Iðnaðarmál - 01.01.1973, Síða 43
Kynnincj U NIDO • sérfræðinga
Mogens A. F. Höst er f. árið 1916 í
Kaupmannahöfn, lauk prófi í vélaverk-
fræði frá tækniháskólanum í Kaupmanna-
höfn 1941 og stundaði framhaldsnám í
iðnaðarhagfræði og skipulagningu við
tækniskólann í Stokkhólmi 1942. Hann
starfaði 1943—46 við ráðgjafastörf hjá
AB Industribyrán, deild í iðnaðarsamband-
inu sænska, og hjá iðnaðarráðinu danska
1946—47 við að stofnsetja framleiðnideild
Það er heitasta ósk konu minnar að eign-
ast mynd af mér sem smábarni.
innan þess. Eftir eins árs námsdvöl í
Bandaríkjunum, setti hann á stofn eigin
ráðgjafaskrifstofu í Kaupmannahöfn árið
1948 með tæknilega fyrirtækjastjórn sem
sérgrein. Höst fór árið 1957 á vegum Ford
Four.dation til Indlands til að stjórna áætl-
un um eflingu smáiðnaðar, og á 5 árum
aðstoðaði hann við að stofnsetja 16 ríkis-
stofnanir og 53 stofnanir í héruðum, sem
aðstoðuðu iðnaðinn í rekstrar og fjárhags-
tækrilegum og tæknilegum ntálum. Næstu
5 árin var hann á vegum Ford Founda-
tion í Afríku og Mið-Austurlöndum við
iðnþróunaráætlanir, en síðan tvö ár hjá
UNIDO í Vínarborg og 1969—71 við skipu-
lagsstörf á vegum bandaríska ráðgjafa-
fyrirtækisins H. B. Maynard and Company
í Evrópu. Hann kom til Islands í marz s.I.
á vegum Iðnþróunarstofnunar Sameinuðu
þjóðanna til að aðstoða við stofnun deild-
ar fyrir rekstrartæknilega aðstoð hjá Iðn-
þróunarstofnun Islands. Hann er kunnugur
íslenzkum málefnum, þar eð hann starf-
aði að ýmsum verkefnum fyrir Sölumið-
stöð hraðfrystihúsanna árið 1972.
Létt hjal
Framhald af 34. bls.
„Detroit kenndi Ralph Nader um
það, forsetinn kenndi þinginu, Arab-
arnir lögðu alla sökina á ísraels-
menn, og olíufélögin ásökuðu nátt-
úruverndarmennina í Alaska.“
„Það hefur sannarlega verið gam-
an að lifa 1973.“
„Því máttu trúa. Veiztu, að einu
sinni ókum við 7 km aðeins til að fá
okkur góðan bauta.“
,,Hvað er bauti, pabbi?“
„Æ, það skiptir engu máli. Það er
dálítið erfitt að tala um það.“
Úr „Farmand", nr. 20, 1973.
Erik Lauesen Frost er f. árið 1926 í Dan-
mörku, lauk prófi í vélaverkfræði frá
tækniháskólanum í Kaupmannahöfn 1953.
Hann starfaði hjá Dansk Signal Industri
A/S Kaupmannahöfn 1954—59 við hönn-
un öryggiskerfa fyrir járnhrautir. Frá 1959
hefur hann starfað hjá Jydsk Teknologisk
Institut í Arósum, Danmörku, fyrst sem
forstöðumaður vélaverkfæradeildar stofn-
unarinnar, en frá 1968 hefur hann verið
forstöðumaður verkfræðihönnunardeildar,
sem vinnur að efnisprófunum, framleiðslu-
hönnun, vélahönnun, sjálfvirkni, ráðgjöf
um skipulagningu, tækniþjálfun o. fl.
verkefnum. Frost kom til Islands í maí
s.l. á vegum Iðnþróunarstofnunar Samein-
uðu þjóðanna og mun dvelast hér í 8 mán-
uði til þess að veita aðstoð við að skipu-
leggja nýjar ráðgefandi þjónustudeildir hjá
Iðnþróunarstofnun Islands og þjálfa starfs-
krafta til þeirra starfa.
IÐNAÐARMAL
35