Reykjanes - 07.05.2015, Page 9

Reykjanes - 07.05.2015, Page 9
7. Maí 2015 9 Afgangur í Grindavík og engin ný lán Á fundi bæjarstjórnar Grindavíkur 28. apríl s.l. var ársreikningur 2014 lagður fram Rekstrarniðurstaða A-hluta var afgangur að fjárhæð 125,1 milljón króna. Áætlun gerði ráð fyrir 34,3 milljónum króna í rekstrarhalla. Rekstrarniðurstaða í samanteknum reikningsskilum A og B hluta, er 194,5 milljónir króna í afgang en áætlun gerði ráð fyrir 4,4 millj- ónum króna í rekstrarafgang. Munar þar mestu um að rekstrartekjur eru 207,0 milljónum króna yfir áætlun. Vegna lægri verðbólgu en áætlað hafði verið eru verðbótagjöld 20,7 millj- ónum lægri en áætlun gerði ráð fyrir. Helstu frávik í rekstri samantekinna reiknings- skila A og B hluta eru: - Útsvar og fasteignaskattur eru 63,4 milljónum króna hærri en áætlun gerði ráð fyrir. - Framlög Jöfnunarsjóðs eru 84,3 milljón króna hærri en áætlun. - Aðrar tekjur eru 59,3 milljónum króna hærri en áætlun. - Laun- og launatengd gjöld eru 37,9 milljónum króna hærri en áætlun. - Annar rekstrarkostnaður er 10,6 milljónum króna hærri en áætlun gerði ráð fyrir. - Afskriftir eru 12,6 milljónum króna lægri en áætlun. - Fjármagnsliðir eru 18,8 milljónum króna hagstæðari en áætlun gerði ráð fyrir. Heildareignir í samanteknum reikningsskilum A og B hluta eru 8.174,9 milljónir króna. Heildar- skuldir og skuldbindingar eru 1.517,6 milljón króna. Lífeyrisskuldbinding er um 483,6 milljón króna og þar af er áætluð næsta árs greiðsla 19,7 millj- ónir króna. Langtímaskuldir eru 743,1 milljón króna og þar af eru næsta árs afborganir26,9 milljónir króna. Eigið fé í samanteknum reikningsskilum er 6.657,3 milljónir króna og er eiginfjár- hlutfall 81,4%. Skuldahlutfall A- og B-hluta skv. 2. tl. 64. gr. sveitarstjórnarlaga nemur 62% af reglulegum tekjum. Þar af eru 20% vegna skuldar sem til er komin vegna kaupa á Orkubraut 3 af HS Orku hf. en sú skuld er 492,9 milljónir króna og er greidd með auðlindagjaldi og lóðarleigu frá HS Orku hf. Skuldaviðmið skv. 14. gr. reglu- gerðar nr. 502 frá 2012 er negatíft í A-hluta þar sem hreint veltufé er hærra en heildarskuldir að teknu til- liti til frádráttar vegna lífeyrisskuld- bindingar. Í A- og B-hluta er skulda- viðmiðið 6,6% Rekstur í samanteknum reiknings- skilum A og B hluta skilaði 400,7 millj- ónum króna í veltufé frá rekstri sem er 16,5% af heildartekjum en áætlun gerði ráð fyrir veltufé frá rekstri að fjárhæð 222,3 milljónir króna. Fjárfesting í varanlegum rekstrar- fjármunum í samanteknum reikn- ingsskilum A og B hluta nam á ár- inu 2014, 806,3 milljónum króna en áætlun gerði ráð fyrir 789,6 milljónum króna. Helstu frávik frá áætlun eru vegna fjárfestingar í gatnagerð og lægri tekjum vegna gatnagerðargjalda. Á árinu voru engin ný lán tekin en afborganir langtímalána voru 49,2 milljónir króna. Handbært fé lækkaði um 289,6 milljónir króna en áætlun gerði ráð fyrir lækkun að fjárhæð 589,7 millj- ónum króna. Handbært fé í árslok 2014 var 1.297,4 milljónir króna. Bæjarstjórn Grindavíkur Samþykkt samhljóða að vísa ársreikn- ingi Grindavíkurbæjar og stofnana hans fyrir árið 2014 til síðari umræðu í bæjarstjórn. Við erum til Það var virkilega góð stemning í Sambíó við Hafnargötuna á dögunum þegar Félag eldri borgara á Suðurnesjum bauð uppá sýningu myndarinnar „Við erum til“. Umsjón með gerð myndarinnar var í höndum Helgu Margrétar Guðmunds- dóttur, sem flutti ávarp fyrir sýningu myndarinnar og stjórnaði svo umræðu eftir sýningu. Myndin er byggð upp á viðtölum við nokkra aðila sem er um og yfir nírætt. Þessir einstaklingar búa einir í eigin húsnæði og hafa verið virkir í félags- starfinu um árabil. Það kom vel fram í myndinni hversu mikilvægt það er eldri borgurum að vera virkir í félagsstarfinu. Það skiptir svo miklu máli að vera virkir þátttak- endur. Það skiptir svo miklu að rjúfa félagslega einangrun, efla félagsauð og forvarnir. Myndin var vel sótt og bíógestir ánægðir með myndina. Gott tækifæri til að eignast húsbíl GE-bílar voru með mikla hús-bílasýningu 25. og 26. apríl s.l. Margir gerðu sér ferð á sýninguna til að skoða þessa flottu farartæki, Hér er um að ræða notaða bílaleigu húsbíla. Guðmundur hjá GE- -bílum sagðist halda að þetta væri í fyrsta sinn sem sérstök húsbílasýning á notuðum bílum væri haldin. Bílarnir koma frá Touring cars, sem staðsett er á Ásbrú. Fyrirtækið hefur verið starfandi frá 2009. Húsbílarnir eru allir velbúnir og vel með farnir. Verðið er frá 4,4 millj- ónum og hægt er að fá 80% að láni. Þá er einnig mögueliki að setja bíl uppí húsbílinn. Þeir sem eru með hugmyndir að ferð- ast um landið í velbúnum húsbíl ættu að gera sér ferð til GE-bíla og kanna málið.

x

Reykjanes

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Reykjanes
https://timarit.is/publication/990

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.