Reykjanes - 07.05.2015, Qupperneq 4

Reykjanes - 07.05.2015, Qupperneq 4
4 7. Maí 2015 Snjókallinn skrifar’: Þetta er svínarí Ásmundur Friðriks-son al- þingismaður hefur verið drjúgur að benda á ýmislegt sem betur mætti fara í okkar þjóðfélagi. Nýlega benti hann á að frá 1. janúar 2013 til 1. mars 2015 hefði verð á svína- kjöti til neytenda hækkað um 8,43%. Á sama tíma hefði verð á svínakjöti frá bændum lækkað um 8,91%. Þetta er algjört svínarí. Á hvaða vegferð er verslun í landinu spyr Ásmundur. Snjó kall inn skrif ar: Vilja að hægt verði að reka 30 rýma hjúkrunar- heimili á Garðvangi Aðalfundur Dvalarheilis aldrðara á Suðurnesjum var haldinn 22. apríl s.l. Þau ánægjulegu tíðindi urðu á fundinum að samstaða var hjá fulltrúum sveitarfélaganna að vinna að frekari uppbyggingu á Garðvangi. Eftir- farandi tillaga var samþykkt með öllum greiddum atkvæðum. „Aðalfundur DS hvetur sveitarfé- lögin á Suðurnesjum til að bregðast við bráðavanda í málefnum sjúkra aldraðra á Suðurnesjum og sameinast um sam- þykkta tillögu síðasta aðalfundar og ein- henda sér í framhaldinu í að ná samn- ingum við heilbrigðisráðherra fyrir hönd ríkisvaldsins um endurbyggingu og frek- ari uppbyggingu hjúkrunarheimilisins Garðvangs þannig að þar verði hægt að reka allt að 30 rýma hjúkrunarheimili“. Greinargerð Þörfin fyrir uppbyggingu á þjónustu fyrir eldri borgara á Suðurnesjum er brýn. Nú eru 57 á biðlista eftir vist á hjúkrunarheimili og allt bendir til að staðan á Suðurnesjum versni enn frekar á næstu árum. Til að hægt sé að svara þeirri miklu þörf sem er fyrir uppbyggingu hjúkr- unarrýma á Suðurnesjum telur stjórn D. S. lykilatriði að samstaða náist milli sveitarfélaganna á svæðinu. Þótt upp- bygging hjúkrunarrýma sé alfarið ver- kefni ríkisvaldsins og á ábyrgð þess þá þurfa suðurnesjamenn að sameina krafta sína, marka sér sameiginlega stefnu í málefnum eldri borgara á Suðurnesjum og tryggja fjölgun hjúkrunarrýma á Suðurnesjum. Stjórn D. S. telur rökréttasta fyrsta skrefið vera að endurbyggja og stækka Garðvang og leita samstarfs við Heil- brigðisstofnun Suðurnesja um rekstur- inn. Stjórnin telur að rekstur 30 hjúkr- unarrýma á Garðvangi undir stjórn HSS verði til þess að hægt verði að leysa þann bráðavanda sem upp er kominn í þjón- ustu við aldrað fólk á svæðinu. Þá þarf að efla og samþætta betur samstarf fé- lagsþjónustu sveitarfélaganna og HSS. Hugsa þarf einnig til framtíðar og byrja undirbúning nýrrar 60 rýma álmu við Nesvelli. Tillagan er í samræmi við markmið laga um málefni aldraðra og reglugerða settum á grundvelli þeirra laga, þar sem fram kemur að markmið laganna er að aldraðir geti eins lengi og unnt er búið við eðlilegt heimilislíf en þeim sé jafn- framt tryggð stofnanaþjónusta þegar hennar er þörf. Taka þarf umræðuna í sveitarfé- lögunum á Suðurnesjum ekki seinna en nú. Snemma í haust þarf að liggja fyrir, hvort og hvað, hvert sveitarfélag getur lagt til þessa mikilvæga verkefnis, uppbyggingu hjúkrunarrýma fyrir sjúka aldraða á Suðurnesjum, eitt mest að- kallandi verkefnis okkar samfélags sem verður aðeins illviðráðanlegra ef ekk- ert er að gert. Stjórn D. S. mun boða til fundar snemma á haustdögum með sveitarstjórnarmönnum ásamt stjórn Öldungaráðs Suðurnesja. Stjórnin telur mikilvægt að sveitarfé- lögin sameinist um og riti undir viljayf- irlýsingu um það hvernig standa eigi að uppbyggingu hjúkrunarrýma fyrir sjúka aldraða á Suðurnesjum. Þannig tryggjum við best að ákvarðanir sem teknar verða í náinni framtíð af ríkisvaldinu í þessum mikilvæga málaflokki verði teknar með hagsmuni Suðurnesja að leiðarljósi Eysteinn Eyjólfsson formaður stjórnar DS Páll Valur Björnsson þingmaður Bjartrar framtíðar: Lægstu laun hafa verið og eru þjóðarskömm Einn af nýju þingmönnunum sem tók sæti á Alþingi eftir síðustu kosningar er Páll Valur Björns- son í Grindavík. Hann situr á þingi fyrir Bjarta framtíð. Kjörtímabilið er nú að verða hálfnað. Reykjanes heyrði aðeins hljóðið í þingmanninum. - Hvernig vinnustaður er Alþingi? Er þetta eins og þú reiknaðir með? Alþingi er afskaplega þægilegur og gefandi vinnustaður þar sem allajafna ríkir góður andi það hefur mér fund- ist að minnsta kosti. Það kastast að sjálfsögðu oft í kekki inn í þingsalnum sjálfum þegar að einstök málefni eru rædd og því miður eru það oft einu myndirnar sem almenningur sér af störfum þingsins. Störf í nefndum ganga oftar en ekki mjög vel fyrir sig og ágætur samstarfsvilji er ríkjandi. Það er svo ekki hægt að tala um Alþingi sem vinnustað án þess að nefna allt það stórkostlega starfsfólk sem þar starfar við að láta hlutina ganga snuðrulaust fyrir sig. Þar er valinn maður í hverju rúmi sem setur fagmennsku, þekkingu og virðingu í forgang í öllum sínum störfum og er okkur þingmönnum góð fyrirmynd. - Á hvaða mál hefur þú helst lagt áherslu á? Ég get alveg sagt það kinnroðalaust að þessi tvö fyrstu ár mín á þingi hef ég lagt áherslu á að setja mig inn í þetta starf, kynnast því og átta mig á því út á hvað það gengur að vera þingmaður. Það er meira en að segja það að starfa við þetta og enginn verður óbarinn biskup í þessu sem öðru, starfið er gíf- urlega krefjandi og það felst í því mikil vinna að koma sér inn í einstök mál. Það sem ég hef lagt áherslu á er að reyna að auka samstarf og virðingu á milli þingmanna þvert á flokka. Í Rannsóknarskýrslu alþingis 8. bindi segir m.a. að íslensk stjórnmála- menning sé vanþroskuð og einkenn- ist af miklu valdi ráðherra og oddvita stjórnarflokkanna. Þar segir líka að þingið ræki illa umræðuhlutverk sitt vegna ofuráherslu á kappræðu þar sem þekking og rökræður víkja fyrir hernaðarlist og valdaklækjum. Í maí 2013 var gefin út skýrsla sem unnin var af Félagsvísindastofnun Háskóla Íslands og fjallaði um traust til alþingis. Þar kom fram að ein helsta ástæða þess að almenningur bæri ekki traust til alþingis væri samskiptamáti þing- manna og ítrekað talað um virðingar- leysi þingmanna gagnvart skoðunum hvers annars. Þingmenn stæðu frekar í „skítkasti“ og „karpi“ en málefna- legri umræðu og að samskiptum þeirra væri best lýst með því að þeir væru í sandkassaleik. Þess vegna hef ég lagt mikla áherslu á að starfa með og koma vel fram við „andstæðinga“ jafn sem samherja í pólitík. Ég tel það langfar- sælast til þess að hér sé hægt að byggja upp heilbrigt samfélag sem hlúir vel af öllum sínum þegnum. Það er mín staðfasta trú að til þess að hér fái þrifist fallegt og gott samfélag þá þurfum við að styrkja grunninn og leggja mikla áherslu á menntun barna okkar og búa þau undir og kenna þeim hvað felst í að búa í siðmenntuðu samfélagi. Búa þannig börnin okkar (framtíð- ina) undir þátttöku í lýðræðissamfélagi með þjálfun í málefnalegri rökræðu og skoðanaskiptum. Takist það vel þá þurfum við ekki að hafa áhyggjur af framhaldinu. Annars styð ég öll góð mál sem miða af því að efla velferðarkerfið og auka hagsæld í samfélaginu. - Kjarabaráttan er hörð um þessar mundir. Hvernig mun þetta enda? Ég vildi að ég hefði svör við því um það hvernig þetta endar en ég vona svo sannarlega að gengið verði að kröfum verkalýðsins. Ég styð heilshugar kröf- una um 300 þúsund króna lágmarks- laun og finnst það í raun hlægilega lág upphæð. Það geri ég í ljósi þeirrar launaþróunar sem átt hefur sér stað hjá þeim sem eru í efstu lögum samfé- lagsins, það virðast engin takmörk vera fyrir því hversu há laun sá hópur getur skammtað sér. Nú gildir að standa saman og láta ekki deigan síga í þeirri viðleitni að hér verði öllum tryggð mannsæmandi laun. Lægstu laun hafa verið og eru þjóðarskömm og það er löngu tímabært að þau verði leiðrétt. - Ert þú sáttur við útkomu Bjartrar framtíðar í skoðanakönnunum? Það segir sig sjálft að það er ég ekki, fylgi okkar hefur sigið stöðugt niður á við í undanförnum könnunum hverju sem um er að kenna. Við erum stjórnmálaafl sem höfum lagt áherslu á reyna að breyta stjórnmálunum, auka samvinnu og samræður, eyða málþófi og „sandkassaleiknum“. Það er mitt mat að við höfum í einu og öllu staðið við það sem við lögðum upp með fyrir kosningar. Fólk hróp- aði á nýjar áherslur, ný viðmið og breytta stjórnmálamenningu, bað um meira samstarf þvert á flokka í þeirri viðleitni að koma samfélaginu í það horf að allir geti unað sáttir við sitt. Stjórnmálafræðingur sagði í viðtali að Björt framtíð hafi lagt áherslu á að vera mildari og hafa annan tón í pólitík, það er greinilegt, þrátt fyrir óskir fólks um breytt stjórnmál að sú nálgun er ekki að gera sig. En hver er sinnar gæfu smiður í þessu sem öðru og við í Bjartri framtíð verðum að skerpa okkar mál- flutning og koma okkar áherslum og stefnumálum betur á framfæri. Sú ríkisstjórn sem nú situr við völd er skelfilega vond ríkisstjórn og það er full þörf á verulegum breytingum í stjórnmálum landsins og við teljum að getum lagt mikið fram við þessar breytingar. En það er nú samt alltaf almenningur sem á síðasta orðið, það er hann sem ákveður í kosningum hverjir skulu með valdið fara og þeim niðurstöðum verður maður að hlíta hvort sem manni líkar betur eða verr. Ekki tekin lán til framkvæmda Þó nokkuð verður um fram-kvæmdir í Grindavík í sumar á vegum sveitarfélagsins. Reykjanes hafði samband við Róbert Ragnarsson, bæjarstjóra, Sagði hann að framkvæmt yrði fyrir 400 milljónir og bærinn þurfi ekki að taka lán vegna þess. Árið 2015 verða fjárfestingar Grinda- víkurbæjar um 400 milljónir króna, þessar helstar: • Klára 1. áfanga íþróttamiðstöðvar, verkefni sem hófst undir lok árs 2013. • Breyting á bæjarskrifstofum • Gatnagerð og stígar, gatnalýsing • Frágangur gangstétta og opinna svæða í Hópshverfi • Ungmennagarður við Ásabraut • Yfirlögn malbiks og ný vatnslögn við Seljabót • Klára göngu-og hjólreiðastígur frá Bláa Lóninu að Gíghæð. Fjármagnað með veltufé frá rekstri og um 126 milljóna framlagi af HS sjóðnum Ekki verða tekin lán til framkvæmd- anna.

x

Reykjanes

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Reykjanes
https://timarit.is/publication/990

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.