Franskir dagar - 01.07.2010, Síða 13
Franskir dagar - Les jours frangais
gill Ólafsson
Bergþór Pálsson
ÁSAMT KJARTANI VALDEMARSSYNI
dögum föstudaginn 23. júlí kl. 19 í Fáskrúðsfjarðarkirkju.
Þeir munu tileinka Sigfúsi Halldórssyni fyrri hluta dagskrárinnar,
en Sigfús hefði orðið níræður á hausti komanda. Það verður
gaman að heyra þá spreyta sig á perlunum hans Sigfúsar, sem
eru samofnar þjóðarsálinni, eins og Lítill fugl, í dag er ég ríkur
og Litla fagra, Ijúfa vina. Ef að líkum lætur gefst gestum kostur
á að taka undir með þeim félögum, a.m.k. í Litlu flugunni!
Eftir hlé fara þeir um víðan völl í þekktum erlendum lögum,
m.a. frá Frakklandi, Suður-Ameríku og jafnvel Kína! Að lokum
láta þeir gamminn geisa i syrpu af söngleikjalögum. Þeirféiagar
hafa sungið saman á skemmtunum N 8 ár og óhætt er að lofa
bráðskemmtilegum tónleikum. Forsala aðgöngumiða er í Frans-
mönnum á íslandi í Templaranum.
13