Iðnaðarmál - 01.01.1973, Page 41

Iðnaðarmál - 01.01.1973, Page 41
Annálsbrot um íslenzkan iðnað Janúar - maí 1973 (Dagsetningar vísa til blaðagreina um mólin) Félag ísl. iðnrekenda átti 40 ára af- mæli 6. febrúar 1973. Fyrsti formaður þess var Sigurjón Pétursson verk- smiðjueigandi á Alafossi, þá Kristján Jóhann Kristjánsson forstjóri Kassa- gerðarinnar, næst Sveinn B. Valfells iðnrekandi og nú Gunnar J. Friðriks- son iðnrekandi. (6. 2. 73). Leirvinnsla er talin hagstæðust í Búð- ardal vegna kosta leirsins, en mark- aðsrannsóknir þarf að gera, áður en til verksmiðjureksturs kemur. (7. 2. 73). Fyrirtækið Sportver hefur náð 50% framleiðsluaukningu með skipulagðri vinnuhagræðingu. Fyrirtækinu var nýlega gefinn kostur á að sauma 2000 jakka fyrir danskt fyrirtæki, en gat ekki tekið því sökum anna. Fleiri slík tilboð standa fyrirtækinu til boða. (17. 2. 73). Vélsmiðjan Þrymur í Reykjavík hefur hafið framleiðslu á háþrýstum vökva- spilum fyrir flestar gerðir veiðarfæra. Áformað er að framleiða 3 stærðir af spilum, 5, 15 og 30 tonna. Frumteikn- ing spilanna var gerð í Verkfræði- stofu Sígurðar Thoroddsens sf., en teikningar síðan fullunnar af Þor- steini Guðlaugssyni. Hjá Þrym starfa nú 60 vélsmiðir. (17. 2. 73). Heildarútilutningur iðnaðarvara árið 1972 var 3.880 millj. króna á móti 1.177 millj. króna árið 1971. Án áls eru tölumar 1.164 millj. króna á móti 890 millj. króna. Aukning álsölu stafar af sölu birgða, sem söfnuðust fyrir árið 1971. Mest var aukningin í prjón- lesvöru og fatnaði, þá skinnavöru og niðursuðu. (27. 2. 73). Á uppboði minkaskinna hjá Hudson Bay & Annings í London nýlega var meðalverð á skinn um 1500 krónur, og er þetta hæsta verð síðan 1965. (2. 3. 73). I kynningu íslenzkra fyrirtækja í dag- blaðinu Tímanum birtist í dag eftir- farandi Sementsannáll: (4. 3. 73). 1756 John Smeaton, enskur verkfræð- ingur notar kalk, sem brennt var úr leirblöndnum kalksteini, til að hlaða Eddistonevitann. Rannsakaði ekki nánar. 1824 Joseph Apsdin finnur upp Port- land-sement. 1830 Fyrsta sementsverksmiðjan reist í Englandi. 1847 Sement notað (með öðru) til að þétta helluþak og við múrhúðun á Dómkirkjunni í Reykjavík. 1860 Sement notað við hafnargerð í Esbjerg. 1861 Franskur garðyrkjumaður, Jos- eph Monter, reynir að styrkja stein- steypu með járnstöngum. Undanfar- inn að járnbentri steinsteypu. 1864 Til landsins fluttar 33 tunnur af sementi til sölu. 1876 Reist „kalksteypuhús" í Görðum á Akranesi. Húsið var byggt úr steyptum steinum. 1878 Sement notað við smíði Garða- kirkju. 1880 íbúðarhverfi í Berlín einvörð- ungu úr steinsteyptum húsum. (Vik- torenstadt). 1881 Einar Jónsson, trésmiður steypir gólf í húsi í Reykjavík. 1895 Lætur Jóhann Eyjólfsson, bóndi í Sveinatungu steypa íbúðarhús í skriðmótum, sem hann fann upp. „Sveinatungumótin". Þetta var fyrsta húsið, sem var steypt í mótum hér á landi. Fleiri fylgdu í kjölfarið. Sama ár var steypt fjós á Akureyri. 1897 Steypt fjós við Barónsstíg í Reykjavík. 1902 Magnús Jónson, skósmiður á Isafirði, byggir tvílyft steinhús. 1903 Helgi Magnússon byggir tvílyft steinhús í Bankastræti í Reykjavík. 1903 Guðjón Sigurðsson byggir Ing- ólfshvol í Hafnarstræti. Það er fyrsta járnbenta steinhúsið, og margvíslegar nýjungar voru fleiri í því húsi. 1903 Félag stofnað til að reka grjót- mulning og steinagerð úr steinsteypu. „Mjölnir". Firmað malaði „Holtagrjót” í hæfilegar stærðir. Hætti störfum 1907. 1903 Ný byggingareglugerð í Reykja- vík, þar sem steinsteypt hús eru sett á sama bekk og önnur steinhús.

x

Iðnaðarmál

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Iðnaðarmál
https://timarit.is/publication/1105

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.