Franskir dagar - 01.07.2010, Qupperneq 29
Franskir dagar - Les jours frangais
2. mynd. Búðaströnd árið 1906. Kaupvangur og Saltariið lengst til hægri. Mynd Christian Flensborg.
og 1940 er Kaupvangur sagður byggður 1886. í
frásögn Sigmars Magnússonar „Þéttbýii verðurtil"
sem birtist i Múlaþingi árið 2000 kemurfram að
Norðmenn hafi byrjað síldveiðar í Fáskrúðsfirði
upp úr 1880. Komu þeir með hlaðin skip af efni til
húsbygginga og reistu bæði íbúðarhús og útgerð-
arhús. Meðal annars er nefnt að Friðrik Wathne
hafi komiðtil Fáskrúðsfjarðar árið 1886 ogstundað
þar sildarútgerð. Hann sest að á Búðaströnd en
svo var þorpið gjarnan nefnt á þeim tíma þegar
það var að myndast.
Hugsast getur að Friðrik Wathne hafi, við komu
sína til Fáskrúðsfjarðar árið 1886, reist verbúð
fyrir sjómenn sína og það hafi verið sú verbúð
og veiðafærageymsla sem munnlegar heimildir
greina frá í sambandi við uppruna Kaupvangs.
Byggingarárið 1886, sem fram kemur í fasteigna-
mati frá 1930, rennirstoðum undir þá hugmynd.
Á mynd af þorpinu, sem tekin var 1906 af dönskum
3. mynd. Kaupvangur (t.h.] sumarið 2009. í baksýn er Tangi. Mynd BBJ.
skógfræðingi, sést að bryggja tengir Kaupvang og
nærliggjandi fiskvinnsluhús saman (sjá mynd 2).
Þetta fiskvinnsluhús, svokallað Saltarí, er í fast-
eignamati einnig sagt byggt 1886. Af þessu má
leggja fram þá tilgátu að upphaflega hafi þessi hús,
Kaupvangur og Saltaríið, verið byggð samtímis
og þá í tengslum hvort við annað sem verbúð og
fiskvinnsluhús. í manntali frá 1890 er Kaupvangs
ekki getið og hefur húsið líkiega ekki verið orðið
íbúðarhús á þeim tíma.
Árið 1894flytja hjónin Guðmundur Jónsson og
Hólmfríður Jónsdóttirfrá Seyðisfirði til Fáskrúðs-
fjarðar og setjast að í Wathneshúsi. Ári síðar,
1895, eru Guðmundur og fjölskylda hans hins
vegar komin í hús sem kallað er Eyrarkrókur. Árið
1896 er húsið nefnt Krókur og íbúar þeir sömu.
Guðmundur var oft kallaður „Gvendur í Króki" sam-
kvæmtfrásögnum. Ein vísa um hann hefur varð-
veist í munnmælum: „Gvendur í Króki, klórar sér,
kókar (ræskir sig) og segir: „heyrðu mér".
Miðað við ofangreindar heimildir er líklegt að
Kaupvangi hafi verið breytt í íbúðarhús á tíma-
bilinu frá 1890 til 1894 og húsin tvö, Kaupvangur
og Saltaríið, þá verið sameiginleg útgerðareining.
Líklegt má teljast að vesturendi Kaupvangs sé
viðbygging frá árinu 1894 en greinilegt er af um-
merkjum í kjallara og víðarað sá hluti erbyggður
við. Á Ijósmynd sem sýnir húsið í fullri lengd má
greina skil í borðaklæðningunni sem koma heim
og saman við stærð viðbyggingarinnar (sjá mynd
1). í húsavirðingu frá marsmánuði 1896 eru virt
tvö hús í eigu Guðmundar Jónssonar, ekki er
getið um nöfn þeirra en annað er skráð pakkhús
og sölubúð en hitt íbúðarhús. Mál pakkhússins
samsvara vel málum Valhallarog hið sama gildir
um íbúðarhúsið, mál þess samsvara vel málum
Kaupvangs. íbúðarhúsið er þarna skráð 19 álnir
á lengd sem jafngildir um það bil 12 metrum sem
er núverandi lengd Kaupvangs. í fasteignamati
sem gert var 1918 eru þrjú íbúðarhús talin upp í
eigu Guðmundar Jónssonar. Miðað við uppgefnar
stærðir er þar, að öllum líkindum, um að ræða
Valhöll (byggingarár þarskráð 1915) og Kaupvang
(byggingarár þar skráð 1894). Óvíst er hins vegar
hvert þriðja húsið er. Kaupvangur hefur því verið
íbúðarhús frá árinu 1895 og Kaupvangur og Valhöll
bæði verið í eigu Guðmundarfrá 1896.
Ýmislegt bendir til að tengsl hafi verið milli
Friðriks WathneogGuðmundar Jónssonaren þeir
komu báðir frá Seyðisfirði til Fáskrúðsfjarðar og
Guðmundur býr fyrst eftir komu sína að Búðum í
Wathneshúsinu. Af heimildum um Wathneshúsið
á Seyðisfirði að dæma, sem í dag hýsir bæjarskrif-
stofur Seyðisfjarðar, svipar gluggaskrauti á því húsi
mjögtil þessgluggaskrautssemáðurvará Kaup-
vangi. Gluggaskraut þetta er sjaldgæft og sérstakt
að því leyti að útskorið tré er fest á gluggakapp-
ann. Einnig þetta rennir stoðum undir þá tilgátu
að söguleg tengsl séu milli Wathneshúss á Seyð-
isfirði og Kaupvangs á Fáskrúðsfirði.
í manntali frá 1901 ertalað um Guðmundarhús
og Guðmundur þar skráður kaupmaður. Þá eru 14
manns í heimili í húsinu, þar af fimm börn Guð-
mundar og Hólmfríðar. í manntali frá 1910 er
húsið aftur nefnt Krókur og eru þar til heimilis
Guðmundur og Hólmfríður með börn sín Ásgeir,
Kristján, Aðalstein, Guðrúnu, Sigríði og Valdísi.
Einnig eru þar í heimili Jón, Guðrún Björg og Stein-
móður.
í Sálnaregistri frá 1916 kemurfram að hjónin
Brynjólfur Jónsson og Þórunn Jensína Halldórs-
dóttir eru það ár búsett i Guðmundarhúsi en Guð-
mundur og Hólmfríður flutt í Verslunarhús G.J.
(seinna nefnt Valhöll). Samkvæmt manntali frá
29