Reykjanes - 07.05.2015, Qupperneq 6
6 7. Maí 2015
Eignaumsjón er óháður fagaðili þegar kemur að rekstri húsfélaga og rekstrarfélaga – og því frábær lausn fyrir eigendur atvinnuhúsnæðis. Í okkar umsjá
ertu í góðum höndum - við sjáum um fjármálin, fundina, undirbúning framkvæmda og viðhalds og annarra þátta sem þarf að leysa.
Er húsfélagið í lausu lofti ?
»
Vantar óháðan aðila til að annast málefni húsfélagsins eða rekstrarfélagsins ?
Eignaumsjón hf . – Suður landsbraut 30 – Sími 585 4800 – afgreids la@eignaumsjon. is – www.eignaumsjon. is
Hvert er gjald gagn-
rýninnar blaðamennsku?
Bókin Mannorðsmorðingjar – Faglegar og persónulegar pæl-ingar um stöðu fjölmiðlunar á
Íslandi eftir Björn Þorláksson er Ný
komin út hjá Bókaútgáfunni Sölku .
„Ef fjölmiðlar þegja yfir því sem
miður fer, þora ekki annað – meðal
annars vegna þess að þeir vilja ekki
lenda upp á kant við umhverfi sitt –
hvaða áhrif hefur þá slík þöggun til
langframa fyrir samfélag, af hvaða
stærð sem er? “
Björn Þorláksson hefur undan-
farna áratugi starfað sem blaðamaður,
fréttastjóri, ritstjóri, útvarpsmaður,
sjónvarpsmaður og þáttastjórnandi.
Hann hefur oft lent í hringiðu stór-
atburða og stundum þurft að taka
afleiðingum óvægins fréttaflutnings,
enda þekktur fyrir snöfurmannlega
framgöngu í fjölmiðlum. Hér er hvorki
á ferðinni venjuleg blaðamennskubók
né dæmigert fræðirit, heldur umfjöllun
um hlutverk og stöðu íslenskra fjöl-
miðla með sjálfsævisögulegu ívafi.
Björn hlífir hvorki sjálfum sér né
öðrum, og útkoman er ögrandi lesning,
skemmtileg og upplýsandi.
„Í bókinni sem hér liggur fyrir koma
saman margir þræðir sem í heild leiða
lesandann að betri skilningi á félags-
legu og lýðræðislegu hlutverki fjöl-
miðlanna ásamt því að veita innsýn
í sínálægan tilvistarvanda hins góða
blaðamanns.“
Þorbjörn Broddason prófessor
Vinaliðar gera frímín-
útur skemmtilegri
Njarðvíkurskóli fór nýlega af stað með svokallað vinaliða-verkefni. Verkefnið gengur
út á að hvetja nemendur til meiri
þátttöku í leikjum og afþreyingu í
frímínútum og skapa betri skólaanda.
Þannig sjá vel valdir nemendur í 3. til
6. bekk skólans um leiki sem eiga að
höfða til allra krakka á fyrstu skóla-
stigum. Verkefnið er styrkt af Kven-
félaginu Njarðvík og Foreldrafélagi
Njarðvíkurskóla. Vinaliðaverkefnið er
norskt að uppruna, það hefur á fáum
árum náð mikilli útbreiðslu og er nú
starfrækt í yfir 1000 skólum í Noregi.
Vinaliðaverkefnið er hluti af
Vinaverkefninu og gengur út á það
að hvetja nemendur til meiri þátttöku
í afþreyingu í frímínútunum og skapa
betri skólaanda. Aðal markmiðið með
þessu verkefni er að bjóða öllum nem-
endum skólans fjölbreyttara úrval af-
þreyingar í frímínútum, þannig að
nemendur skólans finni eitthvað við
sitt hæfi. Markmið okkar er að allir
nemendur skólans hlakki til að mæta
í skólann sinn, alla daga.
29 nemendur í 3.–6. bekk gegna
hlutverki vinaliða í Njarðvíkurskóla
en hlutverk þeirra er að setja upp, taka
þátt í og aðstoða við afþreyingu í frí-
mínútum. Að sýna yngri nemendum
sérstaka athygli sem og þeim sem eru
einir í frímínútunum. Að láta vita af
því ef vinaliðinn telur að nemendum
í skólanum leiðist, séu einmana eða
ef hann verður vitni að einelti og
útilokun eða öðru sem getur valdið
vanlíðan nemenda.
Skólalóðin og frímínúturnar eru
samkvæmt eineltisrannsóknum einn
helsti vettvangurinn fyrir einelti.
Vinaliðaverkefnið er ekki eineltisá-
ætlun heldur stuðningsverkefni við
eineltisáætlun skólans og er hug-
myndafræðin sú, að þar sem boðið
er upp á skipulagt starf, fái gerendur
eineltis aðra hluti til að hugsa um.
Aðgerðarleysi er nefnilega oft rótin
að slæmum hlutum.
Mikilvægt er fyrir börn og ung-
linga að fá fjölbreytta hreyfingu og
skemmtun og er það nauðsynlegur
hluti af þroska þeirra, enda hafa
rannsóknir sýnt að það sé samhengi
milli hreyfingar og námsgetu. Við
viljum því að framboð af hverskonar
hreyfileikjum og annarri afþreyingu
í frímínútunum sé fjölbreytt og
skipulagt þannig að sem flestir finni
eitthvað við sitt hæfi. Vinaliðaverk-
efnið er okkar leið til að mæta þessu,
en í verkefninu eru settir upp leikir og
afþreying af nemendum og á þeirra
forsendum. Nemendur skólans hafa
svo að sjálfsögðu val um hvort og þá
hvaða leikjum þeir taka þátt í.
Í Njarðvíkurskóla eru Svandís
Gylfadóttir og Jóhanna M. Karlsdóttir
umsjónarmenn verkefnisins.
Hvað væri gaman að starfa við
Á dögunum var haldin heljar-innar starfskynning í Íþrótta-húsinu við Sunnubraut. Mikill
fjöldi unglinga mætti til að fá upplýs-
ingar um hin ýmsu störf. Gott framtak
að kynna fyrir unga fólkinu hin marg-
víslegu störf sem atvinnulífið býður
uppá. Hugsanlega hafa einhverjir tekið
ákvörðun um framtíðarstarfið eftir
kynninguna , en örugglega eru þeir
margir sem þurfa að velta hlutunum
betur fyrir sér. Reykjanes leit við og
tók nokkrar myndir.