Franskir dagar - 01.07.2010, Blaðsíða 30
Franskir dagar - Les jours franqais
1920 eru GuSmundur og Hólmfríður þá húsráð-
endur í Valhöll sem var byggð að hluta úr öðru húsi,
Konráðshúsi, sem stóð í þéttbýlinu í Mjóafirði. Guð-
mundur keypti það hús, léttaka það ofan árið 1918
ogflytja á Fáskrúðsfjörð. Valhöll var reist ofan á
Saltaríið sem var salthús á einni hæð ásamt risi
í eigu Guðmundar. Kjallari Valhallar var því áður
salthús byggt 1886 og líklega hefur Valhöll risið
í nokkrum áföngum á árunum 1915 til 1926. Sam-
kvæmtfasteignamati frá 1930 er Valhöll hækkuð
og endurbyggð árið 1915 og efsta hæð hússins
útbúin til íbúðar árið 1926. í manntali frá árinu
1940 erValhöll enn I eigu Hólmfríðar.
Miðað við ofangreindar heimildir hafa hjónin
Guðmundurog Hólmfríður flutt í Valhöll árið 1916
en Jensína og Brynjólfur þá flutt í Guðmundarhús. í
manntali frá 1920 er ekki getið um Guðmundarhús
en aftur á móti er þar hús nefnt Kaupangur og sagt
vertshús og heitir vertinn Brynjólfur. Brynjólfur
og Jensína ráku kaffihús og ölstofu í Kaupangi
um nokkurt skeið, jafnvel öll ár sín þar, eða fram
til 1941. Á mynd af húsinu, sem talin ertekin um
1930, sést skilti sem auglýsir kaffihúsið og ölstof-
una Kaupang (sjá mynd 1). Þetta er í samræmi
við frásögn Hrefnu Björnsdóttur um að Brynjólfur
Jónsson húsasmiður og Jensína Halldórsdóttir
hafi búið í Kaupangi og rekið þar ölstofu og litla
verslun. Öl- og kaffistofan var á neðri hæð hússins
en verslunin í kvisti á norðurhlið. Hrefna man eftir
að hafa komið inn í bæði kaffihúsið og verslunina,
sennilega fram til ársins 1941 en þá var Hrefna
12 ára. Hún segir: „Verslunin var lítil, eins konar
sjoppa þar sem aðal lega var selt sælgæti og helstu
nýlenduvörur, ég man aðallega eftir bolsíum í
stórri glerkrukku en þær hafa líklega vakið mesta
athygli mína á þessum árum." Hrefna man eftir
að kona að nafni Guðný (systir Jensínu eða Brynj-
ólfs) hafi búið ásamtfóstursyni sínum Aðalsteini
Björnssyni í innherbergi á efri hæð hússins. Jens-
ína og Brynjólfur bjuggu þá í framherbergi á efri
hæðinni og þeim hluta hússins á neðri hæð sem
ekki var kaffistofa.
Næstu eigendur Kaupvangs, á eftir Brynjólfi og
Jensínu, eru Karl Jónsson frá Hornafirði og kona
hans Ingibjörg Sigurbjörnsdóttir frá Hólagerði
í Fáskrúðsfirði. Þau hafa líklega eignast húsið
árið 1941 eða 1942 en samkvæmtfrásögn Gunn-
hildar Stefánsdóttur, frænku Ingibjargar, fæðast
tvö elstu börn þeirra annars staðar, 1940 og 1941.
Þriðja barn þeirra, Stefán Geir, fæðist hins vegar
í Kaupvangi 15. janúar 1942. Þetta kemur heim
og saman við frásögn Sigurbjargar Bergkvists-
dóttur, en hún var barnfóstra hjá hjónunum árið
1942. Karl og Ingibjörg hafa aðeins átt húsið I
nokkur ár því Baldur Björnsson og Valborg Björg-
vinsdóttir kaupa það afþeim árið 1949. Baldurog
Valborg bjuggu í húsinu til ársins 1996 en þá lést
Valborg. Baldur bjó áfram I Kaupvangi til ársins
1997 en fluttist þá að dvalarheimilinu Uppsölum
á Fáskrúðsfirði. Hann átti húsið þó áfram og kom
þangað reglulega fram á síðasta dag haustið 2007.
Kaupvangur er nú í eigu afkomanda Valborgar og
Baldurs en árið 2008 eignuðust Birna Baldurs-
dóttir og Bæring Bjarnar Jónsson húsið.
Lokaorð
Hér hefur verið gerð grein fyrir sögu Kaupvangs svo
langt sem heimildir ná. Þó að ekki sé hægt að full-
yrða um byggingarár Kaupvangs benda heimildir
til að elsti hluti hússins hafi verið byggður árið
1886 og þá sem verbúð og veiðarfærageymsla.
Hugsanlegt er að húsið hafi verið byggt að til-
stuðlan Friðriks Wathne sem kom til Fáskrúðs-
fjarðar 1886, settist að á Búðaströnd og stundaði
þar síldarútgerð. Líklegt er að húsinu hafi verið
breytt í íbúðarhús árið 1894 fyrir Guðmund Jóns-
son útgerðarmann semflutti það ártil Fáskrúðs-
fjarðar. Ýmislegt bendir til að tengsl hafi verið
milli FriðriksWathneogGuðmundaren þeirkomu
báðir frá Seyðisfirði og fyrst eftir komu sína til
Fáskrúðsfjarðar bjó Guðmundur I Wathneshúsinu
sem var í eigu Friðriks. Þá má nefna að af heim-
ildum að dæma svipar gluggaskrauti sem áður var
á Kaupvangi mjögtil gluggaskrauts Wathneshúss
á Seyðisfirði en skrautið er sjaldgæft og sérstakt
að gerð. Þetta rennir frekari stoðum undir þá til-
gátu að söguleg tengsl séu milli Wathneshúss á
Seyðisfirði og Kaupvangs á Fáskrúðsfirði.
Kaupvangur er, samkvæmt ofangreindu, þriðja
elsta húsið á Búðum en aðeins Sjólyst (1884) og
Wathnes-sjóhús (1882) eru eldri. Eigendur Kaup-
vangs vilja stuðla að því að húsið verði varðveitt
og þess gætt af alúð í framtíðinni svo það sómi
sér vel í kjarna franskra og norskra húsa. Eru nú
hafnar endurbætur á húsinu og er fyrsti áfangi
þeirra að færa glugga hússins smátt og smátt í
upprunalegt horf.
Höfundar: Birna Baldursdóttir
og Bæring Bjarnar Jónsson
Helstu heimildir eru fengnar úr fasteignamati frá 1916,
1930 og 1940 og úr manntölum frá 1890, 1896, 1901,
1910, 1920 og 1940 í vörslu Þjóðskjalasafns íslands en
einnig úrgrein Sigmars Magnússonar Þéttbýli verður til.
Um myndun Búðaþorps, sem birtist í Múlaþingi 27 árið
2000. Um aðrar heimildir, munnlegar og skrifiegar, er
hægt að fá nánari upplýsingar hjá höfundum.
Þökkum eftirtöldum aðilum stuðninginn við Franska daga:
BÍLAFELL - PEX - ESKJA - SÍLDARVINNSLAN
SPARISJÓÐUR NORÐFJARÐAR - SECURITAS
FJARDANET - MANNVIT- NJÁLL SU 8 EHF
ÞVOTTABJÖRN EHF - BRIMBERG
GULLBERG - SPORÐUR
30