Reykjanes - 07.05.2015, Page 2

Reykjanes - 07.05.2015, Page 2
2 7. Maí 2015 REYKJANES 9. TBL.  5. ÁRGANGUR 2015 ÚTGEFANDI: Fótspor ehf. Ábyrgðarmaður: Ámundi Ámundason, sími: 824 2466, netfang: amundi@fotspor.is. Framkvæmdastjóri: Ámundi Steinar Ámundason, netfang: as@fotspor.is. Auglýsingastjóri: Ámundi Ámundason, Suðurlandsbraut 54,  108 Reykja vík. Auglýsingasími: 578 1190, netfang: auglysingar@fotspor.is. Ritstjóri: Sigurður Jónsson, netfang: asta.ar@simnet.is, sími: 847 2779. Myndir: Ýmsir. Umbrot: Prentsnið Prentun: Ísafoldarprentsmiðja. Upplag: 8.000 eintök. Dreifing: Íslandspóstur. Vefútgáfa PDF: www. fotspor.is REYKJANES ER DREIFT Í 8.000 EINTÖKUM ÓKEYPIS Í ALLAR ÍBÚÐIR Á REYKJANESI. Frí blað ið Reykja nes vill gjarn an kom ast í sam band við íbúa Suð ur nesja. Seg ið ykk­ ar skoð un með því að senda inn pist il. Send ið inn fyr ir spurn. Vin sam leg ast send ið okk ur tölvu póst á net fangið asta. ar@sim net.is eða hring ið í síma 847 2779. VILTU SEGJA SKOÐUN ÞÍNA? Á biðlista efir hjúkrunarrými á Suðurnejum eru núna 57 einstaklingar. Það er hátt hlutfall miðað við þörfina á landinu öllu. Á aðalfundi DS fyrir stuttu ræddu sveitarstjórnarmenn þessa stöðu. Þörfin fyrir fjölgun hjúkrunarrýma er brýn. Fyrsta skrefið til að eitthvað gerist er að samstaða ríki milli sveitarfélaganna hér hvernig staðið verði að málum. Það var full samstaða á sínum tíma um uppbyggingu Nesvalla. Stjórn DS,sem skipuð er fulltrúum Reykjanesbæjar,Garðs,Sandgerðis og Voga telja rökréttasta fyrsta skrefið að að endurbyggja og stækka Garðvang. Það er mikið fagnaðarefni að full samstaða skuli ríkja meðal fulltrúa sveitarfé- laganna í DS.Nú er framundan að ná samningum við heilbrigðisráðherra um frekari uppbyggingu hjúkrunarheimilisins Garðvangs þannig að þar verði hægt að reka allt að 30 rýma hjúkrunarheimili. Standi sveitarstjórnarmenn á Suðurnesjum saman með dyggum stuðningi þeirra sjö þingmanna sem hér búa hljótum við að vænta þess að hratt verði unnið þannig að mesti bráðavandinn verði leystur. Hvers vegna Bjarni og Sigmundur Davíð? Forystumenn ríkisstjórnarinnar hafa gefið mörg fyrirheit um að hrinda í fram- kvæmd mörgum góðum málum,sem kæmu öllu launafólki til góða. Því miður hafa þetta hingað til verið orð en ekki efndir og framkvæmdir. Bjarni Benediktsson fjármálaráðherra hefur talað um það bæði fyrir og eftir kosningar að lækka eða fella niður virðisaukaskatt af barnafötum. Það myndi bæta verulega kjör barnafólks. Öruggt má telja að þeir verst stöddu hafa ekki möguleika á að versla erlendis og tryggja þar með mun ódýrarari barnaföt. Reykjanes spyr,hvers vegna bara orðin tóm? Nánast engin verðbóla er núna. Hvers vegna eru vextir ekki lækkaðir til sam- ræmis við það sem gerist í nágrannalöndum okkar? Það væri mikil kjarabót fyrir fyrirtæki og launafólk. Sjálfstæðisflokkurinn berst fyrir lækkun skatta og vissulega hafa verið stigin skref í þá áttina. Það væri samt flott innlegg í kjarabaráttuna að hækka skatt- leysismörkin. Eðli málsins samkvæmt myndi það koma hinum lægst launuðum og millitekjuhópum best. Því hefur verið marg lofað að lækka tryggingagjaldið verulega á fyrirtæki. Hvers vegna er ekki staðið við það? Með lækkun gjaldsins ættu atvinnurekendur auð- veldara með að samþykkja launahækkun. Ríkisstjórnin boða úrbætur í húsnæðismálum. Hvers vegna gerist ekki neitt? Ríkisstjórnin lofað að greiða eldri borgurum til baka skerðingar Vinstri stjórn- arinnar frá 2009. Hvers vegna geris ekkert? Eins og marg oft hefur komið fram er gífurleg þörf fyrir fjölgun hjúkrunarrýma fyrir aldraða. Það er ekki nóg að tala. Það þarf að forgangsraða. Miðað við upptalninguna hér að ofan hvað lítið er að marka loforðin er ekkert skrítið að Píratar skuli mælast stærsti flokkur landsins. Sigurður Jónsson, ritstjóri Leiðari Ánægjuleg tíðindi sveitarstjórnarmanna frá aðalfundi DS Reykjanes kemur næst út fimmtudaginn 21. maí 2015.NÆSTA BLAÐ Almenn ánægja með árangurinn Á fundi Skólanefndar í Garði voru núlega teknar fyrir niðurstöður Logos lesskimunarprófs í 3. og 6. bekk og talnalykils í 3. bekk. Skólastjóri Gerðaskóla fór yfir Logos lesskimunarpróf 3. og 6. bekk sem tekið var á skólaárinu. Almenn ánægja er með árangurinn og brugð- ist hefur verið við niðurstöðunum með því að móta heildstæða lestr- arstefnu fyrir allan skólann. Mark- miðið er að festa vinnubrögð og að- ferðir í sessi þar sem eftirfylgni með hverjum nemanda stór þáttur. Þá gefa niðurstöður talnalykils í 3. bekk vís- bendingar um að sú góða vinna sem unnin hefur verið með bekkinn sé að skila sér. Ályktun um makrílkvóta Stjórnmálasamtökin Dögun hafna alfarið lagafrumvarpi ríkisstjórn-arinnar um kvótasetningu á makríl. Dögun hafnar þeim þjófnaði og þeirri einkavinavæðingu sem þar er ráðgerð. Dögun bendir á að veiðireynsla stór- útgerðarinnar byggist að stórum hluta á óábyrgum veiðum til mjölvinnslu, sem miðuðust við að landa sem mestu magni af makríl óháð þeim verðmætum sem hægt var að búa til. Íslenska þjóðin og fulltrúar hennar á Alþingi eiga ekki að ljá máls á því að verðlauna örfáa útgerðaraðila sem ganga augljóslega gegn almannahagsmunum. Grindavík: Starfsfólk fær frí Bæjarstjóri leggur fram eftir-farandi tillögu á fundi bæjar-stjórnar Grindavíkur 28. apríl s.l. Bæjarstjórn Grindavíkurbæjar sam- þykkir að loka öllum starfsstöðvum sínum frá og með kl. 12: 00 á kven- frelsisdaginn 19. júní næstkomandi og veita starfsfólki frí. Með ákvörðuninni sýnir bæjarstjórn 100 ára afmæli kosningaréttar íslenskra kvenna virðingu og hvetur starfsmenn til að taka þátt í skipulögðum hátíða- höldum þann dag sem áformuð eru í tilefni af 100 ára afmæli kosningaréttar íslenskra kvenna. Samþykkt samhljóða Vorferð eldri Sjálfstæðismanna Sameiginleg vorferð Félags eldri sjálfstæðismanna á Suðurnesjum, FES og Samtaka eldri sjálfstæðis- manna, SES verður farin 20 maí nk. Farið verður í rútu frá Nesvöllum kl. 11: 00 og þurfa þeir sem vilja takk þátt í vorferðinni að skrá sig í síma 897-3895 (Leifur) í síðasta lagi miðvikudaginn 13. maí nk. Ferðatilhögun: Ekið verður út á Reykjanesið að Orkuver- inu Jörð, þ. s. Albert L. Albertsson mun taka á móti hópnum og kynna Orkuverið Jörð og næsta nágrenni þess og boðið verður upp á léttar veitingar. Klukkan 12: 30 verður ekið að fyrirtækinu Stakkavík í Grindavík og þar verður boðið upp á harðfisk og fiskisúpu. Bjarni Benediktsson formaður Sjálf- stæðisflokksins mun mæta á staðinn og ávarpa hópinn. Um klukkan 14: 00 verður farið í skoðunarferð um Grinda- vík og klukkan 15: 00 verður ekið í Bláa lónið, þ. s. helstu framkvæmdir verða kynntar og boðið upp á kaffi. Áætluð heimferð er um klukkan 16:00. Garður: Gert við dráttarvél Bæjarráð Garðs bókaði á fundi sínum. „Vegna bilunar dráttar-vélar er lagt til að samþykktur verði viðauki að fjárhæð kr. 1.600.000 til að fjármagna viðgerðarkostnað. Útgjöldum verði mætt með samsvar- andi lækkun á liðnum 21011-4997. Breytingin hefur ekki áhrif á rekstrar- niðurstöðu fjárhagsáætlunar“. Ný yfirstjórn í Gerðaskóla Stöður beggja skólastjóra við Gerðaskóla í Garði eru auglýstar lausar til umsóknar, en um 200 nemendur stunda nám við Gerðaskóla og býr skólinn við mjög góðan aðbúnað og aðstöðu. Einkunnarorð skólasamfélagsins í Garði eru: Árangur, virðing, gleði, leikur, sköpun og ábyrgð. Síðustu ár hafa verið mjög tíð skóla- stjóraskipti í Gerðaskóla. Samkvæmt auglýsingu sem nýlega birtist verður alfarið ný yfirstjórn í Gerðaskóla frá næsta skólaári. Grindavík: Forstöðumannaskipti á Bókasafninu Nýlega lét Margrét R. Gísla-dóttir formlega af störfum sem forstöðumaður bókasafnsins og Andrea Ævarsdóttir tók við. Margrét lætur nú af störfum eftir 17 ára farsælt starf hjá Grinda- víkurbæ. (Heimasíða Grindavíkur) Sala á kindakjöti eykst Samkvæmt nýjustu tölum um framleiðslu og sölu helstu bú-vara er kindakjöt enn í sókn. Söluaukning síðasta árið er 7,9%, frá lokum mars að telja. Ef litið er til fyrsta ársfjórðungs þessa árs er aukningin 22,8%. Til samanburðar jókst sala á alifuglakjöti á sama tímabili um 6,8%, nautakjötssala um 1,7% og svínakjöts- sala 4,6%. Hrossakjötssala dróst hins vegar saman um 6% á fyrsta ársfjórð- ungi. Útflutningur er ekki inni í þessum tölum. Söluaukning kindakjöts í janúar, febrúar og mars gefur vísbendingu um að 2015 geti orðið gott ár fyrir sauðfjár- bændur. Gleðilegt sumar! Þróttur í Þrótti Ásgeir Eiríksson skrifar föstu- dagspistla, Voga- hraðferð. Í einum pistlanna segir hann: „Knattspyrnu- menn eru farnir að huga að s u m r- inu og það styttist í að leiktíðin hefjist. Þróttr tók þátt í hinni árlegu Lengjubik- arkeppni og luku riðlakeppni C-deildar með því að fara ósigraðir í gegnum riðilinn. Þróttur mætti Knattspyrnu- félaginu Kára í úrslitakeppninni, sem vann rimmuna 4-1. undirbúningur undir keppnistímabilið heldur áfram.

x

Reykjanes

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Reykjanes
https://timarit.is/publication/990

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.