01.1973, Qupperneq 40
Létt hjal Þeir gömlu, góðu dagar Yfirvofandi benzínskortur, sem er afleiff- ing „orkukreppunnar", og síhækkandi kjöt- verð, er stafar af vaxandi framleiffslukostn- affi, eru tvö ný vandamál, er varpa skugga á hversdagslíf hins almenna borgara. Art Buchwald skyggnist hér inn í framtíðina. „Pabbi, segðu mér einu sinni hvernig það var 1973, þegar allir, sem vildu, gátu ekið um í eigin bíl?“ „Ég veit, að það lætur ótrúlega í eyrum, drengur minn, en þá þurfti ekki annað en aka beint á benzínstöð- ina og hrópa „FylFann“ til af- greiðslumannsins. Og veiztu bvað? Hann varð að þurrka af framrúð- unni þinni — annars myndirðu ekki verzla við hann aftur.“ „Hættu nú pabbi. Nú ert’að kríta liðugt.“ „Ónei, þetta er sannleikur, dreng- ur minn. Og ekki nóg með það. Við höfðum miklu stærri bíla þá — þrisvar sinnum stærri en í dag — marga með 4 dyrum, loftræstingu og alls konar útbúnaði. Sumir gátu farið með meira en lítra af benzíni á kílómetra. Ég hugsa, að það séu einhverjar myndir af þeim hérna í alfræðirit- inu.“ „Vá maður, það hafa aldeilis verið bílar.“ „Og þá var manni leyft að aka einum í eigin bíl til vinnu eða í bæ- inn. Einn maður í 8 manna fólksbíl var ekkert óalgeng sjón.“ „Er það satt, að þú hafir getað ekið niður á strönd eða upp á fjöll eða á knattspyrnuvöllinn án þess að hafa leyfi Bílamálastofnunarinnar?“ „Það er dagsatt. Einu sinni ókum við móðir þín aila leið til Florida án þess að spyrja nokkurn um leyfi. Við bara fórum.“ „Hvað var það eiginlega, sem breytti þessu öllu, pabbi?“ „Það veit víst enginn með vissu. Menn eyddu bara benzíni og olíu, þangað til ekki var meira til. Ég man, að bílaverksmiðjurnar í Detroit til- kynntu 1973, að það liefði verið bezta árið. Þær höfðu selt fleiri og stærri bíla en nokkru sinni áður. En enginn hefði munað að segja þeim í Detroit frá því, að ekki væri til meira benzín á alla þessa stóru geyma. Það er ekki okkar vandamál, sögðu allir. í rauninni var þetta allt ósköp hlægilegt, því að einmitt þá var mik- ill gauragangur í Washington út af allri þeirri mengun, er stafaði frá bílum, og menn brutu heilann um nýjar tæknikröfur, er gera skyldi fyr- ir árgerðirnar 1976. Og svo leystist vandamálið sjálfkrafa: Það var ekk- ert benzín eftir til að menga eitt eða neitt.“ „Hvers vegna framleiddi Detroit ekki minni bíla, sem ekki þurftu svona mikið benzín?“ Vegna þess, að bílaframleiðendur sögðu, að Ameríkumenn hefðu eng- an áhuga á slíkum bílum. Þeir sögðu, að Ameríkumenn hefðu alltaf átt stóra bíla og ættu skilið að eiga stóra bíla, því að það væru stórir bílar, sem gerðu Ameríku að stórveldi. I dag eigum við auðvitað ekki annarra kosta völ enframleiða tveggj a strokka bíla, því að þeir eru hinir einu, sem við höfum efni á að eiga. Það er aug- ljóst mál, að þegar benzínið kostar 500 krónur lítrinn og fæst aðeins gegn skömmtunarseðlum, þá munu engir með fullu viti hefja framleiðslu á fjögurra strokka bílum.“ „Var það þess vegna, sem við urð- um að flytja aftur inn í borgina — af því að þú hafðir ckki lengur efni á að aka til vinnunnnr;“ „Já, drengur minn. Við bjuggum í útborg, þegar þú varst lítill, en þegar landið var benzínlaust, urðum við að flytja hingað aftur. Ég reyndi að vísu um tíma að hjóla til vinnunnar, en það voru 10 km hvora leið, svo að ég var oftast uppgefinn, þegar ég kom heim. Svo að við fluttum hing- að aftur. Og það er undarlegt, máttu trúa, því að þá bjuggu allir svert- ingjarnir inni í borgunum, en hinir hvítu í útborgunum. Nú búa allir hvítu mennirnir inni í borgunum, en svertingjarnir í útborgunum, því að þeir hafa ekki efni á að búa annars staðar. Reyndar höfðu þeir enga sér- staka löngun til að flytja þangað, en þegar hinir hvítu fóru að kaupa heilu borgarhverfin, áttu hinir svörtu ekki um annað að velja. Þeir eru sjálf- sagt miklu hamingjusamari þarna fyrir utan, þar sem þeir geta verið allir saman með fjölskyldum sínum.“ „Hverjum var það að kenna, að við urðum benzínlausir?“ 34 IÐNAÐARMÁL

x

Iðnaðarmál

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Iðnaðarmál
https://timarit.is/publication/1105

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.